Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.05.2012, Síða 10

Víkurfréttir - 10.05.2012, Síða 10
10 FIMMTUDAGURINN 10. MAÍ 2012 • VÍKURFRÉTTIR Það ættu allir að hafa það á hreinu að lykillinn að góðum svefni liggur í góðu rúmi og góðum sængurfötum, börn elska hreint rúm. En það er ekki bara nóg að fjárfesta í rándýru rúmi og ætl- ast svo til þess að litlu englarnir sofi vært heldur þarf að tryggja það að hreinlæti í rúminu sé eins og best verður á kosið. Nauðsynlegt sé að huga reglulega að koddanum í barnarúminu því ef það er ekki gert getur barnið fundið fyrir alls konar kvillum sem gera því lífið leitt. Það þarf helst að skipta um sængurföt bæði á koddum og sæng einu sinni í viku. Ef börn og fullorðið fólk er með astma, þá er þetta gífurlega mikilvægt. Mannfólkið ver miklum hluta ævinnar í rúminu, allt frá og til 7-9 klukkustundir og því er nauðsynlegt að því liði vel þar. Þó er það þannig að margir gera sér ekki grein fyrir því hvað getur verið að finna í koddum. Í koddunum okkar er að finna tíu til fimmtán mismunandi sveppategundir og ef við tökum meðal kodda þá safnast í hann um 100 lítrar af svita á einu ári, því við eyðum þriðjungi af lífi okkar í rúminu. Til að fá heilsusamlegastan nætursvefn þá er best að vera með fiðurkodda en ekki kodda úr gerviefni. Ef allt er eins og best verður á kosið þá munu krakkarnir finna muninn. Þau vakna ekki á morgnana með bólgin augu og þeim líður miklu betur yfir daginn. Er það ekki það sem við viljum? Birgitta Jónsdóttir Klasen https//www.birgittajonsdottirklasen.com https//www.Heilsumiðstöð Birgittu/facebook.com GÓÐA NÓTT Birgitta Jónsdóttir Klasen skrifar LEIKSKÓLAKENNARAR ÓSKAST Leikskólinn Gefnarborg er einkarekinn ögurra deilda leikskóli í Garði. Í leikskólanum er unnið metnaðarfullt starf þar sem mikil áhersla er á virðingu og jákvæð samskipti. Í starnu er stuðst við kenningar Howard Gardners og sérstök áhersla á ölmenningu og umhver- smennt. Í starfsmannahópinn vantar deildarstjóra og leikskólakennara á deild. Æskilegar menntunar- og hæfniskröfur eru: - Háskólagráða í leikskólakennarafræðum eða önnur uppeldismenntun - Góð færni í samskiptum - Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð Umsóknarfrestur er til 24. maí 2012. Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á heimasíðu leikskólans http://www.leikskolinn.is/gefnarborg Nánari upplýsingar veita leikskólastjóri og rekstraraðili í síma 422- 7166 Frjókornaofnæmi getur verið ansi hvimleitt og valdið viðkomandi miklum óþægindum. Frjó- korn frá ýmsum gróðri geta valdið bólguviðbrögðum í ónæmiskerf- inu með aukinni framleiðslu á his- tamíni, prostaglandínum og fleiri bólgumyndandi efnum. Áhrifin eru fyrst og fremst í slímhúð efri öndunarfæra og helstu einkenni eru augnkláði, kláði í nefi og hálsi, nefstíflur, nefrennsli, hnerri, þreyta og þrýstingur í höfði. Hægt er að halda einkennum í lágmarki með náttúrulegum leiðum en hafa ber í huga að sumir þurfa þó á ofnæmislyfjum að halda ef ein- kenni eru mjög mikil. Vel samsett og næringarrík fæða er að sjálfsögðu undirstaðan að sterku og heilbrigðu ónæmiskerfi. Ákveðin náttúruefni hafa jákvæð áhrif á einkenni frjókornaofnæmis eins og omega 3 fitusýrur, quer- cetin og C vítamín. Quercetin virðist koma í veg fyrir losun histamíns og er einna helst að finna í berjum, lauk, grapeávexti og eplum. Omega 3 fitu- sýrur fáum við með góðu móti úr lýsi, hörfræolíu og valhnetum. C vítamín finnst víða í grænmeti og ávöxtum og þá sérstaklega í sítrusávöxtum og papr- iku. Acidophilus meltingagerlar stuðla að heilbrigðri þarmaflóru í meltingarvegi og hafa þannig styrkjandi áhrif á ónæmiskerfið. Ýmsar jurtir geta dregið úr einkennum frjókornaofnæmis og ber helst að nefna brenninettlu, vallhumal, ylliblóm, kamilla, engifer og morgunfrú. Hægt er að drekka þessar jurtir í teformi eða taka inn í hylkjum en það þarf að taka þær inn frekar reglulega til að draga úr einkennum. Einnig er gagnlegt að setja eucalyptus ilmkjarnaolíu í pott af heitu vatni og anda að sér (gufuinnöndun) en það hefur slímlosandi áhrif. Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir. www.facebook.com/grasalaeknir.is Náttúruleg ráð gegn frjókornaofnæmi www.facebook.com/grasalaeknir.is ATVINNA Go2 flutningar óska eftir að ráða bílstjóra og ýmisstörf innan fyrirtækisins. Skilyrði er að viðkomandi hafi meira próf. Upplýsingar í síma 770 3571 Starfsmaður óskast hjá K9. Þarf að geta byrjað eigi seinna en 1. júni. Upplýsingar í síma 892 0044 K9 ehf, Flugvöllum 6, Sími 421 0050 ATVINNA LOKAHÓF YNGRI FLOKKA KÖRFUKNATT- LEIKSDEILDAR KEFLAVÍKUR verður haldið í Toyotahöllinni fimmtudaginn 10. maí kl. 18:00. Iðkendum verða veittar viður- kenningar fyrir góðan árangur og iðjusemi á leiktíðinni og pylsur verða grillaðar í mannskapinn. Iðkendur allir og foreldrar þeirra eru hvattir til að mæta. Barna- og unglingaráð KKDK Karlakór Keflavíkur er orðinn fastur þáttur í samfélaginu á Reykjanesi. Svo oft og við svo mörg ólík tækifæri hefur þessi hressi hópur karla þanið radd- bönd sín til að gleðja aðra og skapa stemmningu. Og ekkert lát varð á því á tónleikum þeirra sl. mánudag í Hljómahöllinni. Grunur leikur á að meiri kraftur og hiti hafi verið á þessum tón- leikum en endranær þar sem um kveðjutónleika fyrir stjórnand- ann til átta ára, Guðlaug Viktors- son var að ræða. Sannarlega stóðu tónleikar þessir undir frétt inni um stórtón- leika. Guðlaugur í meiri ham en nokkru sinni og kórinn fylgdi svo sannarlega. Það reynir á að syngja lög úr West Side Story eða eftir Leonard Bernstein en körlunum tókst ótrúlega vel að skila þessum erfiðu lögum á áheyrilegan hátt til fjölmargra gesta. Hafi einhverjir haldið að þar með væri hápunkt- inum náð þá átti Pílagrímakórinn eftir Tannhauser eftir að hljóma með tilheyrandi gæsahúð. Er mér til efs að kórfélagar hafi áður lagt sig jafn mikið fram um að skila sam- stilltu og áheyrilegu verki. Enda var salurinn heldur betur með á nót- unum – grun hef ég um að nokkur lög af gæsahúð hafi þar orðið til. Einsöngvara fékk kórinn til liðs við sig, þau Einar Clausen og Þórdísi Borgarsdóttur. Með einlægri og fallegri „heyr mína bæn“ skaust upp á himininn enn ein söngstjarnan á Suðurnesjum. Einar Clausen var ekki einhamur hvort heldur var í ítölskum stemmum eða íslensku poppi. Samleikur einsöngvara og kórs var fagmannlegur og leikinn af slíkri alúð að úr varð stórbrotinn heild. Undirleikur Jónasar Þórs á slaghörpuna hélt mönnum að mel- ódíunni af kostgæfni. En Karlakór Keflavíkur ræðast ekki bara á stóru verkin. Hann leikur sér líka að „léttmetinu“. Þekktir slagarar og dægurlög öndvegis- höfunda hleyptu enn frekara fjöri í kórinn og ekki síður hinn lifandi stjórnanda. Er ekki laust við að salurinn hafi allur verið farinn að iða undir fjörinu og klappaði dug- lega í lokin. Óhætt er að segja að Guðlaugur Viktorsson skilji eftir kraftmikinn kór og óskandi að arftaki hans haldi uppi merkinu. Kveðjutón- leikarnir voru besta sönnun þess hve vel Guðlaugur hefur haldið um sprotann með hinum söngelsku drengjum KK. Þeir sem voru svo ólánsamir að missa af tónleikum Karlakórsins á mánudag geta hrósað happi því þeir verða endur- teknir í Hljómahöllinni kl. 20:30 fimmtudaginn 10. maí. Ég þakka kórnum frábæra kvöld- stund. Hjálmar Árnason. Stuð á Karlakórnum í Hljómahöllinni

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.