Fréttatíminn - 08.05.2015, Blaðsíða 82
umhirða húðar Helgin 8.-10. maí 201510
Since 1921
Við höfum notað lífræna jurtaolíu í vörur okkar í meira en 90 ár. Þær hafa
marga frábæra eiginleika og næra húðina m.a. með vítamínum, andoxunar-
efnum og fitusýrum. Vörurnar okkar eru prófaðar af óháðum aðila* og eru
vottaðar NaTrue vörur. Olíurnar veita vellíðan styrkja og vernda þurra húð
- í samhljómi við mann og náttúru. www.weleda.is
Það er ekkert jafn
rakagefandi og olíurnar okkar
Vertu vinur okkar á facebook
www.facebook.com/weledaísland
*Derma Consult Concept GMBH
Útsölustaðir:
Apótek og Heilsuverslanir um allt land
Skincare
Framúrskarandi fyrir mjög þurra húð
og þurrt hár.
100% E-vítamín olían og örakremið
lagfærir ör, slit og hrukkur.
Fæst í Lyfju, Heilsuhúsinu og Apótekinu.
Organic
Vitamin E
www.facebook.com/drorganicaislandi
Rakinn sem olíur veita er mun
drýgri og hentar því einstaklega
vel fyrir mjög viðkvæma húð. Olíur
eru hins vegar einnig hentugar
fyrir þá sem hafa feita húð. Þegar
húðin framleiðir meiri fitu en þörf
er á er mikilvægt að losna við þetta
umfram magn, annars fara bólur
og önnur óhreinindi að myndast
á húðinni. Ein leið er að nota olíu-
hreinsi og hreinsivörur með olíu.
Þannig er óæskilegri umframfitu
skipt út fyrir hreinar og nærandi
olíur.
Skipta má olíum í tvennt: Húð-
olíur og andlitsolíur. Þessum má
svo aftur skipta í tvennt: Lífrænar
og ólífrænar. Möguleikarnir eru því
óteljandi. Kókosolía, möndluolía og
avocado-olía eru dæmi um náttúru-
legar olíur og hægt er að nota þær
á ótal vegu. Allir helstu snyrtivöru-
framleiðendur heims bjóða svo upp
á gæðaolíur. Hægt er að nota þær
einar og sér eða bæta örlitlu magni
út í dagkremið eða líkamskremið.
Það er bara um að gera að prófa sig
áfram og uppgötva mátt olíunnar.
Máttur olíunnar
Þegar sumarið nálgast eru olíur tilvaldar til að viðhalda rakastigi
húðarinnar og þær veita auk þess extra ljóma. Rannsóknir á mætti
olíunnar hafa leitt í ljós að olía er betri til að varðveita raka og
koma jafnvægi á húðina en mörg hefðbundin krem.
Innihald:
½ bolli púðursykur
½ bolli malað kaffi
¼ bolli kókosolía
Blandið innihaldsefnunum
saman í skál. Hellið yfir í
ílát sem hægt er að loka,
til dæmis krukku. Nuddið
skrúbbnum á líkamann
fyrir sturtu og hinkrið í
nokkrar mínútur áður en
líkaminn er skolaður með
heitu vatni.
H úðin okkar er sífellt að endurnýja sig, nýjar húð-frumur koma og fara og í
þessu ferli er gott að nota líkams-
skrúbb einu sinni í viku. Með því
að skrúbba líkamann greiðum við
leiðina fyrir krem og maska inn í
húðina og virkni þeirra verður ár-
angursríkari. Húðin verður þar
að auki mýkri og ferskari. Hér má
finna uppskrift af dásamlegum lík-
amsskrúbb sem hressir, stinnir og
mýkir húðina. Koffeinið í kaffinu
hefur bólgueyðandi áhrif og getur
jafnað út lit húðarinnar. Þessi er ein-
faldur í gerð og notkun:
Heimatilbúinn
líkamsskrúbbur