Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.2010, Blaðsíða 33

Ægir - 01.09.2010, Blaðsíða 33
33 ingar í tiltekinn tíma fyrir sama aðila yfir í styttri þjón- ustusamninga, ákveðið magn og svo framvegis. Stundum fáum við líka óskir frá fram- leiðendum þar sem þeir taka eitthvað tiltekið magn til hlið- ar og fela okkur að finna nýja viðskiptavini og þá helst í þeim tilgangi að fá betra verð.“ Afurðaverðið á uppleið Aðal markaðssvæði Íspóla fyrir íslenskar vörur er í Evr- ópu og Elvar bendir á að fyrir því hafi fundist á síðustu tveimur árum að það er víðar en á Íslandi sem skóinn hefur kreppt efnahagslega. Þetta birtist til að mynda í óskum kaupenda um lengri gjaldfrest á afurðum „en við höfum hins vegar lagt mikið upp úr því í okkar þjónustu við selj- endur og kaupendur að gert sé upp þegar kaupandinn hefur fengið vöruna í hendur. Þetta hefur gengið vel og er auðvitað mest um vert fyrir seljendur að geta treyst á ör- yggi viðskiptanna. Okkar hlutverk er því að finna trausta kaupendur, sem kunna að meta íslenskar af- urðir og vilja borga gott verð fyrir þær,“ segir Elvar. Þrátt fyrir efnahagssam- drátt á heimsvísu segir Elvar að verð á fiskafurðum sé á uppleið. „Fyrst eftir að efna- hagshrunið gaf fiskverðið töluvert eftir en að undan- förnu hefur verð á flestum af- urðum hækkað. Þetta sjáum við vel í verði á þorskafurð- um og sama er að segja um humarafurðirnar síðastliðið sumar. Ég held að það sé ekki ástæða til að ætla annað en þessi þróun haldi áfram. Það er svigrúm fyrir einhverj- ar frekari hækkanir en þess þarf líka að gæta að fara ekki of geyst. Sagan segir okkur að þegar verðið fer of hátt þá lækkar það nokkuð bratt líka. En á þessu ári sjáum við tals- vert annað umhverfi en í fyrra. Þá var mikil óvissa ein- kennandi á mörkuðum, kaupendur þorðu ekki að taka eins miklar birgðir og þeir hefðu viljað en þegar kom fram á þetta ár sáust merki þess að tiltrú á mark- aðinn og viðskiptalífið voru að aukast á ný. Vinnuum- hverfi okkar er því allt annað en var í fyrra,“ segir Elvar en flestir viðskiptavinir fyrirtæk- isins erlendis eru heildsölu- fyrirtæki sem aftur hafa að baki sér fjölbreytt net kaup- enda, allt frá verslunarkeðjum til matsölustaða. Verður alltaf spurn eftir fryst- um afurðum Þó útflutningur á ferskum fiski hafi sótt á segir Elvar al- veg ljóst að ákveðinn hluti markaðins sækist áfram eftir frosnum afurðum. Ferksfisk- vinnslan krefjist búnaðar og aðstöðu sem ekki hafi allir framleiðendur yfir að ráða, auk þess sem ekki sé allur afli tækur til ferkfiskútflutn- ings. „Þrátt fyrir að ferskfiskút- flutningurinn komi til með að aukast enn frá því sem nú er þá þarf eftir sem áður að þjónusta kaupendur frosinna afurða og það er okkar sér- hæfing hjá Íspólum,“ segir Elvar og svarar því aðspurður að á þessum markaði sé sam- keppnin hörð. „Já, vissulega er hún það. Við erum til dæmis að keppa við tvífrystar afurðir frá Kína og ekki síður í auknum mæli afurðir frá Eystrasaltslöndun- um og Rússlandi. Þar hefur sjávarútvegurinn fengið stöð- ugra umhverfi í fiskveiðistjór- nun til næstu ára og Rússarn- ir eru í greinilegri sókn með sínar vinnslur og skip. Þetta er atriði sem verður að fara að leiða til lykta hérna heima því við finnum að framleið- endur halda að sér höndum með margar brýnar fjárfest- ingar í bæði skipum og vinnslum. Þeir bíða eftir nið- urstöðu stjórnvalda um hvert fyrirkomulag fiskveiðistjór- nunarinnar á að vera til fram- tíðar og þannig má segja að þessi óvissa hafi líka áhrif á starf okkar sem komum að sölu afurðanna.“ Sterk ímynd er okkar markaðsvopn Elvar segir ímynd íslenskra sjávarafurða sterka víða um heim. Á því byggist sterkasta vígi okkar afurða úti á mörk- uðunum. „Afurðir okkar eru þekktar fyrir gæði og ferskleika og er- lendis eru sú vitund sterk að Íslendingar kunni að fram- leiða góðan fisk, þ.e. veiða hann og halda gæðunum í gegnum ferilinn allt þar til komið er á borð kaupandans. Ég held að okkar markaðir sýni mikið trygglyndi, með því fororði þó að við stönd- um okkur í samkeppni um verð. Á meðan okkur tekst það þá held ég að alltaf verði spurn eftir íslenskum fiski,“ segir Elvar Árni Lund. Ú T F L U T N I N g U R & m A R K A Ð S m á L Cretel vélar eru með allar lausnir fyrir roðettingu. Nobilis 460V Ný hönnun, sem roðettir skinn með mestu mögulegu nýtni. Nobilis 460TAC Alsjálfvirk roðettivél Oannes 362 Fjölhæf roðettivél á borð. ERTU AÐ FISKA EFTIR BETRI NÝTINGU ? Upplýsingar hjá sölumönnum í s: 567 88 88 og á www.cretel.com

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.