Listin að lifa - 01.06.2006, Blaðsíða 10

Listin að lifa - 01.06.2006, Blaðsíða 10
um 120 árum, stendur að vísu enn út í Leir- voginn en Langatangamelurinn er kominn í uppfyllingar hér og hvar um höfuðborg- arsvæðið og golfvöllur yfir það sem eftir af honum. Útivistar- og listabær Ekki er þarmeð sagt að allt þetta sé af hinu vonda. Mosfellsbær er útivistar- bær fullur af hestamönnum og golfurum, sundfólki og handboltafólki og svo öllum hinum sem hlaupa, skokka, ganga og hjóla, svo ekki sé minnst á að arka upp á fellin sjö og aðrar mishæðir bæjarins. Hér hafa listamenn fundið sér samastað og vinna verk sín í leir, gler og málma fyrir utan pappír og léreft. Músík er iðkuð af miklum móð, bæði hljóðfæraleikur og söngur, hér búa margir þekktir tónlistarmenn og sem örlátir miðla sveitungum af list sinni. Kórar eru hér sjö starfandi fyrir utan skólakóra Varmárskóla og Lágafellsskóla sem hvor um sig skiptast í nokkrar undir- deildir. Stundum er haft á orði að Mosfellsbær sé svefnbær. Ekki hefur nýlega verið gerð könnun á réttmæti staðhæfingarinnar, en fyrir nokkrum árum var kannað hve margir Mosfellingar unnu utanbæjar og hve margir utanbæjarmenn komu til vinnu í Mosfellsbæ. Mörgum kom á óvart að fleiri reyndust koma í bæinn til vinnu heldur en þeir sem fóru úr honum. Raunar skiptir þetta ekki miklu máli. Það er af sem var á unglingsárum mínum á Hulduhólum að það væri hálftíma akstur til Reykjavíkur, eða að Vesturlandsvegurinn væri lokaður vegna snjóa svo sem eins og viku í senn. Hann mun siðast hafa lokast af ófærð í byrjun mars 1970. En þá var það líka sem um munaði og tók um 18 tíma að koma honum aftur í það horf að hægt væri að fikra sig heim og heiman, á köflum aðeins eftir einföldum hjólförum. - Hér er ekki tilefni til stórra spá- dóma um framtíð Mosfellsbæjar. Minnstu munar að byggð bæjarins og Reykjavíkur sé vaxin saman og ekkert nema gott um það að segja. Það sem mestu máli skiptir er að Mosfellingum líði áfram vel í faðmi fellanna sjö. Sigurður Hreiðar Heimildir: Brúarland, Magnús Lárusson, hdr. 1983. Tiyggi Jónsson, hcejarverkfrctðingur, tölvubréf 2006. Mosfellsbcer, saga byggðar í 1100 ár, Bjarki Bjarnason ogMagnús Guðmundsson, 2005. hagstofan.is. Fyrst segir hér af fótfúnum presti, sr. Bjarni Sigurðsson, Safnaðarbréf Lágafellssóknar 1990. lnnansveitarkróníka, Halldór Laxness, 1970. Reykjavíkurborg Velferðarsvið Ferbir geta verið allt aö 30 á mánuði og kostar hver ferb 250 kr. sem mibast vib almennt staögreiðslugjald hjá Strætó bs. sem sér um framkvæmd þjónustunnar. Akstursþjónusta Nýjung í þjónustu fyrir eldri borgara í Reykjavík Reykjavíkurborg hefur meb vísan til ákvæba í X. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 ákveðib ab bjóba eldri borgurum akstursþjónustu í læknisheimsóknir, skipulagba endurhæfingu og félagsstarf. Um er ab ræba þjónustu vib íbúa Reykjavíkur, sem eru 67 ára og eldri, búa sjálfstætt, eru ófærir um ab nota almenningssamgöngur vegna langvarandi hreyfihömlunar og hafa ekki abgang ab eigin farartæki. Sœkja þarfum akstursþjónustuna til þjónustumibstöbvar í því hverfi þar sem umsœkjandi býr: Þjónustumibstöb fyrir íbúa Vesturbæjar er ab Hjarbarhaga 45-47, sími 411 -1700. Þjónustumibstöb fyrir íbúa Mibborgar og Hlíbar er ab Skúlagötu 21, sími 411 -1600. Þjónustumibstöb fyrir íbúa Laugardals- og Háaleitis er ab Síbumúla 39, sími 411 -1500. Þjónustumibstöb fyrir íbúa Breibholts er í Álfabakka 12, sími 411 -1300. Þjónustumibstöb fyrir íbúa Árbæjar, Grafarholts og Norblingaholts er ab Bæjarhálsi 1, sími 411 -1200. Þjónustumibstöb fyrir íbúa í Grafarvogi og á Kjalarnesi er í Langarima 21, sími 411-1400. Þeir sem hafa þegar ferða- þjónustu í félagsstarf á vegum Reykjavíkurborgar þurfa ekki ab sækja um ab nýju. Reglur og nánari upp- lýsingar ásamt umsóknar- eybublöbum er hægt ab nálgast á öllum þjónustumiðstöðvum í Reykjavík og á vef Reykja- víkurborgar, revkjavik.is. Vekjum athygli á ab í þjónustusíma Reykja- víkurborgar 411-1111 fást allar upplýsingar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Listin að lifa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.