Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.03.2015, Page 30

Fréttatíminn - 20.03.2015, Page 30
Steinþór Helgi tekur á móti nokkur þúsund tölvuleikja- aðdáendum um helgina. Ljósmynd/Hari Tölvuleikjaframleiðandinn CCP sem framleiðir tölvuleikinn EVE Online, stendur fyrir svkölluðu Fanfest um helgina í Hörpu og er þetta í 12. sinn sem hátíðin er haldin. Í tilefni af þessu koma til landsins hátt í 2000 spilarar, blaðamenn og starfs- menn CCP frá öllum heimshornum. Hátíðin hefur vaxið og dafnað með hverju árinu og í ár dugar ekkert minna en Harpa eins og hún leggur sig til þess að hýsa alla þá viðburði sem í boði eru. Verkefnastjóri hátíðarinnar, Steinþór Helgi Arnsteinsson, segir þetta hálfgerða árshátíð allra sem koma að EVE Online. Þ etta er í tólfta sinn sem hátíðin er haldin og það má segja að þetta sé nokkurs konar árshátíð þeirra sem spila leikinn,“ segir Steinþór Helgi Arn- steinsson, verkefnastjóri EVE Fanfest. „Þetta er mjög mikilvægt fyrir samfélagið innan leiks- ins, sem er mjög sterkt og hefur undið upp á sig á öllum þessum tíma. Þetta byrjaði sem eitthvað partý fyr- ir 30 manns og er orðið mörg hundruð þúsund manna samfélag. Eins er þetta árshátíð fyrir fyrirtækið sjálft,“ segir Steinþór sem vinnur hjá CCP. „Við bjóðum ýmsum samstarfsaðilum frá stóru tölvuframleiðendunum og svo blaðamönnunum, því þetta er líka markaðstengd hátíð fyrir það sem CCP er að gera. Fyrst og fremst erum við að gera vel við spil- arana okkar.“ Starfstöðvar um allan heim CCP er með höfuðstöðvar sínar í Reykjavík, en einnig eru starfs- stöðvar fyrirtækisins í Newcastle í Englandi, Shanghai í Kína og Atl- anta í Bandaríkjunum og margir af starfsmönnum frá þessum löndum koma til Íslands á hátíðina. Á há- tíðinni sýnir CCP prufur af öllu því sem fyrirtækið er að vinna að, bæði í EVE Online leiknum og mörgu öðru. „Það er margt spenn- andi í gangi,“ segir Steinþór. „Þar á meðal eru nokkur VR verkefni, eða Virtual Reality. M.a þróun á þrívíddargleraugum sem unnin eru í samstarfi við Oculus Rift, Samsung og Sony meðal annarra. Gott dæmi um þróunina innan fyrirtækisins er að fyrir nokkrum árum var hugmynd sem nokkrir gaurar á skrifstofunni voru að leika sér með, sem í dag er leikurinn Valkyrie sem kemur út á næstu misserum,“ segir Steinþór. „Gestirnir sem koma hingað koma ekki bara til þess að fá að sjá hvað CCP er að gera nýtt, heldur líka því nýjasta sem er að gerast í leiknum EVE Online. Við kynn- um alltaf breytingar sem þessir gestir fá fyrstir að sjá. Annars er CCP ekki í neinu aðalhlutverki því við viljum að gestirnir hitti hvern annan, kynnist og geri sína eig- in dagskrá,“ segir Steinþór. „Það endurspeglar leikinn þar sem við gefum bara verkfæri en þátttak- endur verða að skapa sinn heim.“ Viðburðir um alla borg Hátíðin byrjaði formlega í gær, fimmtudag og stendur fram á sunnudag. Það eru viðburðir um alla borgina en aðalvettvangur hátíðarinnar er í Hörpu, þar sem EVE Fanfest er með Hörpuna alla til umráða. „Þetta er hátt í 3000 manns sem koma á hátíðina,“ segir Stein- þór. „1500 manns koma hingað eingöngu vegna þess að þeir eru EVE spilarar, aðrir eru starfs- menn, blaðamenn og samstarfs- aðilar. Við erum með alla Hörp- una og það er starfsemi í öllum rýmum hússins þannig að þetta er flókið í skipulagningu og gríð- arlega tæknilegt,“ segir Steinþór. „Við erum að fá hingað byltinga- kennd skjákort sem eru ekki einu sinni komin á markað, og verðum með fyrstu opinberu aðilunum í heiminum til þess að nota þau. Við fáum 75 risatölvur beint frá Intel, sem kosta hver um sig um hálfa milljón í búð og fleira í þeim dúr. Skipulagsteymið er í rauninni bara ég,“ segir Steinþór. „Ég er sá eini hjá CCP sem er í viðburðaum- sjón, en það eru allir starfsmenn fyrirtækisins sem koma að þessu á einn eða annan hátt,“ segir Stein- þór sem er að vinna í annað sinn að EVE Fanfest. „Í fyrra voru alls- konar hlutir sem ég hreinlega skildi ekki, sökum tæknilegrar vanþekkingar,“ segir Steinþór. „Reyndi bara að skilja og henti mér bara í djúpu laugina sem var lærdómsríkt. Ég er að reyna að setja minn brag á þetta og það eru alltaf einhverjar áherslubreyting- ar á milli ára. CCP stendur svo fyr- ir fleiri viðburðum um allan heim, eins og til dæmis í Las Vegas þar sem okkar markaður er stærstur í Bandaríkjunum. Einnig í London, Nottingham og Amsterdam og það er það sem við viljum gera,“ segir Steinþór, „halda hátíðir um allan heim því notendurnir eru um allan heim. Við erum að fá gesti hingað frá löndum eins og Nýja Sjálandi, Malasíu og Kongó sem er mjög skemmtilegt. Við erum með allskonar viðburði fyrir gestina, bæði hér innandyra í Hörpu sem og utan. Við förum með hópinn Gullna hringinn og sýnum þeim landið á milli þess sem þeir eru innilokaðir í Hörpu.“ Steinþór er þó ekki sjálfur á kafi í EVE Online, en hefur þó prufað. „Ég hef náð að halda mig innan siðferðismarka,“ segir Steinþór Helgi Arnsteinsson verkefnastjóri EVE Fanfest 2015 Allar upplýsingar um hátíðina má nálgast á heimasíðunni fanfest. eveonline.com Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is 3000 manns, 75 risatölvur og almennt stuð 30 viðtal Helgin 20.-22. mars 2015 Fákafeni 9, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is Á MEÐAN BIRGÐIR ENDAST SIFFON-TOPPUR Stærðir 14-26 verð: 3.990 kr TÚNIKA Stærðir 16-28 verð: 4.990 kr BÓMULLAR-TOPPUR Stærðir 16-28 verð: 2.990 kr SIFFON-TOPPUR Stærðir 14-28 verð: 3.990 kr PEYSA Stærðir 14-20 verð: 5.990 kr FRÁBÆR VORTILBOÐ!

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.