Fréttatíminn - 20.03.2015, Page 72
Kristian Guttesen.
Kristian Guttesen fagnar 20
ára skáldaafmæli á þessu ári en
fyrsta bókin hans, Afturgöngur,
kom út árið 1995. Af því tilefni
er fyrirhugað að gefa út úrval
ljóða skáldsins, sem skarta muni
handfylli ljóða úr sérhverri bók
af ferlinum. Til að standa straum
af framleiðslu bókarinnar hefur
Kristian hafið fjármögnun á Kar-
olinaFund. Þar er hægt að kaupa
í forsölu bókina: „Eilífðir - úrval
ljóða 1995 - 2015“ og með því að
leggja til andvirði 30 evra fæst
bókin árituð og heimsend.
Frá því Kristian var tvítugur
hafa birst ljóð og sögur í tímarit-
um og dagblöðum á Norðurlönd-
um og hafa verk eftir hann verið
þýdd á albönsku, dönsku, ensku,
frönsku, indversku, norsku og
spænsku. Hann með MA gráðu
í ritlist og er að ljúka meistara-
gráðu í heimspeki. Kristian er
búsettur á Fljótsdalshéraði þar
sem hann kennir ritun og siðfræði
við Menntaskólann á Egilsstöð-
um. - eh
LjóðList Kristian Guttesen Gerir upp feriLinn
Eilífðir á skáldaafmæli
LeiKList sKáLmöLd í Landnámssetrinu
É g er samantektarmaður. Vil bara helstið úr fréttum og stiklur af þessu helsta í þjóðfélaginu síað í
gegnum Facebook. Þess vegna náði Einar
Kárason mér gjörsamlega með hnitmið-
uðum Skálmaldarbálki sínum. Því ég gat
ekki, þrátt fyrir töluverðan áhuga, sett
mig í stellingar og kynnt mér fornsögurn-
ar okkar almennilega. Til þess eru þær
bara of flóknar og þurfa yfirleitt yfirferð á
námskeiði hjá Endurmenntunarstofnun.
Það er ekki fyrir mig, í það minnsta ekki
hérna mín megin við sextugt.
Hef því frekar lesið um Sturlungu óbeint
í gegnum hugarheim og rannsóknarvinnu
Einars og nú bíð ég bara eftir myndunum
– spenntur. En þangað til þær koma hef ég
nú í tvígang lagt leið mína upp í Borgarnes
og hlýtt á Einar gera efni bóka sinna skil
á fjölum Landnámssetursins þar í bæ. Því
þar er skautað jafnvel enn hraðar yfir sögu
en í bókunum.
Á dögunum var einmitt frumsýnd þar
sýning byggð á lokakaflanum í bókaflokkn-
um. Þó frekar mætti kalla hann upphafið
þar sem Skálmöld fjallar um atburðina sem
leiddu til Örlygsstaðabardaga og upphafs
Sturlungaaldarinnar.
Þetta ekki í fyrsta skiptið sem Einar
stígur á stokk þarna í Borgarnesinu. Hann
gerði Skáldi líka góð skil með hálfgerðum
einleik. Nú er hann mættur aftur á fjal-
irnar en að þessu sinni er ekki um einleik
að ræða því Einar spilar út tvisti að þessu
sinni. Nú býður okkar maður upp á kvöld-
stund í Landnámssetrinu ásamt Júlíu Mar-
gréti, dóttur sinni, þar sem þau kasta sög-
unni á milli sín og skiptast á að segja frá í
fyrstu persónu.
Það verður að viðurkennast að ég var
ögn stressaður fyrir viðbótinni. Að þarna
væri verið að rugga bátnum og jafnvel
raska því sem gekk vel upp síðast og var
vel ferðarinnar virði. Það er skemmst frá
því að segja að áhyggjur mínar voru óþarf-
ar. Eplið hefur ekki fallið mjög langt frá
eikinni að þessu sinni því hún Júlía stóð
sig með stakri prýði. Sögumaður frá nátt-
úrunnar hendi, eins og hún á kyn til. Sér-
staklega var það fyrir hlé sem hún gerði
kvenkyninu góð skil. Tókst að ljá kven-
peningnum þarna á þrettándu öld sérlega
skemmtilegan blæ. Sér í lagi þeim yngri.
Unglingaveikir Sturlungar eru ekki endi-
lega eitthvað sem Einari sjálfum hefði tek-
ist að framkalla með góðu móti.
