Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.05.2015, Side 70

Fréttatíminn - 08.05.2015, Side 70
 TónlisT Þórir Úlfarsson gerir karókíÚTgáfur af íslenskum lögum fyrir sjónvarp símans Eurovisionlög í karókíútgáfum spiluð 250.000 sinnum Í sjónvarpi Símans má finna karókí útgáfur fjölda íslenskra og erlendra laga sem notendur þjónustunn- ar geta skemmt sér við að syngja heima í stofu. Búið er að gera út- gáfur af 20 íslenskum Eurovision lögum, 20 íslenskum jólalögum og 40 vinsælum íslenskum popplögum. Maðurinn á bak við þessar útgáfur er tónlistarmaðurinn Þórir Úlfars- son sem hefur frá því í apríl á síð- asta ári gert karókútgáfurnar. „Ég geri þetta allt sjálfur með leyfi frá höfundum, en þeir eru allir til í að leyfa þetta,“ segir Þórir. Eins og staðan er í dag er búið að spila lögin nærri 250 þúsund sinnum og lögin eru orðin 170, innlend sem er- lend. Vinsælasta Eurovisionlagið um þessar mundir er framlag polla- pönkaranna frá því í fyrra, Enga fordóma. Þórir segir það örugglega vegna þess að það er nýjast. „Ég er ekki enn búinn að gera lagið henn- ar Maríu Ólafs, einfaldlega vegna þess að ég hef ekki náð í höfund- ana,“ segir Þórir. „Ég efast um að það náist fyrir keppnina í ár,“ segir hann. Hvert lag tekur um 8 tíma í vinnslu og er Þórir ekki búinn að prófa að syngja þau. „Nei ég læt aðra um það. Ég passa að þetta sé í réttri tóntegund samt,“ segir Þórir Úlfarsson tónlistarmaður. -hf 5 vinsælustu Eurovisionlögin í Sjónvarpi Símans. 1. Enga fordóma 2. Draumur um Nínu. 3. Ég á líf 4. Til hamingju Ísland. 5. Is It True. Þórir Úlfarsson við störf. Endurútgefinn vínyll Sena bregst við gríðarlegri eftirspurn á vínylplötum um þessar mundir og hefur í hyggju að endurútgefa nokkra sígilda titla úr íslenskri poppsögu. Vinnsla stendur yfir á plötunum Lifun með Trúbrot, fyrstu plötu Megasar, Sumar á Sýrlandi Stuðmanna og Á bleikum náttkjólum sem Spilverk þjóðanna gerði með Megasi árið 1977. Plöturnar verða gefnar út í upphaflegum umslögum með tilheyrandi textablöðum. Von er á fleiri titlum frá Senu á vínyl síðar á árinu. GCD án G C og D? Heyrst hefur að hin goðsagna- kennda rokksveit GCD, sem gerði allt vitlaust á tíunda áratugnum með þeim Bubba Morthens og Rúnari Júl í farar- broddi, ætli að koma saman aftur. Enn fremur hefur það heyrst að Bubbi sé eini upp- runanlegi meðlimur sveitarinnar sem stígi á svið ef samningar nást ekki. Rúnar er fallinn frá, eins og allir vita, en heyrst hefur að þeir Beggi Morthens og Gulli Briem hafi ekki enn samþykkt þessa ráðagerð. Spennandi að sjá hverjar málalyktir verða, en vissulega væri gaman að sjá GCD saman á ný. Höfundar í útrás Rithöfundarnir Auður Jónsdóttir og Jón Atli Jónasson gáfu nýlega út bækur sínar á erlendri grundu. Bók Jóns Atla, Börnin í Dimmuvík sem kom út á Íslandi árið 2013, kom nýverið út í Frakklandi og nefnist á frönsku Les Enfants De Dimmuvík. Bók Auðar, Ósjálfrátt, sem kom út hér á landi árið 2012, kom hins vegar út í Danmörku og heitir Livstörst á dönsku. Báðir þessir höfundar eru í hópi ungra ritskálda hér á landi og verður gaman að fylgjast með viðbrögð- um við bókunum í Danmörku og Frakklandi. Það er Forlagið sem gaf út bækurnar hér á Íslandi.  nýsköpun Hugmynd Háskólanema fær byr undir báða vængi Sex nemar við Háskólann í Reykjavík, í áfanganum Nýsköpun og stofnun fyrirtækja, fengu óvenjulega hugmynd. Þeir áttu að láta sér detta eitthvað sniðugt í hug til þess að framkvæma og duttu niður á myndband á YouTube þar sem búið var að koma fyrir vatnsrennibraut í miðri stórborg, á götunni. Þau ákváðu að fara aðeins lengra með þessa hugmynd og nú er hún að verða að veruleika. Í miðborginni. o kkur langaði að gera eitt-hvað flippað,“ segir Jökull Torfason, einn sexmenn- inganna sem standa að verkefninu Slip’N Slide Reykjavík sem snýst um að koma fyrir vatnsrennibraut á götu í miðbæ Reykjaíkur í sumar. Hugmyndin byggir á því að hafa 2-300 metra langa rennibraut í miðbænum. Lagður yrði blautur dúkur á götuna þar sem bæði yrði hægt að renna sér niður á kútum og án þeirra. „Við duttum niður á myndband á netinu þar sem þetta er gert og okkur langaði strax að hrinda þessu í framkvæmd,“ segir hann. „Við erum búin að fá vilyrði frá Reykjavíkurborg og Dagur B. Egg- ertsson borgarstjóri er búinn að leggja blessun sína yfir þetta,“ seg- ir Jökull en með honum í hópnum eru þau Brynja Rut Blöndal, Bryn- dís Ósk Valdimarsdóttir, Elín Lind Jónsdóttir, Jóhannes Hilmarsson og Klara Ingvarsdóttir. „Við munum flytja inn 200 metra langa rennibraut sem mun verða lögð eftir einhverri góðri götu. Við erum svolítið að horfa á Skóla- vörðustíginn í þessu samhengi,“ segir Jökull. „Við stofnuðum Facebook síðu fyrir tveimur sólarhringum og erum strax komin með yfir 2000 like, svo það eru margir áhuga- samir,“ segir hann. „Við erum að skipuleggja þetta með borgina okkur við hlið og líklegast er að þetta verði í júlí. Það er enginn í hópnum sem hefur prófað akkúrat þetta, en einn okkar prófaði svipað í Kaupmannahöfn en það var ekki svona stórt,“ segir Jökull. „Þetta hefur verið mjög vinsælt í Bandaríkjunum og þá helst í San Fransisco þar sem brekkurnar eru veglegar. Við erum komin með nokkra styrktaraðila og erum í viðræðum við fleiri. Þetta verður opið öllum og bara hugsað sem skemmtun, engin keppni,“ segir Jökull Torfason, nemi við Háskól- ann í Reykjavík. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Borgarstjóri blessar vatnsrennibraut í bænum Sexmenningarnir sem ætla að setja upp vatnsrennibraut í 101 Reykjavík í sumar. Líklegt er að það verði á Skólavörðustíg. Ljósmynd/Hari 70 dægurmál Helgin 8.-10. maí 2015 Af hverju tekur barnið mitt æðisköst? Er samviskubit foreldra eðlilegt ástand? www.forlagid.i s | Bókabúð Forlags in s | F i sk i s lóð 39 Hvernig hjálpa ég barninu mínu að sofna? apríl 2015 1 fræði og almennt efni

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.