Listin að lifa - 01.06.2006, Blaðsíða 28

Listin að lifa - 01.06.2006, Blaðsíða 28
Sjónarhóll fyrir eldra fólkiö! Gréta Aðalsteinsdóttir, nýr formaður FEB í Mosfellsbæ, sér félagið fyrir sér sem ráðgefandi miðstöð fyrir eldra fólkið Gréta Aðalsteinsdóttir er aðeins búin að vera formaður í tæpan mánuð og segist varla vera búin að átta sig á starfinu, en félagar hennar segja að fáir séu betri en hún að koma á samvinnu við bæjaryfirvöld. Segja má að félagið í Mosfellsbæ sé á byrjunarreit, aðeins,fjögurra ára. Gréta er þriðji formaður félagsins. Fyrsti formaðurinn, Pétur Hjálmsson, tók upp á því að flytja í sumarhúsið sitt á Flúðum og breyta því í heilsárshús. Viðtal við næsta formann, Grétar Snæ Hjartarson, birtist á öðrum stað í blaðinu. Gréta var hjúkrunarforstjóri á Reykjalundi og vel inni í endur- hæfingar- og öldrunarmálum. Hún starfaði líka með Margréti Margeirsdóttur að málefnum fatlaðra. Frábært að fá svo kröft- uga konu til að leggja málum eldri borgara lið. Grétu finnum við í rúmgóðri íbúð á Blikahöfða í jaðri Blikastaðatúns. Par býr hún með fullorðnum syni sínum, en Gréta er búin að vera ekkja í 25 ár. Nýi Lágafellsskólinn er handan götunnar. Ný fjölbýli, hönnuð fyrir 50 ára og eldri, ber við Lágafellið. „Þar eru lyftur og mynd- sími, en enginn húsvörður,“ segir Gréta. „Nú eru félagsmenn komnir upp í 153. Þeir tínast inn, en langt frá því að allir séu virkir. Hér bjuggu tæplega 3000 manns þegar við hjónin fluttum hingað fyrir 30 árum. Nú búa hér yfir 7000 manns. Mosfellsbær er ungt bæjarfélag, 67 ára og eldri um 4% af bæjarbúum. Hér er byggt geysilega mikið. Eitt hverfi í byggingu, tvö í undirbúningi. Þetta eru falleg svæði með víðu og fögru útsýni. Gréta kynntist eiginmanni sínum, Arna Kárasyni frá Akureyri, þegar hún stundaði sérnám í kennslufræðum og stjórnun hjúkr- unarmála í Noregi. Árni var í dýralækningum. Saman fóru þau svo í frekara nám til Skotlands. Eftir heimkomuna unnu ungu hjónin í Stykkishólmi og Búðardal þar sem Gréta var héraðs- hjúkrunarkona, embætti sem nálgaðist oft læknisstörf, þar sem læknar voru ekki á staðnum. „I Mosfellssveitina fluttum við 1976 og festum kaup á þriggja hæða raðhúsi, þar sem Árni ætlaði að stunda lækningar sínar á jarðhæðinni, en allt breyttist þegar Árni veiktist fljótlega eftir að við fluttum hingað. Eg var að vinna í Reykjavik, en fannst erfitt að skilja Árna einan eftir heima svo að ég fór að vinna í Mosfellsbæ. Eg vann fyrst á Heilsugæslunni hérna, síðar sem hjúkrunarforstjóri á Reykjalundi. Svo missti ég Árna eftir 15 ára hjónaband. Nokkuð sem manni dettur ekki í hug í upphafi búskapar. Mikil lífsreynsla að standa ein uppi með lítil börn. En það er annaðhvort að duga eða drep- ast. Börnin mín þurftu meira á því að halda að við styddum hvert annað en að ég legðist í sjálfsvorkunnsemi. Ég var svo heppin að vera með allgóða menntun og geta unnið vel fyrir okkur.“ Allt sem á mann fellur, hverfur í fjarskann, þótt það gleymist ekki. Þá er að einbeita sér að því að fletta við og hefja nýjan kafla í lífinu. Menn ráða svo misjafnlega vel við áföllin í lífinu. Gréta á rætur í Djúpinu, fædd á bænum Kleifum í Seyðisfirði. Seinna bjó fjölskyldan á Bæjum á Snæfjallaströnd. „Já, ég var sveitastelpa úr Djúpinu, man ennþá hvað mér fannst hryllilegt að flytja til Isafjarðar. Bærinn var svo stór, og mikið af frekum og frökkum krökkum í augum sveitastelpu úr Djúpinu. En allt breytist. Ég var öll mín skólaár á ísafirði, ber mjög hlýjar taugar til bæjarins og finnst alltaf jafngaman að koma þangað. Sami sjórinn, sömu fjöllin, en svo miklar uppfyll- ingar á ströndinni að fjaran er ekki sú sama.“ BYGGÐASAFN HÚNVETNINGA OG STRANDAMANNA Rey^um Hrútaílrði Opiö aageg* fri U. 10«) -190) írá 1. Júní öl 31. ágúst s. 4510040 / 660 5970 wwr.sininet.ts/0feigur Hákarlaveiðar við Húnaflóa Shark Kshing Exhíbition HITAVEITA SUÐURNESJA HF sœlkeraverslu osta búðin Skólavörðuslig
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Listin að lifa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.