Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.2010, Blaðsíða 34

Ægir - 01.09.2010, Blaðsíða 34
34 A F U R Ð A F L U T N I N g A R Með tilraunum hefur verið sýnt fram á að hægt er að lengja geymsluþol ferskra þorskhnakka um allt 4-5 daga ef rétt er staðið að kælingu við framleiðslu og flutningi vörunnar á markað. Þetta hef- ur verið leitt í ljós í verkefninu „Hermun kæliferla“ sem styrkt er af AVS sjóðnum. Flutningur með flugi er dýr flutningsmáti auk þess sem svokölluð sótspor þess háttar flutninga er mun stærra en með skipi. Hins vegar eru flugflutningar frá landinu mun tíðari og geta þar af leiðandi þjónað viðskiptavin- um betur hvað varðar af- hendingar en skipaflutninga. Frá verkefninu er sagt á heimasíðu AVS sjóðsðins og þar kemur fram að fram- kvæmdar hafi verið margar áhugaverðar tilraunir og kort- lagðir hitaferlar mismunandi flutninga. Í einni tilrauninni var tekið mið af fyrirliggjandi niðurstöðum hitakortlagning- ar kælikeðja þegar hitaferlar fyrir flug- og sjóflutning voru hannaðir fyrir tilraunirnar. Hitastýrðir kæliklefar Matís komu að góðum notum eins og svo oft áður. Eftir flutning frá framleiðanda á norðan- verðu Íslandi til Matís í Reykjavík varð flugfiskurinn fyrir tveimur tiltölulega væg- um hitasveiflum (um 9 °C í 9 klst. og um 13 °C í 4 klst. nokkrum klst. síðar) og við tók nokkurra daga geymsla við 1 °C. Gámafiskurinn var aftur á móti geymdur við -1 °C, sem er raunhæfur mögu- leiki við gámaflutninga með skipum, frá komu til Matís í Reykjavík. Vert er að geta þess að hitaálag í flugflutn- ingi getur orðið umtalsvert meira en fyrrgreindur flug- hitaferill segir til um, sam- kvæmt mælingum Matís. Not- ast var við hitamælingar, skynmat, efna- og örveru- mælingar til að bera flutn- ingsmátana tvo saman. Sjóflutningarnir vel raunhæfir Hermun flug- og sjóflutnings, mælingar á hitasveiflum og stöðugum hita, leiddu í ljós að fyrir vel forkælda þorsk- hnakka má vænta um fjög- urra daga lengra ferskleika- tímabils og um fimm daga lengra geymsluþols í vel hita- stýrðum sjóflutningi miðað við dæmigerðan flugflutn- ingsferil. Þar sem sjóflutning- ur frá Íslandi tekur oft um fjórum til fimm dögum lengri tíma en flugflutningur (háð m.a. vikudegi og staðsetn- ingu vinnslunnar) sýnir þetta að sjóflutningur er raunhæfur möguleiki fyrir íslenska fersk- fiskframleiðendur. Þetta byggir þó á því að hitastýring í gámum sé eins og best verður á kosið. Samanburður á hitastýringu í mismunandi gámategundum er einmitt eitt af viðfangsefnum verkefnisins „Hermun kæliferla“. Með skipum í stað flugvéla Ferskum fiski pakkað í frauðplastöskjur til útflutnings. HDS 10/20-4 M 30-200 bör 500-1000 ltr/klst HDS 8/17-4 M 30-170 bör 400-800 ltr/klst HDS 5/11 U/UX 110 bör 450 ltr/klst 1x230 volt Gufudælur Aflmiklir vinnuþjarkar Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · Fax 568-0215 · www.rafver.is K Ä R C H E R S Ö L U M E N N F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.