Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.05.2015, Blaðsíða 38

Fréttatíminn - 08.05.2015, Blaðsíða 38
Allt í einu var ég bara kominn með kennarann heim til mín að vekja mig. E inkunnarorð deildarinnar eru: Enginn getur allt en allir geta eitthvað,“ segir Kristín María Indriðadóttir, verkefnastjóri fjölgreinadeildar Lækjarskóla sem tekur á móti mér í Menntasetrinu við lækinn í Hafnarfirði. Hún lætur sér ekki nægja handaband heldur faðmar hún mig eins og við séum aldagamlar vinkonur. Í fjölgreina- deildinni eru nemendur úr 9.-10. bekk grunnskólanna í Hafnarfirði en þeir glíma við sértæka námserf- iðleika og tilfinninga- og hegðunar- röskun. Á síðustu árum hefur hóp- urinn breyst að því leyti að flestir nemendur eru í ofantöldum hópi en færri sem eiga við félagsleg vanda- mál að stríða svo sem vegna eineltis eða annarra tengdra þátta. Það eru frímínútur þegar mig ber að garði og drengirnir að gæða sér á nýbökuðum lummum en fyrr um morguninn höfðu þeir fengið morg- unkorn. Þeir borða allir morgunmat í skólanum en foreldrar þeirra greiða sérstakan fæðiskostnað. Deildin var stofnuð árið 2004 þegar úrræði vant- aði fyrir 3-4 drengi í 10. bekk sem áttu í félags- og námslegum erfið- leikum í sínum skólum í Hafnarfirði. Fjöldi nemenda á hverju ári hfur farið allt frá 13 og upp í tæplega 30. Sækja nemendur heim í rúm Eftir frímínútur er drengjunum skipt í tvo hópa og Kristín, eða Stína eins og hún er alltaf kölluð, fer með mér í tíma hjá 10. bekkingunum. Misjafnt er hvort þeir byrjuðu í fjöl- greinadeildinni í 10. bekk eða voru þar einnig á fyrra ári. Sumir þeirra eru kvíðnir, eru með skólaleiða og sjá í byrjun jafnvel ekki tilgang með því að mæta í skólann. Yfirleitt eru það nemendur sem höfðu mætt illa í grunnskóla árin áður vegna vanlíð- unar. Ég segi drengjunum að ég hafi heyrt að ef nemendur fjölgreina- deildar ætli að sofa af sér skóla- daginn fari kennari, í samráði við foreldra, hreinlega heim til þeirra og sæki þá, og spyr hvort einhver hafi lent í þessu. Sem betur fer hef- ur ekki komið til þess í ár en einn þeirra segist hafa fengið kennara heim þegar hann var í 9. bekk. „Það var frekar skrýtið. Allt í einu var ég bara kominn með kennarann heim til mín að vekja mig,“ segir hann og þurfti ekki nema þetta eina skipti til. Hann mætti alltaf eftir þetta. Stína útskýrir þessa aðferð: „Við viljum gefa þeim skýr skilaboð um Sauma sínar eigin hettupeysur Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is Opið: Mán. - föst. kl. 09-18 Laugardaga kl. 11-15 innréttingar danskar í öll herbergi heimilisins Fjölbreytt úrval aF hurðum, Framhliðum, klæðningum og einingum, geFa þér endalausa möguleika á að setja saman þitt eigið rými. sterkar og glæsilegar Ef nemendur við fjölgreinadeild Lækjarskóla í Hafnarfirði mæta ekki í skólann fer kennarinn þeirra heim og sækir þá. Sem betur fer gerist það þó ekki oft. Markhópur fjölgreinadeildar er nemendur í efstu bekkjum grunnskóla með náms- og hegð- unarerfiðleika sem hefur gengið illa að fóta sig í hefðbundnum bekkjum. Drengirnir sauma sjálfir á sig hettupeysur, smíða sín eigin hjólabretti frá grunni og elda ýmsar kræsingar. Þeir eru allir sammála um að þeim líði mun betur í fjölgreinadeildinni en í sínum gamla skóla og eru áhugasamari um námið. að þeirra sé óskað í skólanum.“ Mikið er lagt upp úr verklegum greinum í nám- inu og eru þær mun stærri hluti skóladagsins en í hefðbundnum deildum. Þennan daginn eru 10. bekkingarnir að vinna sjálfsmyndir en aðra daga eru þeir til dæmis að sauma. Allir hafa þeir saumað sér sína eigin hettupeysu og er einn drengurinn einmitt í sinni peysu. Þetta eru peysur sem þeir nota út veturinn og myndi óvant auga ekki halda annað en að peysan væri saumuð af fagmanni, sem þessir drengir reyndar jafnvel verða. Tveir í þess- um hópi stefna á að verða kokkar og hafa í gegnum fjölgreinadeildina fengið að fara í verknám á veit- ingastaðnum Skútunni. „Mér hefur alltaf fundist gaman að elda og hefur langað að verða kokkur, frá því ég var í 5. bekk,“ segir annar þeirra. Það stend- ur ekki á svörum þegar ég spyr þá um uppáhalds matinn, annar segir „lasagna“ en hinn „humar.“ Smekkmenn! Annar stefnir á nám í Flensborgar- skóla, er sérstakur áhugamaður um sagnfræði og hefur farið með Stínu úr fjölgreinadeildinni á fund námsráðgjafa í Flensborg til að kynna sér námið þar. Stína hefur stýrt deildinni frá 2006 og segir hún að til að byrja með hafi „prinsarnir hennar“, eins og hún kallar þá, alltaf verið settir neðst í bunkann þegar kom að umsóknum í framhaldsskóla en það sé ekki staðan lengur enda hafi hún barist fyrir því að þeir kæmust að í öðrum skólum eftir að grunn- skóla lýkur, rétt eins og aðrir nemendur í grunn- skólum. Eins og staðan er nú fara rúmlega 90% nemenda deildarinnar í framhaldsnám, ýmist í Iðn- skólann í Hafnarfirði, Flensborgarskóla, Borgar- holtsskóla eða Menntaskólann í Kópavogi. Meðaleinkunnin hækkaði til muna Sérstaða námsins í fjölgreinadeild kemur fram á ýmsan hátt. Ef nemandi er illa upplagður, vill ekki fara eftir fyrirmælum eða truflar aðra, er svigrúm til að vinna með hann einan. Sumir nemendur Framhald á næstu opnu Kristín María Indriðadóttir hefur frá 2006 stýrt fjöl- greinadeild Lækjarskóla í Hafnarfirði. Ljósmyndir/Hari Hér verður bíll til á smíðaverkstæðinu, bíll sem nemandi teiknaði og smíðaði frá grunni. 38 úttekt Helgin 8.-10. maí 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.