Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.2010, Blaðsíða 29

Ægir - 01.09.2010, Blaðsíða 29
29 U m B Ú Ð A m á L þátt í þjónustu við viðskipta- vini fyrirtækisins að fara um landið og kynnast aðstæðum á hverjum stað. Þannig sé betur hægt að skynja þarfir og tækifæri viðskiptavinanna. „Við erum sérhæfðir í öllu sem lýtur að pökkun og um- búðum og snar þáttur í okkar þjónustu er að ráðleggja við- skiptavinum um val á lausn- um, bæði hvað varðar tæki og umbúðir. Undanfarin ár hefur átt sér stað mikil upp- bygging í uppsjávarfisk- vinnslu á nokkrum stöðum á landinu og við höfum verið þátttakendur í því verkefni með búnaði og nýjum lausn- um. Makrílvinnslan í sumar fylgdi síðan í kjölfarið en með henni hefur fengist betri nýting á allan búnað og fyrir- tæki treyst sér í meiri fjárfest- ingar og endurnýjun tækja. Dæmi eru um viðskiptavini sem hafa beinlínis keypt vél- ar vegna vinnslu á makrílnum en annars nýtast sömu pökk- unarlínur fyrir makrílinn og loðnu og síld. Eiginlega má segja að með tilkomu mak- rílsins fáist nýting á vélbún- aðinn á þeim tíma ársins sem hann stóð áður ónotaður. Nú er uppsjávarvinnslan nokkuð samfelld yfir árið - makríll að sumrinu, síldin á haustin og fram á miðjan vetur og þá tekur loðnan við fram undir vorið. Makríllinn var því sannarlega kærkominn, var mikil innspýting fyrir greinina í sumar og er vonandi kom- inn til að vera,“ segir Gísli. Til vinstri er stæða með tveggja kílóa humaröskum. Til hægri eru kassar fyrir flutn- ing á ferskum fiski. Humarkassar. Hér má sjá að miklir möguleikar eru í áprentun umbúðanna. I Þorgerður Einarsdóttir, 56 ára, dagmamma í Kópavogi. „Það sem íslenska þörunga hafkalkið hefur gert fyrir mig: Ég fékk slæma vefjagigt upp úr sjálfsofnæmi og fylgdu því miklir verkir og bólgur. Eftir að ég hafði prófað mig áfram með ýmis náttúruefni þá datt ég niður á þörunga hafkalkið. Ég fann smám saman að það dró úr verkjum og bólgum og líkaminn virðist vinna betur á allan hátt. Eftir að hafa tekið Hafkalk inn í nokkurn tíma finn ég stóran mun og það nægir mér. Ég mæli því hiklaust með inntöku Hafkalks og þakka kærlega fyrir“.  er náttúruleg steinefnablanda sem unnin er úr kalkþörungum úr Arnarfirði.  er til að fyrirbyggja beinþynningu.  styrkir brjósk og bein og virðist draga úr liðverkjum vegna slitgigtar.  minnkar magasýrur og getur dregið úr brjóstsviða.  Fjölmargir segja að neglur og hár verði fallegra og nokkrir segjast hafa losnað við sinadrátt og fótaóeirð þegar þeir fóru að taka . Fæst í lyfja- og heilsubúðum um land allt.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.