Fréttatíminn - 08.05.2015, Side 54
54 matur & vín Helgin 8.-10. maí 2015
Þ ið verðið að afsaka mig, ég er skítþunn-ur. Þið hóið bara ef þið hafið einhverjar spurningar,“ sagði Jacob Gram Alsing,
framkvæmdastjóri Mikkeller, þegar hann tók
á móti okkur við opnun Copenhagen Beer Ce-
lebration. Hann var greinilega ekki sá eini þarna
inni sem hafði seilst of langt ofan í bjórflöskuna
kvöldið áður.
Tveir heilir vinnudagar
Copenhagen Beer Celebration, eða CBC eins og
hátíðin er jafnan kölluð, er haldin í Sparta Hallen
sem er skammt frá Parken. Þetta var í fjórða
skiptið sem hún var haldin. Inni í salnum var allt
komið á fullt. Hátt í þúsund gestir gengu á milli
bása með glös í hendi og yfir öllu lá huggulegur
pylsufnykur. Lofaði góðu.
Á CBC koma saman hátt í fimmtíu af bestu
brugghúsum veraldar í boði danska farand-
bruggarans Mikkeller. Hátíðin stendur í tvo
daga, tvær lotur eru á dag og hvert brugg-
hús leggur til tvo bjóra í hverri lotu. Hvor lota
stendur í fjóra tíma svo samtals er þetta fullur
vinnudagur.
Í þessari fyrstu lotu voru sem sagt eitthvað á
bilinu 90-100 bjórar, miðir og vín í boði. Okkur
tókst að komast yfir 33 bjóra sem verður að telj-
ast bærilegt fyrir byrjendur. Reyndari menn rétt
dreypa á hverjum bjór og snúa sér að þeim næsta
en nýgræðingum hættir til að klára úr glösunum
þegar eitthvað gott er í boði.
Sænskur Snickers-bjór og mangó-IPA
Hvað er svo í boði þarna? Maður fær hálfgert
víðáttubrjálæði í byrjun en nær svo áttum. Við
römbuðum fyrst á fund Boneyard-brugghússins
frá Oregon en svo heppilega vildi til að annar af
bjórum þeirra var léttur India Session Ale. Það
var fínt að byrja á rólegum nótum áður en kom
að sótsvörtum tunnuþroskuðum Stout-bjórum
sem voru víða.
Lengsta biðröðin var hjá brugghúsinu Three
Floyds enda var þar hinn kunni Dark Lord á boð-
stólum. Sá er 13% Russian Imperial Stout, afar
margslunginn bjór með kaffi, vanillu og fleiru í
bragðinu. Hann er aðeins bruggaður einu sinni á
ári og er því nokkuð eftirsóttur. Mjög skemmti-
legur bjór.
Svo komu þeir í röðum. Inni á milli voru hefð-
bundnir bjórar – nokkrir frábærir Pale Ale og
IPA-bjórar og – en svo þeir sem skáru sig úr. Þar
á meðal bjór sem smakkaðist eins og Snickers.
Sá kallast Bourbon BA Peanut Butter Biscuit
Stout og var bruggaður af sænska brugghúsinu
Omnipollo. Annar skemmtilega furðulegur var
tvöfaldur IPA-bjór frá Green Flash brugghúsinu
sem bragð„bættur“ var með mangó og chili.
Bjór Fréttatíminn Fór á Copenhagen Beer CeleBration
Pabbi þarf að vinna í dag
Copenhagen Beer
Celebration var haldin í
fjórða sinn um síðustu
helgi og Fréttatíminn
var á staðnum. Á há-
tíðinni koma saman
fimmtíu bestu brugghús
í heimi og reiða fram
sína bestu og furðu-
legustu bjóra. Gestir
geta smakkað hátt í 400
bjóra á tveimur dögum á
milli þess sem þeir gæða
sér á pylsum og fá sér
tattú. Bjórarnir eru engir
venjulegir fótboltabjór-
ar; þarna voru sótsvartir
tunnuþroskaðir bjórar í
bland við humlaða IPA-
bjóra og furðulega miði.
Furðulegasti bjórinn
bragðaðist þó eins og
Snickers.
Íslendingar áttu að sjálfsögðu sína fulltrúa á hátíðinni. Þarna voru meðal annars hópar frá Járn & gler, sem flytur Mikkeller inn til Íslands, og rekstraraðilum Mikkeller-barins á Ís-
landi. Frá vinstri eru Andri Þór Kjartansson, Ingi, Ólafur Ágústsson, Jón Valur og Hrafnkell Magnússon sem rekur Brew.is.
Svona gekk þetta fyrir sig. Milli þess sem
bjór var smakkaður var hægt að kaupa sér
svakalegar pylsur, osta, rif og fleira í þeim
dúr. Þá var hægt að fá sér tattú, kaupa sér
minjagripi eða slafra í sig kaffi ef sá gállinn
var á manni.
Kafloðnir pabbakroppar
Auðvelt er að teikna upp hvernig hinn
týpíski bjórnörd lítur út miðað við gesti há-
tíðarinnar. Fyrir það fyrsta er ljóst að hann
er ekki kona enda voru þær vart sjáanlegar
þarna. Í öðru lagi er mér til efs að þarna hafi
nokkur maður verið sléttrakaður. Flestir
klæddust annað hvort stuttermabolum
merktum brugghúsum eða með „fyndnum“
slagorðum. Og seint verður sagt að hinn
almenni gestur hafi verið í góðu formi. Það
passaði reyndar ágætlega því sama dag var
hugtakið „pabbakroppur“ á allra vörum.
Þessi fyrsta lota af fjórum var frábær
upplifun. Fjórir klukkutímar af bjórsötri
og spjalli og bjórarnir voru hver öðrum for-
vitnilegri. Það virðist samt vera stórt skref
að stíga að ætla sér að mæta á allar loturnar.
400 bjórar á tveimur dögum hljómar alla
vega eins og ærinn starfi.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Pylsurnar komu frá John’s Hotdog Deli og menn röðuðu sjálfir bjórlegnum lauk,
bjórsinnepi og remúlaði á þær. Sumir settu meira á þær en aðrir.
Á CBC koma saman hátt í 50 bruggarar og kynna bjóra sína. Gestir
hátíðarinnar labba á milli með glas og fá að smakka og spjalla við þá
um tilurð bjóranna.
Mikkel Borg Bjergsø, maðurinn á bak við Mikkeller, var eins og rokk-
stjarna á svæðinu og ófáir bjórnördar gáfu sig á tal við hann og fengu
að taka mynd af sér með honum.