Fréttatíminn - 08.05.2015, Side 18
www.forlagid.i s | Bókabúð Forlags in s | F i sk i s lóð 39
Mest selda bó
k
ársins!
janúar – apríl 2015
1 heildarlisti
✶ ✶ ✶ ✶ ✵
Steinþór GuðbjartSSon / MorGunblaðið
„rauk beint í fyrsta sæti á metsölulistum …
Snillingur á sínu sviði.“
Kolbrún berGþórSdóttir / Kiljan
„drulluspennandi … rænir þig svefni.“
eGill HelGaSon / Kiljan
Þau hafa verið gift í 30 ár og hafa
gengið í gegnum súrt og sætt saman.
Þau eiga eina dóttur saman, en fyrir
átti Bjartmar tvær dætur. „Ég er kom-
inn með sjö barnabörn,“ segir Bjart-
mar. „Ég var búinn að afgreiða þessa
hluti svolítið áður en við María kynnt-
umst,“ segir hann og glottir. „Ég vildi
ekki hafa öll eggin í sömu körfunni,
þetta kallast dreifð eignaraðild. Þessi
börn eru að verða eldri en við.“
Bjartmar tekur undir þau orð
blaðamanns að hann sé farandlista-
maður. „Já ég hef bara unnið við það
sem mér hefur dottið í hug frá því
ég var unglingur,“ segir hann. „Ég
teiknaði hjá Vísi og Þjóðviljanum í
gamla daga. Ég tók samt sveinspróf í
málaraiðninni þegar meistarinn minn
sagði mér að treysta ekki á listina alla
ævi. Ég fór svo til Óðinsvéa 1992 þar
sem ég lærði listmálun.“
„Við flúðum þegar Davíð Oddsson
tók við,“ segir María.
„Þetta hafði staðið lengi til,“ segir
Bjartmar. „Ég opnaði vinnustofu þar
og ég sannaði fyrir mér að ég gat lifað
af þessu.“
Af hverju komuð þið þá heim á end-
anum?
„Dóttir okkar var að verða ungling-
ur og foreldrar mínir voru orðnir veik-
ir,“ segir Bjartmar. „Mamma dó svo
stuttu eftir að við komum heim, og
við fluttum austur með gamla mann-
inn. Hann vildi alltaf fara þangað og
við slógum bara til. Fengum húsið
þar og hann fékk að deyja í sínu rétta
umhverfi þremur árum síðar,“ segir
Bjartmar.
Hafa skilið í hálftíma
Eftir að þau hjónin komu í bæinn
ákvað María að fara að vinna með
sínum manni. „Ég er að vinna fyrir
Bjartmar Guðlaugsson,“ segir hún
og brosir blítt. „Ég er búin að vera
að pikka inn bók undanfarna mánuði
sem er eftir Bjartmar. Hann er búinn
að vera að skrifa þessa bók í tuttugu
ár með hléum og hún kemur út innan
tíðar. Svo er hann með margar aðrar í
hausnum,“ segir hún.
„Þetta er lífsreynslutengd lyga-
saga,“ segir Bjartmar.
Hefur þitt líf ekki verið eins og
lygasaga, Bjartmar?
„Jú ætli það ekki,“ segir hann.
Er ekki líf og fjör að vera eiginkona
þessa manns, María?
„Jú bæði líf og fjör, en ég hef líka
skilið við hann í hálftíma hér og þar,“
segir hún. „Hann getur verið pískari.
Hann er þráhyggjusjúklingur og þarf
alltaf að vera að. Ég þarf stundum að
hvíla mig,“ segir María.
Þarftu ekki að passa þig, Bjartmar?
„Jú. Ég fékk áfall fyrir nokkrum
árum,“ segir hann. „Ég er flogaveik-
ur. Það sem er að mér og hef fengið
greiningu við, er það að hægra heila-
hvelið er kol-ofvirkt. Það starfar „non
stop“. Ég hef verið svona alla tíð og
aldrei nein svör hafa fengist við þessu
fyrr,“ segir Bjartmar. „Ég vinn bara
og vinn og drekk kaffi, og gleymi
að éta í 16 eða 17 tíma ef ég er ekki
minntur á það. Þetta er það sem ég
vil bara gera,“ segir hann. „Ég gæti
alveg setið á einhverju kaffihúsi og
skitið út félagana. Ég nenni því ekki.
