Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.03.2015, Síða 78

Fréttatíminn - 20.03.2015, Síða 78
„Ég er alls ekki FH-ingur,“ segir Kristinn Óli Haraldsson, leikari og Haukamaður. Ljósmynd/Hari  Leikhús 15 ára hafnfirðingur Leikur í ÞjóðLeikhúsinu Þjóðleikhúsið frumsýnir í næstu viku leikritið Fjalla-Eyvind og Höllu í leikstjórn Stefan Metz. Einn af leikurunum er 15 ára Hafnfirðingur, Kristinn Óli Haraldsson. Kristinn segir það alger forréttindi að standa á sviði með mörgum af þekktustu leikurum þjóðarinnar. Hann er mjög áhugasamur um leiklistina og segist alveg geta hugsað sér að gera hana að ævistarfinu, en segir sjálfur að það séu einhver ár í það að hann þurfi að taka ákvörðun um það. Þ etta hefur gengið alveg ótrúlega vel,“ segir Krist-inn Óli Haraldsson um reynsluna af því að taka þátt í Fjalla-Eyvindi og Höllu í Þjóðleik- húsinu. „Ég leik hlutverk smalans og það er nógu stórt hlutverk fyrir mig,“ segir Kristinn þegar hann er spurður um stærð hlutverksins. „Það eru gríðarleg forréttindi að standa með þessum goðsögnum á sviði og mikil reynsla,“ segir Krist- inn. Hann er ekki alveg óreyndur í leiklistinni. Hann lék í Óvitum á síðasta ári í Þjóðleikhúsinu og hefur tekið þátt í fjölmörgum upp- ákomum í Sönglist, sem er leik- listarskóli fyrir ungt fólk. Einnig lék hann í kvikmyndinni Bjarn- freðarson. „Ég lék Georg Bjarn- freðarson þegar hann var ungur,“ segir Kristinn. Kristinn er Hafnfirðingur og er í tíunda bekk Hraunvallaskóla í Hafnarfirði. „Ég er Gaflari í gegn,“ segir Kristinn. „Krakkarnir í skól- anum eru ekkert að pæla í því sem ég er að gera. Ég þarf svolítið frí og hef fengið alveg ótrúlegan stuðn- ing frá umsjónarkennaranum mínum og öllum í kringum mig, foreldrum mínum, ömmu og afa og kærustunni,“ segir Kristinn sem er kominn á fast. Hann klár- ar grunnskólann í haust og hefur ákveðna skoðun á því í hvaða skóla hann fer. „Mig langar í Versló, þar er listabraut og ég held að það sé gaman að taka þátt í félagslífinu þar. Það er spennandi og væri draumur í dós að komast í þann skóla,“ segir Kristinn. „Annars kemur það bara í ljós. Ég er líka að æfa fótbolta með þriðja flokki Hauka og reyni að mæta á allar æf- ingar þrátt fyrir stíft prógramm í Þjóðleikhúsinu. Við erum að fara í keppnisferð til Spánar í sumar og ég ætla að reyna að komast með,“ segir Kristinn, sem var fljótur að svara hvort hann væri FH-ingur. „Ég er alls ekki FH-ingur,“ segir Kristinn Óli Haraldsson, leikari og Haukamaður. Fjalla Eyvindur er frumsýndur í Þjóðleikhúsinu í næstu viku og allar upplýsingar um miðasölu má finna á heimasíðu leikhússins, www.leikhusid.is Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Fær góðan stuðning frá fjölskyldunni og kærustunni Björk á tónleikum í New York í vikunni. Ljósmynd/ NordicPhotos/ Getty  TónLisT fLeiri LisTamenn bæTasT í hópinn Björk á Airwaves Skipuleggjendur Iceland Airwaves tilkynntu í vikunni um fleiri listamenn sem koma fram á hátíðinni í ár, en alls verða þeir um 200. Stóru frétt- irnar eru þær að Björk mun halda tónleika í Eldborgarsal Hörpu laugardaginn 7. nóvem- ber á hátíðinni. Miðum á tónleika Bjarkar verður dreift til miðahafa Iceland Airwaves án endurgjalds föstudaginn 6. nóvember kl. 12 í Hörpu eftir „fyrstur kemur, fyrstur fær“ reglunni. Eitt armband gildir sem einn miði á Björk. Einnig mun Bubbi Morthens koma fram ásamt hljómsveitinni Dimmu, en þetta er í fyrsta sinn sem Bubbi