Víkurfréttir - 10.05.2012, Page 2
2 FIMMTUDAGURINN 10. MAÍ 2012 • VÍKURFRÉTTIR
LANDNÁMSDÝRA-
GARÐURINN OPNAR
Landnámsdýragarðurinn hjá Víkingaheimum verður
formlega opnaður laugardaginn 12. maí kl. 12:00 og
verður opinn frá þeim tíma til kl. 17:00 á hverjum degi til
13. ágúst og einnig Ljósanæturhelgina. Opnunarhátíð
verður á laugardaginn sem hefst kl. 13:00 og verða
grillaðar pylsur og safi í boði meðan birgðir endast
milli kl. 13:00 – 14:00.
SÍÐASTA
SÝNINGARHELGI
Sýningu Byggðasafns Reykjanesbæjar, Völlurinn,
nágranni innan girðingar í Duushúsum sem opnuð var
30. mars 2009 lýkur nú um helgina. Þetta eru síðustu
forvöð að sjá þessa áhugaverðu sýningu.
HEIÐARSKÓLI
ATVINNA
Þroskaþjálfi óskast til starfa í Heiðarskóla fyrir næsta
skólaár. Um er að ræða 100% starf.
Kennari óskast til starfa í Heiðarskóla fyrir næsta
skólaár í 100% starf.
Um er að ræða kennslu á mið- og unglingastigi.
Upplýsingar gefa Gunnar Þór Jónsson, skólastjóri, í
síma 894-4501 og Sóley Halla Þórhallsdóttir,
aðstoðarskólastjóri, í síma 894-4502 og 420-4500
Sækja skal um störfin á vef Reykjanesbæjar
http://www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf .
Eingöngu er tekið við rafrænum umsóknum og er
umsóknarfrestur til 24.maí nk.
BARNAHÁTÍÐ
Í REYKJANESBÆ
12. OG 13. MAÍ
Margt er um að vera og ókeypis á alla viðburði!
Meðal viðburða eru:
Skólahreystimeistarar í hreystibrautinni, Krílasund,
hjólahátíð, Danssýningar, Alvöru víkingar, þrumuguðinn
Þór í Víkingaheimum, hoppukastalar, opnunarhátíð í
landnámsdýragarðinum, Listahátíð barna- sýningar og
smiðja, grenndargarðar, bangsasmiðja, lifandi sögu-
stund, ljósmyndasýning, lærðu að tálga, vinabanda-
smiðja, lummur, blöðrur og sögustund í Skessuhelli,
töfrabragðanámskeið, gæludýrasýning, fjölskyldu-
ganga, flottir flaututónleikar, fjölskyldustund í Kefla-
víkurkirkju og ýmislegt fleira.
Kynntu þér alla dagskrána á barnahatid.is
›› FRÉTTIR ‹‹
STÆRÐIN SKIPTIR MÁLI
Forvarnir með næringu
NÝTT HÁGÆÐA HUNDAFÓÐUR
KYNNINGARTILBOÐ
15 kg. poki - Verð 6.950 kr.
STAPAFELL Hafnargötu 50, Keflavík, sími 421-2300
TI
LB
O
Ð
G
IL
D
IR
Ú
T
M
A
Í
GLÆSILEGUR STAÐUR
AÐ HAFNARGÖTU 12
STÓR (12”) 1200
LÍTILL (6”) 790
HÁDEGISTILBOÐ
(ALLA DAGA FRÁ 10:00 - 14:00
www. hlollabatar.is - s. 421 8000
Barnahátíð í Reykjanesbæ verður sett með formlegum
hætti fimmtudaginn 10. maí
í Duushúsum þegar sýningin
„Sögur og ævintýri“ verður opnuð
að viðstöddum elstu börnum
allra tíu leikskólanna í bænum.
Sý ning in er l e i kskól a h luti
Listahátíðar barna sem er sam-
starfsverkefni Listasafns Reykja-
nesbæjar, allra 10 leikskólanna og
allra 6 grunnskólanna í bænum.
Leikskólabörnin hafa unnið með
sögur og ævintýri stóran hluta úr
vetri og afraksturinn, heill ævin-
týraskógur sem þau hafa skapað,
verður til sýnis í Duushúsum
ásamt listasmiðju og ýmsu öðru.
Sýningar leikskólanna hafa ekki
verið neinar venjulegar sýningar
og dregið að sér þúsundir gesta
ár hvert.
Síðari hluti formlegu setningar-
innar verður föstudaginn 11. maí
kl. 14:00 þegar grunnskólahluti
Listahátíðarinnar, „Listaverk í
leiðinni,“ verður opnaður í Nettó.
