Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.2010, Síða 24

Ægir - 01.06.2010, Síða 24
24 F I S K M A R K A Ð I R Á fundi Héraðsráðs Snæfell- inga þann 3. september 1991 var ákveðið að hefja undirbún- ing að stofnun fiskmarkaðs á Snæfellsnesi. Í undirbúnigns- nefnd voru skipaðir Atli Viðar Jónsson Grundarfirði, Bæring Guðmundsson Stykkishólmi, Sævar Friðþjófsson Rifi, Páll Ingólfsson Ólafsvík og Jón Pálsson frá Atvinnuráðgjöf Vesturlands. Undirbúnings- vinna hófst strax á haustmán- uðum 1991, með aðstoð At- vinnuráðgjafar Vesturlands, þar sem gerðar voru hag- kvæmnisathuganir á verkefn- inu, áætlanir um fjárfestingar og arðssemisútreikningar. Vinna þessi var m.a. unnin í góðri samvinnu við Faxamark- að í Reykjavík bæði hvað varð- ar tæknileg atriði og uppboðs- kerfi. Hlutafjársöfnun gekk strax með ágætum og skráðu 80 fyrirtæki og einstaklingar sig fyrir hlutafé við stofnun fé- lagsins. Stærstu hluthafar við stofnun voru hafnarsjóðir sveitarfélagana á Snæfellsnesi ásamt nokkrum fiskverkunar- og útgerðarfélögum á svæð- inu. Fyrstu stjórn félagsins skipuðu eftirtaldir: Sævar Friðþjófsson, Rifi, Páll Ingólfs- son, Ólafsvík, Atli Viðar Jóns- son, Grundarfirði, Pétur Ág- ústsson, Stykkishólmi og Magnús Stefánsson, Grundar- firði Framkvæmdastjóri var ráð- inn Guðjón Ingólfsson en hann lét síðan af störfum eftir nokkurra vikna vinnu og í hans stað var ráðinn Tryggvi Leifur Óttarsson. Hann gegndi starfi framkvæmdastjóra allt þar til í maí 2008 þegar und- irritaður tók við starfi fram- kvæmdastjóra. Tryggvi Leifur á að öllum öðrum ólöstuðum stærstan þátt í að byggja fyrir- tækið upp og gera að því sem það er í dag. Fyrsta starfsstöðin í Ólafsvík Eiginleg starfsemi hófst með opnun starfsstöðvar í Ólafs- vík. Fór fyrsta uppboðið fram 8. janúar 1992 og fljótlega í kjölfarið var opnuð starfsstöð í Grundarfirði. Starfsstöð fé- lagsins í Ólafsvík var til húsa að Norðurgarði í húsnæði Sigurður Valdimarssonar en í Grundarfirði var gerður verk- takasamningur við fiskverk- unina Stöð hf. í Grundarfirði. Í Stykkihólmi var tekinn á leigu hluti húsnæðis fiskverk- unarinnar Hamraenda hf. Strax á næstu mánuðum voru einnig opnaðar starfs- stöðvar í Rifi og á Arnastapa. Í öllum tilfellum var starfsemi félagsins rekin í leiguhús- næði. Enginn vafi er á því í mínum huga að sterk sam- staða allra á Snæfellsnesi er og verður burðarstólpi þessa félags. Fljótlega kom í ljós að hús- næði það sem tekið var á leigu í Ólafsvík var of lítið og óhentugt og var því starfsemi félagsins flutt í húsnæði Hróa hf. strax á haustmánuðum 1993. Á fyrsta ári félagsins, þ.e. árinu 1992, voru seld 9.783 tonn fyrir um 758 milljónir króna eða meðalverð uppá 77,69 kr. pr. kg. Afkoma fé- lagsins fyrsta árið var nei- kvæð upp á um 4 millj. kr. og stafaði það einna helst af miklum fjárfestingum í um- búðum, ásamt tækjum og búnaði. Einnig hafði þar áhrif vankunnátta og byrjunarörð- ugleikar eins og algengt er við stofnun fyrirtækis og sú staðreynd að á mjög skömm- um tíma var ráðist í opnun starfsstöðva á öllum höfnum á Snæfellsnesi. Strax á öðru starfsári félagsins tókst að snúa rekstri félagsins í hagn- að. Hefur svo verið allar göt- ur síðan, að undanskildu ár- inu 2008, þegar jú allflest fyr- irtæki voru með neikvæða af- komu sem stafaði eingöngu af gengistapi á erlendum lán- um félagsins. Umsvifin stóraukast Á árinu 1997 var tekið í notk- un nýtt húsnæði á hafnar- svæðinu í Ólafsvík undir að- alstöðvar félagsins og strax árið eftir festi félagið kaup á húsnæði í Rifi. Við það breytt- ist öll aðstaða og ásýnd fé- lagsins til hins betra. Þegar hér var komið held ég að engum hafi dulist að með því víðtæka samstarfi sem um fé- lagið var á Snæfellsnesi hafði tekist að byggja upp sterkt og öflugt fyrirtæki á svæðinu. Fyrirtæki sem allir Snæfelling- ar, bæði viðskiptavinir þess, starfsfólk félagsins sem og aðrir Snæfellingar gátu verið stoltir af. Starfsemi félagsins var með nokkuð svipuðum hætti frá stofnun þess og allt fram til ársins 1999 en það ár var Fiskmarkaður Snæfellsness hf., sem einnig var rekinn í Ólafsvík, sameinaður félag- inu. Segja má að við þann samruna hafi hafist miklar umbreytingar hjá félaginu. Strax árið eftir þ.e. á árinu 2000 var Faxamarkaður hf. í Reykjavík, sem einnig var Stofnun og uppbygging Fiskmarkaðs Íslands Höfundur er Páll Ingólfsson, fram- kvæmdastjóri Fiskmarkaðs Íslands Fiskmarkaður Íslands hefur nærfellt helmings markaðshlutdeild meðal fiskmarkaða hér á landi.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.