Fréttatíminn - 08.05.2015, Side 44
sömdum Út á stoppistöð og Strax í dag
þegar við vorum að taka upp smáskífurn-
ar sem komu út árinu áður,“ segir Jakob.
„Þegar við ákváðum svo að fara út í árs-
byrjun 1975 ákváðum við að taka Spilverk
þjóðanna með okkur, þar sem við ætluðum
að taka upp tvö lög með þeim í leiðinni,
fyrir safnplötuna Hrif 2, sem átti að koma
út seinna sama ár,“ segir Jakob. „Sigurð-
ur Bjóla tók sér það bessaleyfi, sem seint
verður fullþakkað, að koma með titillagið á
plötuna, og bætti síðan um betur með lag-
inu Í bláum skugga. Hann fangaði kjarna
málsins, óumbeðinn. Með þessu stimplaði
hann sig inn sem fullgildur meðlimur, sem
og Egill [Ólafsson] með lögum eins og
Dagur ei meir og Söng dýranna í Týról,“
segir Jakob. „Svo í rauninni varð hljóm-
sveitin til í Majestic hljóðverinu í London.“
Skítadreifing Þórðar Árnasonar
Sumar á Sýrlandi er full af allskyns glensi
og það má heyra mikinn unggæðingshátt
svífa yfir vötnunum. Þessi stemning hefur
haldist allar götur síðan. „Við vorum að fjalla
með gamansömum hætti um grafalvarlega
hluti. Þennan neðanjarðarkúltúr hippanna,
sem voru að fikta í allskyns djasssígarettum
og bíbop pillum og kökum,“ segir Jakob.
Voruð þið hippar?
„Ég og Siggi Bjóla vorum nú skilgreindir
hippar,“ segir Jakob. „Við vorum aðilar að
kommúnu að Rauðará, þar sem Frímúrara-
húsið stendur í dag. Ég tók að mér að sjá um
húsið og skipuleggja hverjir borguðu hvað
og slíkt. Við enduðum samt í smá fjárhags-
kröggum og brugðum á það ráð að stofna
fyrirtækið Skítadreifing Þórðar Árnason-
ar,“ segir Jakob og hlær, en Þórður var um
árabil gítarleikari Stuðmanna. „Við seldum
hrossaskít sem áburð til útlendinga, sem
höfðu ekki sama verðskyn á skít og við Ís-
lendingar í þeirri óðaverðbólgu sem var á
þessum tíma. Þetta var uppsprengdu verði
og selt til Kaþólsku kirkjunnar, Landakots-
skóla og til sendiráðanna,“ segir hann. „Ég
uppgötvaði viðskiptamanninn í mér með
þessu uppátæki.“
Átta „hittarar“
Á plötunni eru átta lög sem enn í dag eru
greypt í íslenska dægurlagasögu. Lög sem
hafa lifað góðu lífi síðustu 40 ár, og mörg
þeirra lög sem ekki hægt er að fá leið á.
„Það var ekki með votti af ásetningi sem
það gerðist,“ segir Jakob. „Markaðslög-
mál, peningahyggja eða útpælt ferli var
bara víðsfjarri við þessar plötur Stuð-
manna. Kannski var það frekar vegna
æsku og græskuleysis meðlima. Þarna
voru samankomnir flinkir tónlistarmenn
sem voru að gantast með stílbrot og tungu-
málið og gerðu það bara vel,“ segir Jakob.
„Það við leyfðum okkur bara að hafa þetta
eins og við vildum. Þegar menn kynnast á
unglingsárum eru þeir með annars konar
varnarkerfi gagnvart hver öðrum. Við uxum
upp saman í mótunarferli. Þá leyfist manni
að segja í rauninni hvað sem er, án þess
að særa nokkurn. Það skilar sér á þessum
fyrstu plötum Stuðmanna,“ segir Jakob.
Excel skjal hefði eyðilagt plötuna
Kjarni Stuðmanna er þessa dagana að hitt-
ast og undirbúa þessa tónleika, sem verða
í byrjun júní, og það er ennþá sami galsi
sem svífur yfir vötnum. „Á annan hátt,“
segir Jakob. „Við Sigurður Bjóla höfum
þekkst frá sex ára aldri og við förum ásamt
Agli til Valgeirs á Stokkseyrarbakka og
leggjum línurnar reglulega,“ segir hann.
„Það eru nokkur lög sem verður áskorun
að flytja eins og Andrés fór á andafund,
sem aldrei hefur verið flutt opinberlega.
Það verður ákveðin ögrun. Þessi lög eru
frá þeim dásemdartíma þar sem átta lög
gátu farið í spilun í útvarpinu. Öll í einu
á einu stöðinni,“ segir Jakob. „Svoleiðis
gerist auðvitað ekki í dag. Það hefði til
dæmis ekki leyfst í dag að taka lag eins og
Letter og snúa því á dönsku,“ segir hann.