Yfirskriftin vísar til þess að verk
grunnskólabarnanna eru sýnd víðs
vegar um bæinn í þeim tilgangi að
fólk rekist á þau á förnum vegi og
fái þannig notið þess frábæra starfs
sem unnið er í skólum bæjarins í
list- og verkgreinum. Listaverkin
eru líka af öllu tagi og þar má sjá
gott yfirlit yfir vinnu vetrarins,
margvísleg vinnubrögð og óþrjót-
andi sköpunargleði barnanna.
Þarna var ekki unnið undir einu
yfirheiti heldur fékk fjölbreytnin
að ráða ferðinni og afraksturinn
er ótrúlegur, við sjáum verk frá
öllum grunnskólunum frá ýmsum
árgöngum.
Fjölmargt fleira er þó á dagskrá
Barnahátíðar og fer meginþungi
þeirrar dagskrár fram helgina 12.
og 13. maí. Meðal viðburða má
nefna nýjar og flottar sýningar í
Víkingaheimum og heimsókn frá
„alvöru“ víkingum, opnunarhátíð
í landnámsdýragarðinum, fjöl-
skyldusmiðjur þar sem m.a. verður
hægt að búa til víkingaklæði á
bangsann sinn, búa til skemmtileg
vinaarmbönd og lyklakippur, nám-
skeið þar sem kennt verður að tálga
og annað þar sem einn fremsti
töframaður landsins kennir töfra-
brögð, lifandi sögustund með Þór
Tulinius, heimboð hjá Skessunni í
hellinum þar sem boðið verður upp
á lummur, blöðrur og sögustund,
krílasund í sérstaklega upphitaðri
sundlaug, flotta flaututónleika og
ýmislegt fleira.
Dagskrána í heild sinni, með
tímasetningum, staðsetningum og
nánari upplýsingum má nálgast
á vefsíðunni barnahatid.is.Þess
skal getið að frítt er á alla við-
burði Barnahátíðar. Kaffiveitingar
verða seldar alla helgina í Víkinga-
heimum.
Barnahátíð í Reykjanesbæ
Segir rekstur
Reykjanesbæjar
á rangri leið
sem fyrr
Ársreikningur Reykjanesbæjar 2011 sýnir að meirihluta
sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ
hefur einn eitt árið mistekist að
halda rekstri bæjarsjóðs réttu
megin við núllið án þess að selja
eignir bæjarsins, segir í bókun
fulltrúa Samfylkingar í bæjar-
stjórn Reykjanesbæjar um árs-
reikning Reykjanesbæjar 2011.
Af eintóna og einhliða fréttatil-
kynningu meirihluta Sjálfstæðis-
flokksins, senda út i nafni Reykja-
nesbæjar, mátti skilja að að rekstur
Reykjanesbæjar hafi gengið vel á
síðasta ári og að bæjarsjóður hafi
skilað jákvæðri niðurstöðu upp á
33 milljónir.
Hið rétta er að á síðasta ári tókst að
koma í veg fyrir um 1.000 milljóna
króna taprekstur Reykjanesbæjar
með sölu eigna. Þá fékk Reykjanes-
bær 1.500 milljónir króna framlag
frá Jöfnunarsjóði Sveitarfélaga.
Friðjón Einarsson í ræðustól í
bæjarstjórn Reykjanesbæjar.
Ellefu vilja verða
skólastjórar
Gerðaskóla
Samtals bárust ellefu
umsóknir um
stöðu skóla-
stjóra Gerðaskóla
en starfið var
auglýst nýverið.
Nú munu Gylfi
Jón Gylfason
fræðslustjóri Reykjanes-
bæjar og Ingvar Sigurgeirsson
prófessor við Háskóla Íslands
yfirfara umsóknir og gera til-
lögu að nýjum skólastjóra
sem lögð verður fyrir bæjar-
stjórn Sveitarfélagsins Garðs.
Eftirtaldar umsóknir bárust um
starf skólastjóra við Gerðaskóla:
Anna Lilja Sigurðardóttir
Björn Vilhelmsson
Erla Gígja Garðarsdóttir
Guðbjörg Málfríður Sveinsdóttir
Guðrún Guðmundsdóttir
Hulda Ingibjörg Rafnsdóttir
Ingveldur Eiríksdóttir
Óskar Birgisson
Sigríður Aðalsteinsdóttir
Skarphéðinn Jónsson
Stella Á. Kristjánsdóttir
Næsta blað kemur út
miðvikudaginn 16. maí.
Skilafrestur á auglýsingum
er því mánudaginn
14. maí til kl. 17:00.
Auglýsingasíminn er
421 0001
og pósthólfið er
gunnar@vf.is