Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.05.2015, Qupperneq 20

Fréttatíminn - 08.05.2015, Qupperneq 20
Sprenghlægileg verðlaunaSaga ✶✶✶✶ Árni Matthíasson / Morgunblaðið ✶✶✶✶ Halla Þórlaug Óskarsdóttir / Fréttablaðið ✶✶✶✶ Arngrímur Vídalín / DV www.forlagid.i s | Bókabúð Forlags in s | F i sk i s lóð 39 hörkuSpennandi furðuSaga ✶✶✶✶ „... sígilt ævintýri, klassísk fantasía, stórskemmtileg og spennandi ...“ Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir / Fréttablaðið (um Hrafnsauga) ✶✶✶✶ Árni Matthíasson / Morgunblaðið (um Draumsverð) Bækur sem rjúfa aldursmúrinn Apríl 2015 1 Ungmenna- bækUr Apríl 2015 2 Ungmenna- bækUr Fagnar hverju ári sem hún fær gefið Gunnhildur Óskarsdóttir var 38 ára gömul þriggja barna móðir þegar hún greindist fyrst með brjóstakrabbamein. Hún hefur greinst þrisvar síðan þá en í dag, 17 árum síðar, ber hún engin einkenni sjúkdómsins. Hún segir bjartsýni vera beittasta vopnið í baráttunni við sjúkdóminn en fjölskylda, vinir og „Göngum saman“ verkefnið hafi veitt henni styrk til að láta krabbameinið ekki yfirtaka lífið. G unnhildur Óskarsdóttir, deildarforseti kennaradeild-ar Háskóla Íslands, var 38 ára gömul þriggja barna móðir þegar hún greindist með brjóstakrabbamein. Hún var nýbúin að taka við stöðu lektors við Kennaraháskóla Íslands og lífið hafði sjaldan verið bjartara. „Í dag eru akkúrat 17 ár síðan. Ég fann dæld í brjóstinu og fór beint í skoðun. Viku síðar fékk ég að vita að ég væri með krabbamein. Þetta var auðvitað algjört áfall. Fyrst var tekinn fleygur úr brjóstinu en svo kom fljótlega í ljós að meinið hafði dreift sér út í eitla. Þá var allt brjóst- ið tekið og ég fór í kjölfarið í lyfjameð- ferð,“ segir Gunnhildur. Ákvað að láta veikindin ekki yfir- taka lífið Lyfjameðferðin gekk vel og smám sam- an varð lífið eðlilegt. Allt þar til Gunn- hildur greindist aftur fjórum áður síðar. Hún segir það hafa verið mikið áfall að greinast aftur, ekki síður en að fá fyrstu greininguna. Meinið hafði dreift sér í hálsliðina og GUnnhildur var sett á bein- astyrkjandi lyf og í hormónameðferð. Sú meðferð gekk vel en fjórum árum síðar, árið 2006, kom í ljós að brjóstakrabba- meinið hafði líka dreift sér víðar í bein og í lifrina. „Þá fór ég í nýja lyfjameðferð sem lauk ekki fyrr en í fyrra, sjö og hálfu ári síðar, en þá var ákveðið að prófa að hætta meðferð og sjá hvað gerðist. Það hefur ekkert gerst síðan en við vitum í raun ekki hvort sjúkdómurinn er farinn eða hvort hann sé í dvala,“ segir Gunnhildur sem ákvað þarna, þegar hún greindist í þriðja sinn, að hún gæti ekki látið sjúkdóminn stjórna lífi sínu. „Ég ákvað að ég yrði ein- hvern veginn að reyna að lifa með þessu og bara vona það besta. Að reyna að láta veikindin og áhyggjurnar ekki taka yfir lífið. En auðvitað hélt ég þarna að nú færi að síga hratt á seinni hluta ævinnar, að ég ætti ekki langt eftir. En lyfin fóru strax að virka og náðu að halda sjúkdómnum niðri, ég virðist bara vera ein af þeim ótrúlega heppnu.“ Fóru 22 konur saman til New York Gunnhildur segir fjölskylduna og sína góðu vini hafa verið hennar helsta styrk í gegnum veikindin en „Göngum saman“ hópurinn hefur líka hjálpað henni mikið. „Ég var að ljúka doktorsnámi þegar ég greindist í þriðja sinn og stuttu síðar gaf maðurinn minn mér golfferð til Flórída með vinkonum mínum í útskriftargjöf. Í þeirri ferð sá ég Oprah Winfrey þátt í sjónvarpinu þar sem verið var að lýsa göngu í New York sem farin var til styrkt- ar rannsóknum á brjóstakrabbameini. Þá ákvað ég að ég myndi einbeita mér að því í vinna í sjúkdómnum og að ég skyldi fara í þessa göngu. Ári síðar komu tuttugu og ein kona með mér til New York, vinkonur mínar, dóttir mín og mágkona mín, og við gengum 63 km á tveimur dögum. Þar ákváðum