kemur fram á Airwaves. John Grant mun einnig halda tónleika ásamt Sinfóníuhljóm- sveit Íslands svo hátíðina mun ekki skorta stóru nöfnin í ár. Meðal annarra listamanna sem kynntir voru til sögunnar í vikunni eru Father John Misty frá Bandaríkjunum, The Pop Group frá Bretlandi, Norð- mennirnir í Sea Change ásamt íslensku sveitunum AmabA- dama, Vök, Ylju, Mammút og Agent Fresco. Iceland Airwaves-hátíðin verður haldin í sautjánda sinn í ár, dagana 4. til 8. nóvember og er undirbúningur í fullum gangi. Miðasalan er hafin á heimasíðu Iceland Airwaves og hvetja skipuleggjendur áhugasama um hafa hraðar hendur en undanfarin ár hefur selst upp á hátíðina í byrjun september. -hf Spíraðir hafrar Glúteinlausir Enginn viðbætur sykur Hrein hráefni www.rudehealth.is Matreiðslumaðurinn Árni Ólafur Jónsson vakti mikla athygli í sjón- varpsþáttunum Hið blómlega bú sem sýndir voru á Stöð 2 sumarið 2013. Í þáttunum hafði Árni gefið starf sitt sem matreiðslumaður í New York upp á bátinn og komið sér fyrir í Árdal í Borgarfirði. Þar lagði hann sig fram um að njóta þess sem landið hafði upp á að bjóða, ræktaði eigið grænmeti og fleira í þeim dúr. Í kjölfarið var svo gerð önnur þáttaröð þar sem Árni dvaldist í Árdal að vetri til. Árni er um þessar mundir búsett- ur í Amsterdam ásamt kærustu sinni. Þar eldar hann á stað sem heitir Scandinavian Embassy. „Þetta er kaffihús þar sem boðið er upp á besta kaffið í Amsterdam ásamt sí- breytilegum skandinavískum matseðli,“ segir Árni. Þrátt fyrir að búa í Amsterdam vinnur Árni ásamt samstarfsfólki sínu að þriðju þáttaröðinni af Hinu blómlega búi. Þau voru fimm mánuði í tökum síðasta sumar og nú er unnið að eftirvinnslu þáttanna. Stefnt er að því þáttaröðin verði sýnd í vor. Of Monsters and Men í ræktinni Meðlimir Of Monsters And Men undirbúa um þessar mundir tónleikaferð um allan heim sem mun fylgja á eftir nýjasta lagi þeirra Chrystals sem kom út í vikunni. Nýjasta plata sveitarinnar kemur út í sumar. Greinilegt er að meðlimirnir ætla að vera í góðu formi á ferðalaginu því söngkonan Nanna Bryndís hefur sést taka á því í World Class Laugum ásamt öðrum meðlimum undanfarna daga. Tónleika- ferðir eru örugglega líkamlegt púl og ætlar OMAM greinilega að vera tilbúin í ferðalagið. Rökkurró á Húrra Hljómsveitin Rökkurró sem vakti athygli fyrir plötuna Innra um jólin, heldur útgáfutónleika á Húrra í kvöld, föstudagskvöld. Söngkona sveitarinnar Hildur Kristín Stefánsdóttir vakti einnig mikla at- hygli fyrir lagið Fjaðrir sem hún flutti í Söngvakeppni sjónvarpsins fyrr í vetur. Rökkurró mun einnig halda aðra útgáfu- tónleika á Græna hattinum á Akureyri um næstu helgi. Tónleikarnir á Húrra í kvöld hefjast kl. 21. Rick Astley í Hörpu? Mjög háværar raddir hafa verið uppi þess efnis að hjartaknúsarinn og látúnsbarkinn Rick Astley haldi tónleika í Hörpu í maí. Þetta hefur ekki enn fengist staðfest en talið er að tónleikarnir verði þann 1. maí. Frægðarsól Astley skein skærast á níunda áratugnum þegar smellirnir Never Gonna Give You Up og Together Forever voru vinsælustu lög um heim allan. Á heimasíðu kappans segir að hann sé á miklu tónleikaferðalagi um Bret- land í sumar og talið er að hann ætli að hita upp fyrir túrinn með tón- leikum á Íslandi. Ef satt reynist er þetta hvalreki fyrir íslenska stuðbolta. Árni fluttur til Amsterdam 78 dægurmál Helgin 20.-22. mars 2015

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.