Fréttablaðið - 02.04.2015, Page 10
2. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Fermingargjöf
sem gleður.
Opið 13-18 í dag.
GJAFAKORT
SMÁRALINDAR
Fæst í apótekum, heilsubúðum
og stórmörkuðum
www.gengurvel.is
BELLAVISTA náttúrulegt
efni fyrir augun, ríkt af
lúteini og bláberjum
AUGNÞURRKUR
PALESTÍNA Aðild Palestínu að
Alþjóðlega sakadómstólnum, sem
er stríðsglæpadómstóll, tók gildi í
gær og þýðir að dómstóllinn hefur
nú umboð til að rannsaka meinta
stríðsglæpi sem framdir hafa
verið frá og með 13. júní síðast-
liðnum.
Það þýðir að Gasastríðið síðast-
liðið sumar, sem hófst 8. júlí og
stóð í fimmtíu daga, fellur innan
tímabilsins. Bæði Ísraelar og Pal-
estínumenn hafa verið sakaðir um
að hafa framið stríðsglæpi í þess-
um átökum.
Loftárásir Ísraela á Gasa kost-
uðu meira en 2.000 Palestínu-
menn lífið. Langflestir þeirra
voru almennir borgarar. Ísraelar
misstu aftur á móti 66 hermenn
og sex almenna borgara. Flug-
skeytasendingar Palestínumanna
yfir landamærin til Ísraels hafa
sömuleiðis verið sagðar stríðs-
glæpir, enda var almennum borg-
urum með þessu stefnt í hættu
þótt lítið tjón hafi í reynd orðið af
flugskeytunum.
Hvorki Palestínumenn né Ísra-
elar geta, ekki frekar en önnur
lönd, formlega kært mál til dóm-
stólsins. Dómstóllinn getur hins
vegar sjálfur haft frumkvæði að
rannsókn, og hægt er að senda
honum upplýsingar til skoðunar.
Dómstóllinn gæti einnig tekið
til rannsóknar framferði Ísraela á
hernumdu svæðunum. Samkvæmt
sáttmálanum, sem dómstóllinn
starfar eftir, telst bæði landtaka
á hernumdum svæðum og nauð-
ungarflutningar íbúa hernuminna
svæða til stríðsglæpa.
Mannréttindasamtökin Human
Rights Watch segja aðild Palestínu
að dómstólnum fagnaðarefni. Ríki
heims eigi að sýna henni stuðning.
Bandaríkin, Ísrael og Kanada
eru hins vegar gagnrýnd fyrir að
hafa reynt að vinna gegn aðild Pal-
estínu að dómstólnum.
Frá því Benjamín Netanjahú
varð forsætisráðherra Ísraels árið
2009 hafa Ísraelar eyðilagt heimili
meira en fimm þúsund Palestínu-
manna á Vesturbakkanum. Jafn-
framt hafa Ísraelar á þessu sama
tímabili reist eða hafið byggingu
meira en 10 þúsund heimila fyrir
ísraelska landtökumenn á Vestur-
bakkanum.
„Stjórnvöld ríkja, sem leitast
við að refsa Palestínumönnum
fyrir að gerast aðilar að Alþjóð-
lega sakadómstólnum eiga strax
að láta af þrýstingi sínum,“ segir
Balkees Jarrah hjá Human Rights
Watch. „Það sem er gagnrýnivert
eru þessar tilraunir til að grafa
undan alþjóðlegu réttarfari, ekki
ákvörðun Palestínu um að gerast
aðilar að samningi sem meira en
100 lönd víðs vegar um heim eiga
aðild að.“
Mannréttindavaktin segir
hvorki Ísraela né Palestínumenn
hafa staðið sig vel við að draga
sína menn til ábyrgðar fyrir
stríðsglæpi, hvorki sumarið 2014
né heldur fyrri brot.
Rannsókn á atburðunum síðasta
sumar stendur þó yfir á vegum
ísraelska hersins og Ísraelsríki
hefur sömuleiðis boðað rannsókn.
Ekki er vitað til þess að Palestínu-
menn ætli að gera neina rannsókn
á þessum atburðum.
gudsteinn@frettabladid.is
Aðild orðin að veruleika
Palestína varð í gær aðildarríki Alþjóðlega sakadómstólsins, þrátt fyrir hörð andmæli bæði frá Ísrael og Banda-
ríkjunum. Dómstóllinn getur þar með tekið til rannsóknar bæði Ísraela og Palestínumenn vegna stríðsglæpa.
