Fréttatíminn - 08.05.2015, Blaðsíða 78
Ljómandi húð
umhirða húðar Helgin 8.-10. maí 20156
Aquasource frá Biotherm
Dagkrem sem veitir raka í fimm lögum húðar.
Gefur húðinni djúpvirkan raka og gerir hana
frísklegri. Án parabena og steinefnaolíu.
Einnig fáanlegt fyrir þurra húð.
Rénergie
multi-lift frá
Lancôme
Dagkrem sem styrkir, þéttir
og mýkir húðina. Inniheldur
Cyathea Medullaris þykkni
og Guanosine. Cyathea
medullaris stuðlar að
frumuendurnýjun og minni
öldrun í húð. Guanosine
er uppspretta orku
fyrir nýmyndun próteina og
glúkósa. Fáanlegt í þremur
silkimjúkum áferðum.
Absolue yeux
frá Lancôme
Lúxus alhliða endur-
nýjandi augnkrem sem
vinnur á öllu augnsvæðinu.
Minnkar hrukkur, bauga og
mýkir grófa húð. Útkoman
er einstök.
Forever light
creator frá YSL
Mjúkt andlitsvatn sem róar
húðina og undirbýr hana
fyrir krem. Þéttir og styrkir,
vinnur á línum og eyðir
þreytumerkjum.
Forever Youth
Liberator
krem frá YSL
Andlitskrem sem vinnur
á línum, gefur ljóma, eyk-
ur teygjanleika og styrkir
húðina. Kremið hentar
öllum húðgerðum, einnig
viðkvæmum.
Top secret
all in one BB
krem frá YSL
BB kremið leiðréttir og
hylur ójöfnur í húð, jafnar
húðlitinn, nærir og raka-
fyllir húðina. Kremið má
nota eitt og sér eða undir
farða. Fáanlegt í tveimur
litum. SPF 20/pa++
Liquid glow
frá Biotherm
Þurr olía sem er góð
viðbót við kremið.
Blandaðu einum dropa
í kremið þitt til að
fá aukinn ljóma og
andoxandi vrkni. Hentar
fyrir allar húðgerðir og
allan aldur.
Absolue
Precious
Cells Olía frá
Lancôme
Öflugur jurtaolíu kok-
teill sem stuðlar að
mikilli endurnýjun og
ljóma. Smýgur fljótt
og auðveldlega inn í
húðina.
Aquasource total eye
revitalizer frá Biotherm
Nýtt augnkrem sem kælir samstundis húðina.
Dregur úr þrota og veitir fallegan ljóma, raka
og mýkt á augnsvæðið.
Skref 1:
Tannburstun
Ég hef talað um það áður á youtube-
stöðinni minni að það fyrsta sem ég geri
er að tannbursta. Það er frekar pirrandi
að vera búin að hreinsa húðina en fá svo
tannkremið út á kinn.
Skref 2:
Augnhreinsun
Augnhreinsun er mikilvægasta verkið
í öllu húðhreinsunarferlinu. Augun eru
meðal viðkvæmustu líffæra okkar og ef
við hreinsum ekki augnsvæðið vel getur
það ýtt undir sýkingar ef við bætum bara á
farðann daginn eftir. Ekki nota húðhreinsi
á augun nema að það standi á pakkn-
ingunni að það sé óhætt. Augnhreinsar
eru mun mildari en þeir sem við notum
á húðina okkar. Ég bleyti þrjár bómullar-
skífur og hef þær rakar en ekki rennandi.
Ég set smá af augnfarðahreinsi í þær og
læt liggja á auganu í nokkrar sekúndur svo
að hreinsirinn nái að leysa upp maskarann
og restina af förðuninni. Svo strýk ég létt
af augunum þar til förðunin er farin af.
Skref 3:
Hreinsir sem hentar
Til eru óendanlega margar gerðir af
húðhreinsum og því ættu allir að
geta fundið einn sem hentar.
Normal til þurr húð: Kremhreins-
ar og olíuhreinsar, þar sem þeir
þurrka ekki húðina enn frekar
og eru mildir.
Blönduð til feit húð: Froðu-
hreinsar, þar sem að þeir
hjálpa við að jafna út olíuna á
húðinni.
Skref 4:
Andlitsvatn
Ég hef skiptar skoðanir á and-
litsvatni en það eru kannski
ekki allir sem þurfa á því
að halda. Andlitsvatn kemur
aftur jafnvægi á sýrustig húðar eftir
hreinsun en margir hreinsar í dag eru
ekki að koma húðinni úr jafnvægi.
Andlitsvatn er samt sem
áður æðis-
legt
til
Húðhreinsun skiptir öllu máli
Iðunn Jónasardóttir er sjálfstætt starfandi förðunarfræðingur og
bloggar hún um allt sem tengist snyrtivörum með skemmtilegum
hætti á www.idunnjonasar.com. Fréttatíminn fékk hana til að útbúa
leiðarvísi yfir þau grundvallaratriði sem skipta máli þegar kemur
að hreinsun húðarinnar, kvölds og morgna.
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
að nota á morgnana til að hreinsa húðina
aðeins áður en maður farðar sig eða til
að ná svefnolíunni af andlitinu og nota þá
einungis andlitsvatnið en ekki skref 2 og 3
hér að ofan.
Skref 5:
Augnkrem
Ástæðan fyrir að ég hef það á undan
öðrum kremum er svo að það sé ekki
annað krem á fingrunum okkar, það er
samt sem áður enginn skaði ef þið setjið
kremið á fyrst. Passið að augnkremið fari
ekki á augnlokin sjálf. Húðin okkar er svo
þunn og viðkvæm í kringum augun að
hún dregur í sig kremið þrátt fyrir að það
fari ekki á augnlokin sjálf. Gott er að setja
pínulítið af augnkreminu á baugfingur
og dreifa úr með að strjúka létt frá innri
augnkrók að gagnauga, þannig dragið þið
úr bólgum og þrota í leiðinni.
Skref 6:
Serum
Það er enginn tilgangur að setja serum yfir
krem. Serum fer dýpra í húðina því skal
bera það á húðina á undan öðrum efnum.
Skref 7:
Andlitskrem
Mikilvægt er að nota krem sem hentar
aldri og húðgerð. Það á ekki að þurfa
meira en rétt um dropa á stærð við
eina krónu af kremi ef það hentar ykkar
húðgerð vel. Ef ykkur finnst þið þurfa
meira og eruð þurrar þá er spurning hvort
að þið þurfið meira raka eða næringu.
Árstíðirnar geta einnig haft áhrif á hvernig
krem við notum. Veturinn er þurrari en
sumartíminn og því þarf maður oft að nota
meiri raka eða næringu á veturna. Ekki
gleyma að bera kremið ykkar alveg niður á
háls, bringu og helst niður að geirvörtum.
„Ef það er eitthvað sem aldrei á að sleppa, þá er
það að hreinsa húðina á kvöldin fyrri svefn. Ég skal
alveg vera hreinskilin og viðurkenni að ég nenni
ekki alltaf að hreinsa húðina á morgnana en
á kvöldin er það algjört skilyrði,“ segir
Iðunn Jónasardóttir. Mynd/Hari