Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.2010, Blaðsíða 24

Ægir - 01.09.2010, Blaðsíða 24
24 ig boðið markaðnum upp á hátt þjón- ustustig, þ.e. jafna og örugga afhendingu árið um kring en slíkt er að sjálfsögðu erfiðara þegar byggt er á villtri veiði. Segja má að íslenskur sjávarútvegur hafi með ýmsum hætti reynt að bregðast við þessu en eins og allir þekkja geta margir óviðráðanlegir ytri þættir haft áhrif á þetta atriði. „Við erum semsé að horfa á þessi þrjú atriði, þ.e. kjötgæðin, vinnslugæðin og þjónustustigið. Við getum verið bestir í kjötgæðunum og undirstrikað þau með villtum veiðum og vel stýrðum sjávarút- vegi, við getum farið áleiðis í samkeppn- inni um vinnslugæðin og sömuleiðis verðum við að gera allt sem við getum til að komast áleiðis hvað áreiðanleikann og þjónustustigið varðar.“ Veiðistjórnun og umhverfismál sífellt mik- ilvægari „Þessi atriði eru mjög mikilvæg,“ svarar Kristján þeirri spurningu hversu náin tengsl séu milli markaðsmála, umhverfis- mála og veiðistjórnunar. „Það er mjög hröð þróun á þessum sviðum og við- skiptavinir krefjast í auknum mæli að fiskur eigi uppruna sinn í vottuðum veiðum eða eldi. Með tilkomu íslenska umhverfismerkisins á framleiðslu sjávar- afurða erum við að stíga gott skref í þessa átt. Ástæðan er sú að stóru vöru- merkin og verslanakeðjurnar eru að draga úr sinni áhættu með því að geta sagt við sína viðskiptavini og hluthafa að þau geri allt sem hægt er til að tryggja að vel sé gengið um náttúruna og auð- lindir hafsins og að afurðin sé framleidd af mikilli ábyrgð hvað þetta varðar.“ Aðaláherslan á Evrópumarkað Um langt skeið var Ameríkumarkaður mjög mikilvægur fyrir útflutning á fryst- um afurðum en síðan hefur áherslan færst yfir til Evrópu. Sú spurning er áleit- in hvort við séum rétt staðsett, ef svo má segja, á þeim markaði eða hvort ástæða sé til að horfa til annarra svæða, s.s. Asíu eða Rússlands. „Breytingin frá Bandaríkjunum yfir til Evrópu lá að hluta til í gengisþróun doll- arsins en það er ómögulegt að segja til um hvort það muni einhvern tímann breytast aftur. Styrkur íslensks sjávarút- vegs hefur að hluta til verið sveigjanleik- inn til þess að nýta sér tækifæri, hvort heldur er í mismunandi veiðum eða teg- undum. Þegar við ræðum um markaði skiptir því máli hvað við erum að veiða hverju sinni. Stærsti markaður okkar fyrir bolfisk er í Evrópu, hvort heldur við horfum til frystra afurða, saltaðra eða ferskra. Þess vegna á áhersla okkar að vera þar en við megum ekki horfa framhjá möguleikum í Rússlandi, sem gætu farið vaxandi. Ef við horfum á uppsjávarfiskinn þá höfum við Asíumarkað og það eru tæki- færi fyrir okkur í Austur-Evrópu og Afr- íku en þar eru menn að fara hver í sínu lagi inn á markaðinn en ekki sem heild. Að mínu mati ættu íslenskir framleiðend- ur að nýta tækifæri til að markaðssetja sína framleiðslu sameiginlega bæði í Rússlandi og Afríkulöndum. Þannig eig- um við meiri möguleika á bestu verðun- um og viðskiptavinunum.“ Verðum að halda sögunni á lofti Kristján telur markaðslega mjög jákvætt að veiðar hér á miðunum verði vottaðar og hann segir upprunamerki íslenskra sjávarafurða geta styrkt markaðsstarfið. Eftir sem áður sé staðreyndin sú að sjáv- arafurðir frá Íslandi séu ekki þekktar undir neinu einu sterku vörumerki úti á mörkuðunum. „Til að mæta þessari staðreynd tel ég að íslenskir framleiðendur eigi að sam- einast um að efla vitundina um uppruna fisksins, koma því á framfæri af hverju við erum með svona góða vöru, upplýsa betur hvernig við stöndum að veiðunum - einfaldlega halda sögunni betur á lofti. Hún er okkar markaðstæki og greinir okkur frá öðrum. Nýja umhverfismerkið getur stutt svona markaðsátak en það verður alltaf á herðum framleiðenda að fjárfesta í því verkefni. Það heyrir enginn þó við segjum söguna úti í horni - við verðum að sjá til þess að allir heyri hana. Í hugum neytenda þarf að alltaf að vera til ákveðin saga að baki vörunni sem þeir kaupa; ímynd og væntingar,“ Tæknivædd fiskvinnsla á Íslandi. Kristján segir okkur ekki geta keppt við Kínverja sem byggi sína vinnslutækni á mannshöndinni. Æ g I S V I Ð T A L

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.