Einar Kára, augljóslega stoltur af dóttur
sinni og hennar þætti, var líka ljómandi
góður sem fyrr. Enda sögumaður frá nátt-
úrunnar hendi og það skín í gegn þarna
á þröngu loftinu. Náði taki á salnum við
fyrstu setningu og sleppti ekki fyrr en
kvöldið var úti.
Frumsýningin var mátulega heimilisleg
og þar af leiðandi svo þægileg að allir litlir
hnökrar sem óhjákvæmilega verða hjá til-
tölulega óleiklærðu fólki skipta engu máli.
Gera upplifunina bara betri. Það er skaut-
að yfir efni bókarinnar á miklum spretti
og feðginin kasta á milli sín persónum
og atburðum. Sýningin er sterkari fyrir
hlé. Máski vegna þess að uppbyggingin
fyrir óhjákvæmilegan lokabardagann er
skemmtilegri en niðurstaðan sjálf eða ein-
faldlega að persónurnar eru betri í fyrrihlut-
anum, einfaldlega úr meira efni að moða.
Þegar á heildina er litið verður að segja
að það er frábær kvöldstund að skella sér
í pylsu og kók í einni af vegasjoppunum,
nóg af þeim þarna uppfrá. Kíkja svo í Land-
námssetrið, hlusta og horfa á þau feðginin
spóla sig í gegn um aðdragandann að Ör-
lygsstaðabardaga. Gestir keyra svo glaðir
heim með blóðugan bardagann ferskan í
minninu.
Sýningin er ljómandi skemmtun. Í
fyrsta lagi fyrir þá sem vilja kynna sér
innganginn að Sturlungasögu á kvöld-
parti og þá sem kunna söguna og vilja
kynnast persónunum hennar nánar en
sýningin er ekki síst fyrir þá sem vilja
bara hlusta á Einar Kárason og Júlíu dótt-
ur hans segja skemmtilega frá söguarf-
inum okkar.
Haraldur Jónasson
hari@frettatiminn.is
Skálmaldarfeðgin
á fjölunum
skálmöld
Einar Kárason og Júlía Margrét
Einarsdóttir.
Sýnt í Landnámssetrinu í
Borgarnesi.
leikhusid.is Konan við 1000° – HHHH „Í stuttu máli fá töfrar leikhússins að njóta sín“
– Morgunblaðið
HVERFISGATA 19 551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
Sjálfstætt fólk - hetjusaga (Stóra sviðið)
Lau 21/3 kl. 19:30 28.sýn Sun 29/3 kl. 19:30 Lokas.
Síðustu sýningar
Fjalla - Eyvindur og Halla (Stóra sviðið)
Fim 26/3 kl. 19:30 Frums. Fös 10/4 kl. 19:30 5.sýn Lau 18/4 kl. 19:30 9.sýn
Fös 27/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 11/4 kl. 19:30 6.sýn Fös 24/4 kl. 19:30 10.sýn
Mið 1/4 kl. 19:30 3.sýn Fim 16/4 kl. 19:30 7.sýn
Fim 9/4 kl. 19:30 4.sýn Fös 17/4 kl. 19:30 8.sýn
Eitt magnaðasta verk íslenskra leikbókmennta í uppsetningu Stefan Metz.
Segulsvið (Kassinn)
Sun 22/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 27/3 kl. 19:30 6.sýn Lau 11/4 kl. 19:30 8.sýn
Fim 26/3 kl. 19:30 5.sýn Fös 10/4 kl. 19:30 7.sýn
Nýtt leikverk eftir Sigurð Pálsson
Konan við 1000° (Stóra sviðið)
Fös 20/3 kl. 19:30 52.sýn Lau 28/3 kl. 19:30 Lokas.
Aukasýningar á Stóra sviðinu.
Kuggur og leikhúsvélin (Kúlan)
Sun 22/3 kl. 13:30 Sun 29/3 kl. 13:30
Sun 22/3 kl. 15:00 Sun 29/3 kl. 15:00
Kuggur og félagar geysast nú upp á svið í Þjóðleikhúsinu í fyrsta sinn!
