Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1967, Page 84

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1967, Page 84
Siglaugur Brynleifsson Alfræðihækur Á síðuslu misserum hefur upphafizt hér- lendis mikið alfræðibókaprang. Sölumenn hafa farið á milli manna og boðið alfræði- bækur ásamt fylgiritum og árbókum með miklum kostakjörum, að eigin sögn. Sölu- tækni þessara manna virðist sniðin eftir aðferðum, sem ekki hafa hingað til þótt til fyrirmyndar í Evrópu. Slegið er á strengi hégómagirndar væntanlegs kaupanda, hann látinn vita það, að útgáfufyrirtækið bjóði honum áskrift að alfræðiritunum, þar eð vitað sé, að hann flokkist til þess hóps manna, sem sé nauðsynlegt að eiga siíkt rit, vegna menntunar og stöðu í þjóðfélag- inu. Látið er að því liggja, að öllum sé ekki boðinn þessi dýrgripur og síðan fylgir, að nú standi yfir kynningarár viðkomandi alfræðirits og cftirspurn sé mikil og að slíkt rit sé aðeins boðið einu sinni. Fómar- lambið verður því að taka ákvörðun þegar í stað, og hver vill missa af slíku hnossi? Auk þess fylgja oft aðalritunum aukarit, svo sem nokkur bindi úrvals barnabóka, yfirlitsrit um læknisfræði, steinafræði, við- skiptafræði og líffræði og auk þess mjög myndskreytt útgáfa af Biblíunni. Og allt þetta fær inaðurinn fyrir Htinn hundraðs- hluta mánaðarlauna, mánaðarlega. Síðan eru víxlar samþykktir og forgreiðslur hefj- ast og svo líða vikur, stundum mánuðir, og þá kemur sendingin. Oft leggja sölu- menn áherzlu á, að hægt sé að fá bókaskáp undir ritin, sem kosti sama og ekkert, skápur þessi er úr mismunandi efni og flestir kaupa auðvitað dýrasta skápinn, enda er verðið lágt. Sendingin kemur, skápnum er stillt upp á áberandi stað og bókum raðað í hann og allir eru ánægðir. Mikið magn hefur verið selt af þessum alfræðirilum, svo inikið að útgefendur eins ritsins eru ánægðari með árangurinn hér heldur en í Svíþjóð, og það án þess að iniðað sé við fólksfjölda. Þar sem salan er svo mikil hér, að ein dýrasta alfræðibókin hefur selzt meira hér á landi en í fjölmennasta og auðugasta ríki Norðurlanda, hljóta landsmenn að kaupa þetta rit af öðrum ástæðum en þekkingar- áhuga, rit þetta er orðið stöðumerki. Það þykir hæfa að eiga þetta rit, eins og upp- þvottavél og bifreið, jafnvel Volkswagen. Og um þetta er ekki að fást. Það er aldrei skaði að því að eiga góða alfræðiorðabók, jafnvel þótt hún liggi óhreyfð í skáp sínum næstu árin. Þótt sölutækni þeirra manna sé heldur ósmekkleg, sem selja sæmileg alfræðirit, þá er hitt lakara, þegar þessir umferðasalar taka að selja ómerkilega vöru með góðum árangri. En nú er sá tími upp- runninn. Saga alfræðirita er jafnlöng sögu ev. rópskrar menningar. Fyrsta ritið, sem nefna má alfræðirit, var selt saman af systursyni Platons og arftaka Speusippos. Hann ætl- aði þetta rit einkum til stuðnings við kennslu í Akademíu Platons. Brot þessa rits hafa varðveitzt. Efnið og stíllinn er runnið frá lærimeistaranum, svo segja má að Blaton hafi verið fyrsti alfræðibókar- höfundurinn. Meðal Rómverja getur al- fræðirita eftir Varro og Plíníus eldri og um árið 200 kemur út alfræðirit í Kína og 290
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.