Víkurfréttir - 16.08.2012, Síða 16
FIMMTUDAGURINN 16. ÁGÚST 2012 • VÍKURFRÉTTIR16
Hafdís er á samningi hjá Elite Model á Íslandi en hún er
einn keppenda í aðþjóðlegri fyr-
irsætukeppni sem heitir Fresh
Faces 2012. Í október mun Traffic
Models og modelmanagement.
com velja 10 módel sem komast
í lokakeppnina í Barcelona. Val
þeirra mun ákvarðast af fjölda at-
kvæða og hvort að viðkomandi
hafi það sem þeir eru að leitast
eftir.
Hafdís var lengi vel í efsta sætinu
í Fresh Faces International en hún
er í 6. sæti þessa stundina. Til gam-
ans má geta að þeir sem hafa kom-
ist í topp 10 í Fresh Faces hafa t.d.
náð að landa samningum hjá Prada
& Armani, Karl Lagerfeld og fleiri
stórum nöfnum.
Hvernig kom það til að þú fórst að
fást við fyrirsætustörf?
„Það má eiginlega segja að það hafi
byrjað þannig að ég fór í mynda-
töku hjá áhugaljósmyndara og þar
fann ég að þetta var eitthvað sem að
ég hafði virkilegan áhuga á.“
Óskað er eftir öflugum stjórnanda í stöðu forstöðumanns nýs Þekkingarseturs
Suðurnesja sem staðsett er að Garðvegi 1 í Sandgerði.
Meginhlutverk Þekkingarsetursins er að stuðla að rannsóknum og vera miðstöð
rannsóknastarfs og rannsakenda í náttúrufræðum og tengdum greinum á Suðurnesjum.
Setrinu er jafnframt ætlað að stuðla að margvíslegri háskólakennslu og fræðslustarfsemi
og efla tengsl atvinnulífs, rannsókna- og fræðastarfs á svæðinu. Þannig skal stefnt að
auknu frumkvöðlastarfi og nýsköpun, ásamt eflingu náttúrutengdrar ferðaþjónustu.
Forstöðumaður Þekkingarseturs Suðurnesja ber m.a. ábyrgð á:
• öflun styrkja úr samkeppnissjóðum og utanumhald um styrkumsóknir,
• stefnumótun og útfærslu á starfsemi Þekkingarsetursins,
• fjármálum og rekstri,
• þróun samstarfsverkefna,
• starfsmannamálum,
• tengslum við innlenda og erlenda aðila.
Umsækjendur skulu hafa:
• háskólamenntun á framhaldsstigi sem nýtist í starfi,
• hæfni, þekkingu og reynslu á rannsóknaumhverfi,
• reynslu af stjórnun og stefnumótun,
• frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum,
• leiðtogahæfileika,
• góða samskiptahæfni,
• gott vald á mæltu og rituðu máli, bæði á íslensku og ensku, og hæfileika til að
setja fram efni á skýran hátt.
Með umsókn skal fylgja kynningarbréf auk yfirlits um námsferil og fyrri störf (CV).
Umsóknir skulu merktar „Þekkingarsetur Suðurnesja“ og berast á rafrænu formi til
Sandgerðisbæjar á netfangið: sandgerdi@sandgerdi.is. fyrir 1. september. Öllum
umsóknum verður svarað.
ATVINNA
Forstöðumaður
Þekkingarseturs Suðurnesja
Hefurðu áhuga á því að starfa í þess-
um bransa í framtíðinni?
„Já það er draumur minn að vinna
við þetta í framtíðinni. Draumurinn
er að fá vinnu við þetta erlendis þar
sem möguleikarnir eru fleiri. Ég er
reyndar komin með eitt tilboð hjá
módelskrifstofu á Ítalíu sem ég er
að skoða í augnablikinu.
Hér að neðan er svo vefsíðan þar
sem hægt er að greiða Hafdís at-
kvæði í keppninni.
http://www.modelmanagement.
com/model/hafdis-hildur/
Draumur að
komast erlendis
Hafdís Hildur Clausen er 16 ára stúlka úr Keflavík sem er að vekja athygli
víða sem fyrirsæta um þessar mundir. Hún hefur verið að vinna í Lífstíl í
sumar en í haust ætlar hún að hefja nám í FS þar sem stefnan er tekin á
tungumálabraut. Hafdís ætlar svo í frekara nám en hefur ekki ákveðið hvað
verður fyrir valinu. Hún hefur verið í hestaíþróttum frá 6 ára aldri en fjöl-
skylda hennar er á fullu í hestunum. Önnur áhugamál hennar eru dans og
körfubolti. Þar nýtist hæðin henni eflaust vel en Hafdís er 180 cm á hæð.
Yfirheyrsla
Eitthvað sem fáir vita um þig?
Ég er með rosalega fóbíu fyr-
ir köngulóm! Svo eru fáir sem
myndu trúa því en ég er mjög
feimin manneskja, en ég læt
mig bara hafa hlutina!
Hvað er í uppáhaldi hjá Hafdísi?
Matur: Kjúklingur með spínati,
tómötum og fetaosti.
Drykkur: Kristall plús með
bláberjabragði.
Tónlist: Ég er alæta á tónlist,
en Ed Sheeran er í miklu upp-
áhaldi.
Kvikmynd: Þessa stundina er
það The Hunger Games.
Sjónvarpsþáttur: Blue Mounta-
in State, Supernatural, Geordie/
Jersey Shore, The Vampire Di-
aries, svo er Friends alltaf klass-
ískt!
Skyndibiti: Subway
Flík: Það er engin uppáhalds
flík, en kósýfötin eru alltaf í upp-
áhaldi.
Hlutur: Ég gæti varla lifað án
símans, tölvunnar og Ipodsins.
Bókin: Ég les voða lítið bækur,
en „Ég man þig“ eftir Yrsu Sig-
urðardóttur finnst mér rosalega
góð.
Ljósmynd: Helga Erla
Ljósmynd: Karen Jóns
Jóhanna Linda Marta Svala
Hársnyrtistofan
sameinast í
Föstudaginn 24. ágúst
opnum við saman nýja hársnyrtistofu undir nafninu
ProModa sem staðsett verður á Nesvöllum.
Allir velkomnir!
Njarðarvellir 4, 260 Reykjanesbær
Nýtt símanúmer 421-4848