Ég er einrænn maður og þetta er mín
veröld. Ég kann ekki að hneykslast á
öðru fólki.“
Er trúað fyrir lögunum
Fyrr á árinu var Óskalag þjóðarinnar
valið á RÚV og var það lag Bjartmars,
Þannig týnist tíminn, sem hlaut þann
titil. Bjartmar segist mjög þakklátur
og þetta sé enn að sér á óvart.
„Þetta eru mín nóbelsverðlaun frá
þessari þjóð,“ segir hann.
„Hann var baksviðs í Alþýðuhús-
inu í Vestmannaeyjum að fara að
spila á tónleikum og vissi ekki neitt,“
segir María. „Við mæðgurnar kom-
um hoppandi og skoppandi með frétt-
irnar, hlæjandi og grátandi.“
„Ég var staddur á staðnum þar sem
ég byrjaði. Þar sem ég samdi mitt
fyrsta lag. Ég er mjög þakklátur,“ seg-
ir Bjartmar. „Þetta kom mér gjörsam-
lega í opna skjöldu. Mig hefði aldrei
grunað að þetta lag fengi þessa viður-
kenningu,“ segir hann. „Mér finnst
eins og mér sé trúað fyrir þessum
lögum mínum. Þess vegna hef ég
aldrei selt lögin mín í auglýsingar eða
slíkt. Ég má ekki subba út hugsanir
mínar, og lög eru ekkert annað en
hugsanir. Þá hætta þau að hafa mein-
ingu,“ segir Bjartmar. „Mér bauðst á
sínum tíma að selja lögin mín til ein-
hvers fyrirtækis, eins og sumir gerðu
á sínum tíma. Því þá vissi ég að ég
mundi sitja á 80 feik milljónum,“ seg-
ir hann. „Ég hefði getað gert það og
gert það sem mér dytti í hug, fyrir
vextina. Ég þarf þess ekki. Í staðinn
líður mér betur í hjartanu og tek það
ekki nærri mér að hafa verið kallaður
félagsskítur,“ segir Bjartmar. „Ég er
einn af rétthærri mönnum í STEFi
og mér finnst bara gott að hafa mín
hugverk þar. Ég þakka líka fyrir það
að hafa haldið þokkalega hreinni
hugsun,“ segir hann. „Ég hef aldrei á
ævinni eignast óvini. Framboðið hef-
ur alveg verið nægt, en ég hef ekki
áhuga á því að lána eitt megabæt af
heilanum á mér til þess að dánlóda
svoleiðis týpum,“ segir Bjartmar.
Tónlistin er alltaf til, þó hún
seljist ekki
Bjartmar ætlar að halda áfram að
lifa sínu lífi á sama hátt og hann
hefur alltaf gert. Hann lítur björt-
um augum fram á veginn og á um-
hverfið í kringum sig. „Tónlistar-
menn á Íslandi geta ekki kvartað,“
segir hann. „Við erum með fullt
af húsum til að spila í. Hvert hitt-
ið á fætur öðru á erlendri grundu.
Krakkarnir sem eru að uppfylla
drauma okkar gömlu popparanna.
Við erum með lögvarinn höfundar-
rétt hjá STEFi. Við erum með félag
í kringum okkur og tónlistarskóla
í hverju einasta bæjarfélagi,“ segir
hann. „Hvað erum við að kvarta?
Svo segja menn, tónlistin er búin
því geisladiskurinn er búinn. Nei.
Þetta verður ekki til á geisladisk-
um, þetta verður til í höfðinu. Tón-
list kom löngu áður en tæknin kom.
Formattið kemur og fer, en tónlistin
er og verður alltaf til,“ segir Bjart-
mar Guðlaugsson listamaður.
Sýning Bjartmars er í Gallerí firði
og stendur fram á sunnudag.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Bjartmar og María hafa
staðið hlið við hlið í
gegnum lífið. Ljósmynd/
Hari.
Þetta er
hjálparlaus
tilfinning að
heyra svona
fréttir af
sínum nán-
ustu. Bara
hringingin.
Stúlkan er
fædd, en. Þá
tekur biðin
við.
18 viðtal Helgin 8.-10. maí 2015