Iðnaðarmál - 01.04.1964, Blaðsíða 31
Mesti vinnsluhraði er breytilegur
frá vél til vélar, en sem hámarki má
reikna með að við vinnslu í harð-
málm séu afköstin 1 sm3/mín.Neista-
gapið verður þá 0,2 mm og yfirborðs-
fínleiki hins unna flatar 10 /im (mík-
rometri). Stilli maður á fínvinnslu,
breytast ofangreind tölugildi í 0,75
mm3/mín. 0,01 mm og 1 /j.m. Afköst-
in á wolframkarbít eru ca 30%
minni.
Eir er aðallega notaður í skautið
(verkfærið), nema ef gera þarf smá-
göt, þá er notaður wolfram- eða irid-
iumþráður. Minnsta gat, sem með
góðu móti er hægt að gera þannig
í harðmálm, hefur þvermálið 0,12
mm, og er þá notaður þráður (í
skautið) með þvermálið 0,1 mm.
Sem torleiðivökva er notazt við
parafínolíu, steinolíu eða aðra álíka
„míneraI“-olíu.
Vélar
Mynd 5. Ensk vél (sparcatron).
Mynd 6. Tæki sett á gamlan rennibekk til
vinnslu á öxlum.
Mynd 7. Stansdýna úr hertu stáli ásamt
tilheyrandi skauti (sjá má slitið
á endum skautsins). Vinnslutím-
inn var hér 10 klst.
Mynd 8. Pressumót fyrir súrgas-ventil
(annar helmingurinn) úr hertu
stáli ásamt skauti. Vinnslutfmi
12,1 klst. með 80% sjálfvirkni, en
2,2 klst. fóru í að gera skautið.
Samsvarandi tími fyrir áðumot-
aða aðferð er 17 klst. án sjálf-
virkni.
Mynd 9. Pressumót í hertu stáli til fram-
leiðslu á kaffiskeiðum með til-
heyrandi skafti úr eir. (Götin 4,
sem sjást á skautinu, eru fyrir
torleiðivökvann að komast á milli
skauts og smfðaefnis).
Stjórnunarfélag íslands ...
Framh. af 38. bls.
skipulegra horf en verið hefur. Hitt
var sýningin „Skrifstofutækni“. Bæði
stöðlunin og sú vélvæðing og sjálf-
virkni, sem fram kom á sýningunni,
hafa þann tilgang að verða til aukins
hagræðis og sparnaðar í hinum um-
fangsmiklu og ört vaxandi skrifstofu-
störfum í nútíma þjóðfélagi.
Af efni því, sem tekið var fyrir á
námskeiðinu, mætti m. a. nefna: Þró-
un eyðublaða, útgjöld og kostnaður
vegna þeirra. Gerð var grein fyrir
mælikerfum, efni, letri, setningu og
tækjum við prentverk. Þá var skýrð
þróun og gildi pappírsstaðla. Tekin
voru til meðferðar kerfi og stöðlun í
nútíma eyðublaðatækni og þátttak-
endum falið að leysa verkefni, t. d. að
teikna eyðublöð og ganga frá hand-
riti og próförk. Rædd var skipulagn-
ing eyðublaðaþjónustu sem sérhæft
starfssvið og kröfur, sem til þess eru
gerðar. Einnig var tekin fyrir skrán-
ing eyðublaða og varzla, kerfisbund-
in (stöðluð) uppsetning á vélrituðu
efni o. fl.
Ymis gögn til leiðbeiningar og
hjálpar við gerð eyðublaða voru af-
hent þátttakendum.
Leiðbeinendur og kennarar voru
Sverrir Júlíusson rekstrarhagfræðing-
ur, er skipulagði námskeiðið, og Haf-
steinn Guðmundsson prentsmiðju-
stjóri.
Námskeiðið var til húsa í Iðnaðar-
málastofnun íslands.
Þátttaka var takmörkuð við 28, og
komust færri að en vildu.
Almennir félagsfundir
Á starfsárinu voru haldnir fjórir
almennir félagsfundir, sem til var
boðað með fundarboði.
Umbœtur í opinberum rekstri
Laugardaginn 23. nóvember s.l.
var haldinn almennur félagsfundur
að Hótel Sögu, þar sem Gunnar Thor-
oddsen, fjármálaráðherra, flutti er-
indi, er nefndist: Umbætur í opinber-
um rekstri.
Á fundinum komu fram óskir til
IÐNAÐARMÁL
65