Listin að lifa - 01.06.2006, Page 48
Hugmyndafræði á
dönskum öldrunarsetrum
Fulltrúar frá Eir og sveitarfélaginu
Álftanesi fóru að kynna sér öldrun-
arsetur í Danmörku í október í
íyrra. Guðrún Jóhannsdóttir, formaður
FEBÁ, var með í för og greinir frá hug-
myndafræðinni að baki dönsku öldrunar-
setrunum.
Frá Eir: Birna Svavarsdóttir, hjúkrunar-
forstjóri, Sigurður H. Guðmundsson, for-
stjóri Eirar, Bjarni Frímannsson, tækni-
legur ráðunautur frá Hjúkrunarheimilinu
Eir, og Halldór Guðmundsson arkitekt.
Frá Álftanesi: Ásta Kr. Benediktsdóttir
félagsmálastjóri, Gréta Konráðsdóttir
djákni, Guðmundur G. Gunnarsson bæjar-
stjóri, Sigríður Rósa Magnúsdóttir, forseti
bæjarráðs og formaður félagsmálanefndar,
og undirrituð, Guðrún Jóhannsdóttir for-
maður FEBÁ.
Bjarne Webb Sörensen, forstöðumaður
Lundehaven Ældrecenter, sótti okkur á
morgnana í lítilli rútu og ók með okkur
á milli staðanna. Skoðuð voru 4 öldrunar-
setur: Kildegárden í Gladsaxe Kommune;
Lundehaven í Ballerup Kommune sem
Setustofa með hljóðfæri.
Bjarne stýrir með miklum myndar-
brag; Lillevang í Farum Kommune og
Rosengárden í Odense.
Margt fróðlegt bar fyrir augu og
eyru, en upp úr stendur það sem þessum
stöðum er sameiginlegt, hugmyndafræðin
um hvernig beri að búa að öldruðum.
- Að öldrunarsetur séu fyrst og fremst
að vera heimili, ekki stofnanir.
- Að aldraðir missi í engu persónuffelsi
sitt við að flytja á öldrunarsetur.
- Að þeim skuli ávallt sýnd full virð-
ing.
- Að ævikvöldið sé skemmtilegt, hlý-
legt og notalegt.
Eg geri ekki sérstaka grein fyrir hverju
setri fyrir sig, enda var fyrst og fremst
verið að skoða hugmyndir Dana, hvernig
búa beri að öldruðum, hvorki byggingar-
stíl né skipulag. Fólkið býr ýmist á stórum
einbýlum með sérbaðherbergi, litlum
íbúðum eða tveggja herbergja raðhúsum.
Á Lillevang í Farum Kommune, sem
Sigurður H. Guðmundsson hafði hönd í
bagga með, mynda fimm hús setrið. Eitt af
þeim er þjónustu- og félagsmiðstöð, en hin
fjögur húsin með átta 2ja herbergja íbúðir
í hverju húsi, sameiginlegt eldhús og setu-
stofu í miðju. Hugmyndin er að heimilis-
fólk eldi sameiginlega og borði saman.
íbúðirnar eru þannig innréttaðar að
hægt er með færanlegum skilrúmum að
ráða hve mikið er opið á milli stofu og
svefhherbergis, hvort íbúðin sé 1 eða
2 herbergi. Lítið kaffieldhús er í hverri
íbúð. Hver íbúi hefur eigin „þjónustufull-
trúa“ sem aðstoðar viðkomandi við skipu-
lag daglegs lífs innan heimilisins með til-
liti til venja, óska og þarfa. Tekið er tillit til
hvers einstaklings eins og framast er unnt.
Til dæmis ræður hver og einn hvenær hann
mætir í morgunmat og fær þannig að halda
venjum sínum.
Það sem vakti þó mesta athygli
mína á öllum setrunum var hve setkrókar
voru hafðir heimilislegir, með fallegum
húsgögnum, jafnvel útskornum, margvís-
legum listaverkum, fallegum ljósakrónum
og smekklegum gardínum. Engir tveir set-
krókar voru eins, en líktust hver fýrir sig
setustofum á venjulegum heimilum. Víða
voru hljóðfæri, sums staðar skrautfiskabúr
og alls staðar mikið af lifandi blómum.
Ennfremur var, a.m.k. á Kildegárden,
sérstök gestastofa til afnota fyrir íbúana.
Þar var hægt að fá framreiddar veitingar
væri þess óskað. Á flestum, ef ekki á öllum
setrunum, eru lítil kaffihús með veitingar
á sérstöku „eldri borgara verði“ fyrir
fbúana og gesti þeirra. Haldið er upp á
afmæli og brúðkaupsafmæli heimilisfólks-
ins, svo og alla hátíðisdaga rétt eins og á
venjulegu heimili. Þegar nýr íbúi flytur
inn er haldin veisla til að bjóða nýja heim-
ilismanninn velkominn og hún eða hann
kynnt(ur) fyrir heimilisfólki og starfsfólki.
Á milli bygginganna eru skjólgóðir
garðar, sem eru skreyttir hátt og lágt fýrir
jól, páska og aðra hátíðisdaga. Þar eru úti-
setkrókar með grillaðstöðu og haldnar
grillveislur þegar vel viðrar. Einnig mátti
sjá útiaðstöðu til ýmis konar líkamsræktar,
allt í góðu skjóli, og á einum stað stóð yfir
leikfimikennsla utandyra.
Rosengárden býður upp á smáskika
til matjurta- og ávaxtaræktunar fyrir þá
sem vilja. Á sama stað er sérlega skemmti-
legt anddyri með fallegum gosbrunni, sem
reyndar gýs ekki, heldur rennur vatnið niður
ávalan stein og myndar skemmtilegt hljóð.
í borðsal eru fallegir dúkar, blóm og kerta-
ljós á hverju borði, rétt eins og á vinalegu
veitingahúsi. Öðru hverju er boðið upp á
hátiðarkvöldverð með forrétt, aðalrétt og eft-
irrétt á fyrirffam ákveðnu verði. Fólk getur
þá keypt sér vínglas eða bjór með matnum,
efþaðvill. Þetta kalla Danir „notalega sam-
verustund" sem fellur undir félagslífið.