Listin að lifa - 01.06.2006, Blaðsíða 22
É '
María og Haukur.
Hugmyndarík áhugaleikkona
María Guðmundsdóttir er hjúkrunarfræðingur með
44ra ára starf á sjúkrahúsum að baki
— en fór á flug í leiklistinni eftir að hún hætti í hjúkrun
Hjúkrunarkonan frá Reykjalundi býr yfir mörgum svip-
brigðum sem hafa komið skemmtilega í Ijós - í kvik-
myndum, sjónvarpsþáttum og auglýsingum, en oftast á
sviðinu hjá Leikfélagi Mosfellsbæjar.
„Skemmtilegasta æviskeiðið er oft eftir, ef fólk hættir
að vinna áður en starfið fer að koma niður á heilsunni.
Áhugaleikhúsin eru ffábær vettvangur fyrir eldra fólk til að
bregða sér í glens og gaman. Margir taka sjálfan sig alltof hátíð-
lega,“ segir María. Hún hefur stutt að mörgum skemmtilegum
uppákomum í félagslífi Mosfellsbæjar. Nú er hún sest í stjórn
FEB í Mosfellsbæ og eru miklar vonir bundar við reynslu
hennar og hugmyndaauðgi - að hún hjálpi til að koma ein-
hverju áhugaverðu af stað í félaginu.
Skjólsæll unaðsreitur opnast, þegar hjónin María og Haukur
Þórðarson, áður yfirlæknir á Reykjalundi, eru heimsótt. Húsið
þeirra stendur við götuna Amsturdam í kvosinni niður af
Reykjalundi, áður vinnustað Maríu og Hauks. Þau eiga heiðurinn
af hyggingu hússins sem tengir frábærlega vel setustofu og garð -
gluggar eftir endilangri stofunni opna útsýni yfir gróður og garð.
Götuheitið er sérkennilegt, enda segir María að fólk hvái alltaf
þegar hún segist eiga heima í „Amsturdam". Gatan heitir eftir
býli og hver er stóð rétt hjá þar sem Reykjalundur stendur nú. Á
býlinu bjó Hollendingur sem nefndi bæinn sinn Amsterdam, en
nafnið breyttist í meðförum í gegnum tíðina í Amsturdam.
María er Akureyringur, en yfirgaf æskuslóðirnar átján ára.
„Ég tel mig miklu meiri Mosfelling en Akureyring. Undarlegt
er samt hvað staðarskynið býr lengi í manni. Hér er ég búin að
eiga heima nær helmingi lengur en á Akureyri. Samt er ég ekki
alveg klár á áttunum. Eyjafjörður lá í norður og suður. Hérna er
ég ennþá áttavillt!“
Fjórtán ára fór María að vinna við ræstingar á sjúkrahúsi á
Akureyri. Síðan hefur hún unnið samfellt á sjúkrahúsum. Með
hjúkrunarstarfinu er hún búin að vinna í sjúkrageiranum í 44 ár.
„Ég skildi það mjög vel, þegar hún hætti að vinna á Reykjalundi
1995 - og sagðist alveg vera búin að fá nóg,“ segir Haukur.
„Hjúkrun er lýjandi starf. Maður á að hætta á þokkalegum aldri,
áður en starfið fer að koma niður á manni. Fólk á að vera i fullu
fjöri þegar það hættir. Eftir starfslok er oft skemmtilegasta ævi-
skeiðið eftir," segir María.
Vandið valið á áhugamálinu eftir starfslok, ef
vel tekst til er skemmtilegasta æviskeiðið eftir!
„Ég byrjaði í Leikfélagi Mosfellssveitar 1994, var komin í
stjórnina og gjaldkerastólinn, þegar ég hætti að vinna 1995. I
Leikfélaginu eru um 70-80 manns, ekki endilega allir virkir.
Félagsmenn koma og fara, en fasti kjarninn er nokkuð stór og
góður hópur sem kemur saman til æfinga og leiks.
Leiklistin hefur gefið mér geysilega mikið. Ég hef lært að
hlusta, ekki bara á töluð orð, heldur líka að ráða í líkamstján-
ingu fólks. Ég er ekki handavinnukona og maður getur ekki lesið
endalaust. Ég reyndi að einbeita mér að lestri góðra bóka, þegar
Haukur var að vinna á Kristnesi í þrjú ár. Þá las ég þar til flæddi
út úr eyrunum á mér. Á endanum settist ég niður og fór að þýða
leikrit. Leiklistin heldur manni gangandi. Maður lærir texta og
hreyfir sig mikið. Eldra fólk á hiklaust að fara í þetta til að hitta
aðra og leika sér, læra að hætta að taka sig of hátíðlega. Fólk
tekur sjálft sig alltof hátíðlega. Leikfélagið Snúður og Snælda er
til fyrirmyndar. Þar er mjög duglegt fólk!
Á leiksviðinu lærir maður að hlusta, ráða í
líkamstjáningu - hættir að taka sig of hátíðlega!
Regnhlífarsamtök áhugaleikfélaga, Bandalag íslenskra
leikfélaga, rekur leiklistarskóla á sumrin á Húsabakka í
Svarfaðardal. í júní eru þar tíu daga námskeið. Þar kynntist ég
Sigrúnu Pétursdóttur, aldursforsetanum í Snúði og Snældu. Við
vorum langelstar í hópnum, en alls engir eftirbátar þeirra sem