Fréttatíminn - 20.03.2015, Page 76
Í takt við tÍmann HólmfrÍður kristÍn Árnadóttir
Borðaði fjögur Snickers á leiðinni á toppinn
Hólmfríður Kristín Árnadóttir er 24 ára viðskiptafræðingur sem starfar á auglýsingastofunni Jónsson & Le’maacks.
Hólmfríður er Valsari úr Hlíðunum, spilar badminton og gekk á Hvannadalshnjúk í fyrra.
Staðalbúnaður
Ég spái alveg í fatastílnum mínum en hef
enga fordóma fyrir því hvaða merkjum ég
klæðist. Mér finnst til að mynda gaman
að versla í Other Stories og Cos í útlönd-
um og hér heima finnst mér GK bera af
með vandaða skandinavíska hönnun.
Ég hef gengið með sama armbandið
á hendinni í ellefu ár. Ég og vin-
kona mín eigum nákvæmlega eins
armbönd og ég held mest upp á
það af því ég sem ég geng með.
Annars er ég alltaf með tösku
með allskonar dóti í og
fæst af því eru nauð-
synjar. Nema skósverta,
maður getur ekki verið
í ópússuðum skóm.
Hugbúnaður
Ég fæ mér oftast
Aeropress-
kaffi heima á
morgnana en
í bænum eru
margir staðir
með gott kaffi,
til að mynda Kaffifélagið á Skólavörðu-
stíg. Ég hef meiri áhuga á Happy Hour
heldur en djamminu og fer stundum á Ský
bar. Það er mjög næs bar og þar ertu líka
með milljón dollara útsýni. Ég panta mér
oftast bjór en framtíðarmarkmiðið er að
drekka alltaf kampavín – án þess að fá sam-
viskubit. Ég spila badminton með fremstu
badmintonstjörnum landsins í badminton-
klúbbnum Smass. Þetta er virtur klúbbur
með stóra drauma. Ég fer líka stundum
í Mjölni, bæði í Víkingaþrekið og svo er
ég á kickbox-námskeiði. Besta sundlaug
landsins er klárlega í laugin í Mosó. Hún er
ein af fáum sem er með gamla góða saunu.
Eftir að hafa horft á alla Breaking Bad-
þættina er erfitt að finna nýjan þátt til að
helga tíma sinn og þessa stundina er ég því
bara að horfa á Comedians in a Car Getting
Coffee með Jerry Seinfeld.
Vélbúnaður
Ég á tölvu og síma sem ég nota mjög mikið.
Ég var að byrja á Twitter (@holmfridurkr)
og finnst það mjög skemmtilegt. Þar er
ekki bara skemmtilegt fólk heldur getur
maður hannað sína eigin fréttaveitu og
ráðið því hvaða upplýsingar maður fær frá
helstu miðlum þessa heims. Ég var orðin
ansi þreytt á dönsku auglýsingunum á Spo-
tify og keypti mér því aðgang um daginn
sem er algjör snilld.
Aukabúnaður
Mér finnst mjög gaman að elda og bjóða
fólki í mat og geri það reglulega. Á virkum
dögum vil ég sleppa því að fara út í búð og
elda því oftast bara úr því sem til er. Þegar
ég borða úti enda ég oftast á Snaps. Maður
veit að hverju maður gengur þar, þar alltaf
góður matur og fín stemning, ekki bara
stundum. Af áhugamálum mínum get ég
nefnt ferðalög, skíði, hönnun og tónlist.
Og fjallgöngur. Ég fór á Hvannadalshnjúk
í fyrra. Við fengum ótrúlega gott veður og
þetta var alveg klikkað. Ég hef aldrei áður
borðað fjögur Snickers á hálfum sólarhring
og mun mögulega aldrei gera það aftur. Ég
reyni að hjóla stærstan hluta ársins en það
er hins vegar ómögulegt að hjóla vinnuna
í stormi og vera fabulous þegar þú mætir.
Það kemur sér því ágætlega að ég hef að-
gang að bíl sem ég nýti mér og er þakklát
fyrir.
Ljósmynd/Hari
d úettinn múm mun leika raf-tóna af fingrum fram við þýsku kvikmyndina Mensc-
hen am Sonntag frá 1930
í tónleikarými Mengi
næstkomandi miðviku-
dag, 25. mars. Tónleik-
arnir eru þeir fyrstu í
nýrri mánaðarlegri ser-
íu þeirra Örvars Smára-
sonar og Gunnars Tynes
þar sem þeir munu snara
fram ferskum raftónum
við áðurnefnda kvik-
mynd með það að leiðar-
ljósi að vera að lokum
búnir að skapa nýja tón-
list við myndina og sér-
stakan hljóðheim. Tón-
leikaserían verður því
eins konar verk í vinnslu.
Hljómsveit in múm
er þekkt fyrir nýjunga-
girni í nálgun sinni og
f lutningi á tónlist og
hefur hún komið víða
við. Samstarf hennar
við listamenn úr mis-
munandi listakreðsum
ber þess glöggt vitni, en
til dæmis vann sveitin
að lagi með áströlsku
poppstjörnunni Kylie
Minouge fyrir kvik-
myndina Jack & Diane
og í augnablikinu vinnur
múm að nýjum verkum
sem leikin verða af Sin-
fóníuhljómsveit MDR í
Leipzig. Á síðasta ári var
nýjasta breiðskífa sveitarinnar Smi-
lewound tilnefnd til Norrænu tón-
listarverðlaunanna.
Menschen am Sonntag er van-
metið meistarastykki frá 1930. Hún
var fyrsta myndin sem bræðurnir
Curt og Robert Siodamak leikstýrðu
og handritið skrifaði enginn annar
en Billy Wilder. Kvikmyndin er ein
síðasta mynd þögla tímabilsins svo-
kallaða og gefur sjaldgæfa innsýn
inn í líf áhyggjulausra ungmenna í
borg sem stuttu seinna varð hryll-
ingi einræðis að bráð.
Tónleikarnir í Mengi hefjast kl
21.00 og er miðaverð 2000 krónur.
-hf
tónleikar múm Í mengi Á miðvikudögum
múm-bræður með
tónleikaröð í MengiMelatónin
Tvær bragðtegundir
sítrónu og súkkulaði
Streitulausir dagar - Friðsælar nætur
ZenBev
Vísindaleg sönnun á virkni
Náttúrulegt
Triptófan
úr graskersfræjum
w
w
w
.z
en
b
ev
.is
-
U
m
b
oð
: v
it
ex
e
hf
Fæst í apótekum og heilsubúðum án lyfseðils
Betri og dýpri svefn
Engin eftirköst
eða ávanabinding
100% náttúruleg,
lífræn fæða án aukaefna
Triptófan verður að
melatónin og seratónin í líkamanum
ZenBev er einstök blanda innihaldsefna,
hrein graskersfræ hafa ekki sömu áhrif
Melatón ín minnkar líkur á blöðru hálskirt il skrabba meini - http://www.ncbi.nlm.nih.gov/pubmed/25107635
NÝTT
76 dægurmál Helgin 20.-22. mars 2015