Iðnaðarmál - 01.04.1964, Side 2
Stjómuuariélag <Jslauds
lýkur UriÓja siarjsári
Stjórnunarfélag Islands var stofn-
að 24. janúar 1961, og með aðalfundi
laugardaginn 31. maí s.l. lauk þriðja
starfsári þess. Starfsárið telst nú milli
aðalfunda 26. ágúst 1963 og 31. maí
1964, eða rúmir níu mánuðir.
A aðalfundinum 31. maí 1964 voru
þeir stj órnarmanna, er ganga áttu úr
stjórn, einróma endurkjörnir.
Stjórn félagsins skipa því: Jakob
Gíslason raforkumálastj óri, formað-
ur, Gunnar J. Friðriksson, formaður
Félags ísl. iðnrekenda, varaformaður,
Sveinn Björnsson, framkvstj. Iðnað-
armálastofnunar Islands, Gísli Y.
Einarsson, skrifstofustj óri Kassagerð-
ar Reykjavíkur, og Guðmundur Ein-
arsson, framkvæmdastjóri Islenzkra
aðalverktaka. Framkvæmdastj. SFl
er Árni Þ. Árnason.
Auk stjórnarmanna skipa fram-
kvæmdaráð félagsins 7 menn, kosnir
á aðalfundi stjórninni til aðstoðar í
málum félagsins. Voru þeir allir end-
urkjörnir utan Björn Halldórsson,
framkvstj. Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna, er beðizt hafði undan
endurkosningu. I hans stað var kos-
inn Einar G. Kvaran framkvstj. Auk
stjórnarmanna skipa því fram-
kvæmdaráð félagsins: Einar Bjarna-
son ríkisendurskoðandi, Einar G.
Kvaran, framkvstj. Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna, Erlendur Einars-
son, forstjóri Sambands ísl. sam-
vinnufélaga, Guðmundur B. Olafsson,
skrifstofustjóri Framkvæmdabanka
Islands, Hjálmar Blöndal, hagsýslu-
stjóri Reykjavíkurborgar, Jón H.
Bergs, forstjóri Sláturfélags Suður-
lands, í stjórn Vinnuveitendasam-
bands íslands, og Snorri Jónsson,
framkvæmdastj óri Alþýðusambands
íslands.
Endurskoðendur voru kjörnir:
Glúmur Björnsson, skrifstofustjóri
Raforkumálaskrifsíofunnar, og Þórir
Einarsson, viðskiptafræðingur Iðnað-
armálastofnunar Islands.
Sýningin „Skrifstofutækni 1963"
Fyrsta verkefni Stjórnunarfélags-
ins á liðnu starfsári var að gangast
fyrir sýningunni „SKRIFSTOFU-
TÆKNI 1963“.1 Sýningin, er stóð
yfir dagana 13.—22. september 1963,
var fyrsta skrifstofutæknisýning sinn-
ar tegundar, sem haldin hefur verið
hérlendis, þar sem innflytjendur
kynntu helztu nýjungar á boðstólum,
ætlaðar til að auka hagræði í skrif-
stofustörfum. Sýnd voru margháttuð
hjálpartæki og vélar varðandi skrif-
stofuhald.
I hverri hinna 24 sýningardeilda
var starfslið frá viðkomandi fyrirtæki
eða stofnun til leiðbeiningar og upp-
lýsinga um þá hluti, er þar gat að líta.
Einnig var starfrækt almenn upplýs-
ingamiðstöð, og veitingasala var opin
fyrir sýningargesti og starfsfólk á
opnunartíma kl. 14—19 dag hvern.
Tvö ríkisfyrirtæki höfðu sýningar-
deildir. Póstur og sími kynnti nýjustu
gerðir símatækja, fjarrita, skipti-
borða og sjálfvirkra stöðva o. fl., auk
þess sem starfrækt var umfangsmikil
símaþjónusta fyrir sýninguna. Iðnað-
armálastofnun íslands kynnti fyrstu
íslenzku staðlana um pappírsstærðir
og umslög, en pappír og pappírsvinna
er snar þáttur skrifstofustarfa, og
reglur til samræmingar Jjar á eru
mjög til aukins hagræðis.
Aðsókn var mjög góð. Á fjórða
þúsund gestir sóttu sýninguna þá átta
daga, er hún stóð yfir.
Námskeið í eyðublaðatækni
Dagana 18.—23. nóvember hélt
SFÍ námskeið í eyðublaðatækni og
eyðublaðagerð.- Tvennt hafði eink-
um orðið til að minna á þörfina á
námskeiði í eyðublaðatækni. Annað
var, að IMSÍ hafði gengizt fyrir
stöðlun á pappír og pappírsvörum og
lokið við frumvarp að stöðlun um
þau mál. En með tilkomu staðlaðra
pappírsstærða er lagður grundvöllur
að því að koma þessum málum í
1 Sjá Félagsbréf SFÍ nr. 9 og IÐNAÐ-
ARMÁL 4.-5. hefti 1963.
2 Sjá Félagsbréf SFÍ nr. 9 og 10 og IÐN-
AÐARMÁL 4.-3 hefti 1963.
Framh. á 65. bls.
Stjórn SFl og jramkvstj. Frá vinstri: Arni Þ. Arnason, framkvstj. SFI, GuSmundur Ein-
arsson jramlcvstj., Gísli V. Einarsson skrijstojustj., Jakob Gíslason rajorkumálastj., jorm.
SFI, Sveinn Björnsson jramkvstj. og Gunnar J. FriSriksson framkvstj.
38
IÐNAÐARMAL