„Tómasi Magnúsi, bassaleikara sveitar-
innar, fannst þetta góð hugmynd og okkur
fannst hún bara of góð til þess að sleppa
því. Við fórum bara alla leið með þessar
hugmyndir og ég leyfi mér að fullyrða að
Excel skjal hefði ekki verið góður leiðar-
vísir fyrir Sumar á Sýrlandi, eða nokkra
aðra plötu Stuðmanna,“ segir Jakob Frí-
mann Magnússon stuðmaður.
Í gær, fimmtudag, var opnað fyrir miða-
sölu á þriðju tónleika Stuðmanna í Eld-
borgarsal Hörpu, dagana 5. og 6. júní og
má finn allar upplýsingar um miða á vef
Hörpu. www.harpa.is
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Við seldum
hrossaskít sem
áburð til út-
lendinga, sem
höfðu ekki
sama verðskyn
á skít og við
Íslendingar í
þeirri óðaverð-
bólgu sem var
á þessum tíma.
Mikið úrval af fallegum hönnunarvörum
Fáðu sent heim að dyrum
Síðumúla 21 | S: 537-5101 | Snuran.is
Nagelstager repro - 4.500.-
Djasssígarettur
og Bíbop pillur
Árið 1975 ákváðu nokkrir ungir menn í Reykjavík að stofna
hljómsveit og gefa út hljómplötu. Þetta voru allt góðir vinir
úr Menntaskólanum við Hamrahlíð og sumir þeirra búnir að
þekkjast frá blautu barnsbeini. Hópurinn kallaði sig Stuðmenn
og lagt var á það ráð að fara til Lundúna til þess að taka upp
gripinn. Nú, 40 árum og næstum 20 plötum síðar, skal fagna
þessum tímamótum með veglegum hætti í Hörpu í byrjun júní.
Forsprakkar sveitarinnar, Jakob Frímann Magnússon og Valgeir
Guðjónsson, segja að Sumar á Sýrlandi hafi átt að fanga vissa
undirheimastarfsemi var á þeim tíma í Reykjavík, en fyrst og
fremst átti þetta bara að vera skemmtilegt.
Á þessari fyrstu plötu Stuð-manna, Sumar á Sýrlandi, eru átta lög sem náðu gríð-
armiklum vinsældum og hafa nær
alltaf verið á lagalista sveitarinnar
þegar hún kemur fram. Það eru
ekki margar plötur í tónlistarsög-
unni sem geyma 8 svokallaða hitt-
ara. Jakob Frímann Magnússon
segir þetta hafa bara æxlast svona.
„Við vorum búnir að taka upp lögin
Draumur okkar beggja og Honey,
Will You Marry Me einhverju áður,“
segir Jakob Frímann þegar hann er
spurður út í tildrögin. „Ég var svo
búinn að sækja um nám í hljóðupp-
tökum erlendis og þurfti til þess eitt
bréf frá Ríkisútvarpinu þess efnis
að ég væri gjaldgengur í þetta nám.
Það bréf fékkst ekki þar sem ég var
ekki starfsmaður svo ég varð að
finna mér starfsþjálfun annars stað-
ar,“ segir Jakob. „Við Valgeir vorum
bara tveir í þessu til að byrja með.
Jafn fullir leikgleði og vildum ólmir
kynnast þessum störfum,“ segir
Jakob. „Svo við fórum bara af stað.“
Bjólan kom með titillagið
Stuðmenn byrjuðu fyrst að mótast í
MH og þar urðu til fyrstu lögin sem
enduðu svo á Sumri á Sýrlandi. „Við
Steinka Bjarna
Í laginu Strax í dag
syngur kona sem
ekki allir vita hver
er. Þessi kona hét
Steinunn Bjarnadóttir,
kölluð Steinka Bjarna
og var systir Hall-
bjargar Bjarnadóttur
söngkonu. Jakob
segir þá félaga hafa
rambað á þessa konu
af algerri tilviljun
þar sem hún bjó í
sama húsi og vinir
Stuðmanna. Hún var
drifin í hljóðver þar
sem hún flutti lagið á
ógleymanlegan hátt.
Hún ferðaðist svo
með Stuðmönnum
um landið árið eftir
útgáfuna. „Þetta var
gjörningur, eins og
svo margt á þessari
plötu. Það hefði ekki
verið hægt að plana
þetta. Við leyfðum
hlutunum að gerast,“
segir Jakob Frímann.
Myndirnar eru úr einka-
safni sveitarinnar og eru
frá þeim tíma sem platan
er tekin upp.Á stærstu
myndinn i má sjá meðlimi
með grímur sem þeir
klæddust á tónleikum í
árdaga sveitarinnar. Þá
vissu fáir hverjir hinir
raunverulegu meðlimir
Stuðmanna voru.
44 viðtal Helgin 8.-10. maí 2015