KONUR Á GASA
Mikil eyðilegg-
ing varð í 50 daga
loftárásum Ísraels-
hers á Gasasvæðið
síðasta sumar.
NORDICPHOTOS/AFP
Það sem er gagnrýni-
vert eru þessar tilraunir til
að grafa undan alþjóðlegu
réttarfari, ekki ákvörðun
Palestínu um að gerast
aðilar að samningi sem
meira en 100 lönd víðs vegar
um heim eiga aðild að.
Balkees Jarrah, Human Right Watch
TÆKNI Planet Labs, bandarískt
hátæknifyrirtæki, hefur valið Ad-
vania sem hýsingaraðila fyrir safn
háskerpumynda sem floti gervi-
hnatta fyrirtækisins tekur stöðugt
af jörðinni. Planet Labs rekur 71
gervihnött sem allir eru á sporbaug
um jörðina og vakta ástand henn-
ar. Hver gervihnöttur er aðeins um
metri að lengd, tíu sentimetrar að
breidd og vegur aðeins um fjögur
kíló.
Gervihnettirnir skanna allt yfir-
borð jarðarinnar einu sinni á hverj-
um sólarhring og fylgjast m.a. með
ástandi ræktarlands, vatnsforða og
vexti þéttbýlis. Hýsing, flokkun og
öruggur aðgangur að hinu gríðar-
stóra myndasafni Planet Labs er
í gegnum Advania Open Cloud,
tölvuský Advania. Þessi lausn
byggir á Qstack-hugbúnaðinum
frá Greenqloud og gagnaverum Ad-
vania hér á landi, segir í tilkynn-
ingu Advania.
Planet Labs var stofnað árið 2010
af vísindamönnum sem áður störf-
uðu hjá NASA. - shá
Advania varð fyrir valinu hjá bandaríska hátæknifyrirtækinu Planet Labs:
Hýsa myndir utan úr geimnum
UTAN ÚR GEIMNUM Höfnin í San
Francisco í BNA. MYND/PLANETLABS
STJÓRNMÁL Fimm þingmenn Sam-
fylkingarinnar vilja að Alþingi
feli ríkisstjórninni að beita sér
fyrir því að Fríverslunarsamtök
Evrópu, EFTA, hefji viðræður
um fríverslun við Fríverslunar-
samtök Suðaustur-Asíu, ASEAN.
Í rökstuðningi með þingsálykt-
un þeirra er bent á að slíkt sam-
komulag væri rökrétt framhald
af fyrri fríverslunarsamningum
en á síðasta kjörtímabili samdi
Ísland um tvíhliða fríverslunar-
samning við Kína. - srs
Hvetji EFTA til samninga:
Vilja aukna frí-
verslun við Asíu
STJÓRNSÝSLA Eftir breytingar á
lögum um Jöfnunarsjóð sveitarfé-
laga er ráðgjafarnefnd sjóðsins nú
skipuð sjö fulltrúum í stað fimm
áður.
Fram kemur á vef Sambands
íslenskra sveitarfélaga að fyrsti
fundur nýskipaðrar nefndar hafi
farið fram í innanríkiráðuneytinu
í síðustu viku. Sambandið tilnefn-
ir sex fulltrúa en nýr formaður,
skipaður án tilnefningar, er Guðný
Sverrisdóttir, fyrrverandi sveitar-
stjóri í Grýtubakkahreppi. - óká
Nýskipuð nefnd fundar:
Fulltrúum var
fjölgað um tvo
STJÓRNMÁL Willum Þór Þórsson,
þingmaður Framsóknarflokks-
ins, hefur lagt fram þingsálykt-
unartillögu um stofnun íþrótta-
skóla í Kópavogi.
Í tillögunni er stjórnvöldum
gert að hefja viðræður við Kópa-
vogsbæ um stofnun nýs fram-
haldsskóla sem sérhæfir sig í
íþróttum. Í greinargerð með
frumvarpinu er bent á að mikil
fjölgun íbúa í Kópavogi kalli á
nýjan framhaldsskóla í bænum
en fyrir er einn framhaldsskóli í
Kópavogi. - srs
Fjölgun kallar á nýjan skóla.
Vill fá íþrótta-
skóla í Kópavog
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
E
-A
3
B
C
1
6
3
E
-A
2
8
0
1
6
3
E
-A
1
4
4
1
6
3
E
-A
0
0
8
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
0
6
4
s
_
1
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K