við líka að byrja þetta verkefni á Íslandi og styðja þar með íslenskar rann- sóknir og í fyrstu „Göngum saman“ göng- unni söfnuðum við þremur milljónum til rannsókna á brjóstakrabbameini,“ segir Gunnhildur en hluti hópsins hefur gengið saman vikulega frá árinu 2007 og hópur- inn fer sífellt stækkandi. Rannsóknir gefa fólki von Gunnhildur segir svona verkefni hafa heilandi áhrif á konur með brjósta- krabbamein. „Það skiptir svo miklu máli að fá von og vita að það er verið að stunda rannsóknir sem á endanum gætu leitt til lækningar. Svo skiptir það mjög miklu máli fyrir aðstandendur þeirra sem eru að glíma við svona illvígan sjúk- dóm að geta lagt lið sitt í baráttunni og það er ekki síður fólk sem ekki hefur greinst sem vinnur að þessu verkefni. Stundum er svo erfitt að vita hvað maður á að gera til að hjálpa en þarna er virki- lega hægt að leggja lið,“ segir Gunnhild- ur en „Göngum saman“ eru grasrótar- samtök þar sem allir gefa vinnuna sína og allt fé sem safnast í göngunni fer til rannsókna. „Þessar grunnrannsóknir sem við styrkjum gefa svo mikla von því án þeirra væri engin von um lækningu og þökk sé þeim þá er hægt að lifa með sjúkdómnum í dag.“ Mikilvægast að koma börnunum til manns Gunnhildur segir bjartsýni hafa verið hennar öflugasta vopn á því erfiða ferða- lagi sem veikindin eru. „Það skiptir mestu máli að gefa aldrei upp vonina. Ég hef reynt að ýta til hliðar öllum áhyggjum og einbeita mér að því hversu vel gengur núna og mér hefur tekist það. Ég þarf ekki á því að halda að vera áhyggjufull á meðan það gengur svona vel og ég held að það hafi bjargað mér. Ég fagna hverju ári sem mér er gefið. Yngsti strákurinn minn var 5 ára þegar ég greindist og hann er 22 ára í dag. Ég hugsaði með mér á sínum tíma að það að koma börnunum til manns, þannig að þau gætu bjargað sér og orðið fleygir fuglar, skipti öllu máli. Mér hefur tekist að gera það og nú er allt annað bónus.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is n Batahorfur kvenna sem greinast með brjóstakrabba- mein í dag eru mun hærri en fyrir nokkrum árum. n Á ár- unum 1999-2003 greindust að með- altali 155 konur á ári með brjósta- krabbamein en á árunum 2009- 2013 greindust að meðaltali 208 konur á ári . n Í árslok 2003 voru á lífi 1788 konur sem höfðu greinst með krabbamein en í árslok 2013 voru á lífi 2788 konur sem höfðu greinst. n Fimm ára lifun kvenna sem greindust með brjóstakrabba- mein á árunum 1990-1999 er 85% en hún var 91% á árunum 2000-2009. n Lifun er hlutfall af lífshorfum jafnaldra að teknu tilliti til annarra dánarorsaka. Heimild: Krabba- meinsskrá. Gunnhildur Óskarsdóttir er ein af stofnendum „Göngum saman“ á Íslandi en það er verkefni sem styrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini. Hópurinn mun ganga á 15 stöðum um allt land á Mæðradaginn, næstkom- andi sunnudag, 10. maí. Öllum er frjálst að taka þátt og göngufólki mun gefast kostur á að styrkja málefnið með frjálsum framlögum. Styrktarfélagið Göngum Saman styrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini og úthlutunar styrkjum í lok október ár hvert. Frá stofnun félagsins, haustið 2007, hefur um 50 milljónum verið úthlutað til íslenskra rannsóknaraðila á sviði brjóstakrabbameins og í haust er stefnt að því að 10 milljónir renni til vísindarannsóna. Gangan er gjaldfrjáls en göngufólki gefst kostur á að styrkja rannsóknir með frjálsum fram- lögum og með því að festa kaup á varningi. Í ár verða seldir bolir og höfuðklútar hannaðir af JÖR og margnota innkaupapokar hannaðir af Sigurborgu Stefánsdóttur. Gengið verður á 14 stöðum um land allt en allar nánari upplýsing- ar eru á heimasíðunni: gongumsaman.is 20 viðtal Helgin 8.-10. maí 2015
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.