Klókur ertu, Einar Áskell (Brúðuloftið)
Lau 21/3 kl. 14:00 Lau 28/3 kl. 14:00
Lau 21/3 kl. 16:00 Lau 28/3 kl. 16:00
Hinn uppátækjasami Einar Áskell í fallegri og skemmtilegri brúðusýningu
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Fös 20/3 kl. 19:00 aukas. Sun 19/4 kl. 19:00 aukas. Fös 8/5 kl. 19:00
Sun 22/3 kl. 19:00 9.k Mið 22/4 kl. 19:00 Lau 9/5 kl. 19:00
Fim 26/3 kl. 19:00 aukas. Fim 23/4 kl. 19:00 Sun 10/5 kl. 19:00
Fös 27/3 kl. 19:00 aukas. Fös 24/4 kl. 19:00 Mið 13/5 kl. 19:00
Sun 29/3 kl. 19:00 10.k Sun 26/4 kl. 19:00 Fim 14/5 kl. 19:00
Mið 8/4 kl. 19:00 11.k Mið 29/4 kl. 19:00 Fös 15/5 kl. 19:00
Fim 9/4 kl. 19:00 12.k Fim 30/4 kl. 19:00 Sun 17/5 kl. 19:00
Lau 11/4 kl. 19:00 aukas. Sun 3/5 kl. 19:00 Mið 20/5 kl. 19:00
Sun 12/4 kl. 19:00 13.k Þri 5/5 kl. 19:00 Fim 21/5 kl. 19:00
Fim 16/4 kl. 19:00 14.k Mið 6/5 kl. 19:00
Fös 17/4 kl. 19:00 15.k Fim 7/5 kl. 19:00
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 21/3 kl. 13:00 Lau 11/4 kl. 13:00 Lau 25/4 kl. 13:00
Sun 22/3 kl. 13:00 Sun 12/4 kl. 13:00 Sun 26/4 kl. 13:00
Lau 28/3 kl. 13:00 Lau 18/4 kl. 13:00
Sun 29/3 kl. 13:00 Sun 19/4 kl. 13:00
Sterkasta stelpa í heimi er mætt á Stóra sviðið
Er ekki nóg að elska? (Nýja sviðið)
Fös 20/3 kl. 20:00 Frums. Þri 14/4 kl. 20:00 aukas. Sun 3/5 kl. 20:00 17.k
Sun 22/3 kl. 20:00 2.k Mið 15/4 kl. 20:00 9.k Mið 6/5 kl. 20:00 aukas.
Þri 24/3 kl. 20:00 aukas. Fim 16/4 kl. 20:00 10.k Fim 7/5 kl. 20:00 18.k
Mið 25/3 kl. 20:00 aukas. Fös 17/4 kl. 20:00 11.k Fös 8/5 kl. 20:00 19.k
Fim 26/3 kl. 20:00 3.k. Sun 19/4 kl. 20:00 aukas. Lau 9/5 kl. 20:00 20.k.
Fös 27/3 kl. 20:00 4.k. Mið 22/4 kl. 20:00 12.k Sun 10/5 kl. 20:00 21.k
Sun 29/3 kl. 20:00 aukas. Fim 23/4 kl. 20:00 13.k Þri 12/5 kl. 20:00 aukas.
Mið 8/4 kl. 20:00 5.k. Fös 24/4 kl. 20:00 aukas. Mið 13/5 kl. 20:00 22.k.
Fim 9/4 kl. 20:00 6.k. Sun 26/4 kl. 20:00 14.k Fim 14/5 kl. 20:00 23.k.
Lau 11/4 kl. 20:00 7.k. Mið 29/4 kl. 20:00 15.k Fös 15/5 kl. 20:00 aukas.
Sun 12/4 kl. 20:00 8.k. Fim 30/4 kl. 20:00 16.k Sun 17/5 kl. 20:00
Nýtt verk eftir Birgi Sigurðsson höfund hins vinsæla leikrits Dagur vonar
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Lau 21/3 kl. 20:00 Lau 28/3 kl. 20:00 Lau 18/4 kl. 20:00
Þri 24/3 kl. 20:00 Fös 10/4 kl. 20:00 Lau 25/4 kl. 20:00
Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni
Beint í æð (Stóra sviðið)
Lau 21/3 kl. 20:00 Fös 10/4 kl. 20:00 Lau 25/4 kl. 20:00
Lau 28/3 kl. 20:00 Lau 18/4 kl. 20:00
Sprenghlægilegur farsi
Billy Elliot – HHHHH , S.J. Fbl.
Nánari upplýsingar a www.hannesarholt.is
Miðasala á midi.is
Jazztónleikar
22.mars
Anna Gréta
Sigurðardóttir
og félagar
Tónleikar
24.mars
Margrét Pálmadóttir
og Kvennakórinn
Cantabile
Bókaspjall
25.mars
Vilborg Davíðsdóttir
Ástin, drekinn og
dauðinn
Dagskrá Hannesarholts
72 menning Helgin 20.-22. mars 2015