Fréttablaðið - 02.04.2015, Side 24
2. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| SKÍRDAGUR | 24
Unnsteinn er svo töff týpa að ég hélt að hann héti Retro og kallaði hann það,“ segir Sigga Klingen-berg þegar hún hitt-
ir Unnstein á rökstólum. Þau hafa
sem sagt hist áður.
Unnsteinn: Við dæmdum einu
sinni söngkeppni saman. Svo var
eitthvert djamm á Sushi Samba.
Sigga: Við vorum góð þar.
Vorum með karnival-hátíð. Við
erum alveg þannig týpur. Það
þarf meira af suðrænu blóði hérna
á Íslandi. Það þarf að fá heitt fólk
hingað til lands. Svo þurfum við að
flytja inn fleiri villt dýr. Mörgæs-
ir, ísbirni, storka og svona.
Finnst þér Ísland og Íslendingar
svona einsleitir?
Sigga: Tja, Íslendingar eru
allavega fljótir að móta sig að því
sem er skemmtilegt og fljótir að
skipta um skoðun, þannig að það
er lítið mál að bæta flóruna.
Unnsteinn: Já, það er fyndið með
Íslendinga. Við sem þjóð getum
skipt um skoðun á einu bretti. Eins
og með hundinn Lúkas, allir höt-
uðu einn gæja og svo vorkenndu
honum allir. Miklar sveiflur í
gangi.
Sigga: Við erum alveg opin og
skemmtileg þjóð. Ég vil bara fá
fleiri inn. Við erum of ströng að
hleypa fólki inn í landið. Eins og
einhver frændi þinn frá Angóla,
Unnsteinn, ætti bara að geta flutt
hingað.
Dramatískur krabbi
Sigga Kling er þekkt fyrir stjörnu-
spár sínar. Í síðustu viku var ein
aðalfréttin á Vísi að stjörnumerk-
in væru alls ekki í þeirri röð og
við höfum alltaf haldið. Fólk var í
uppnámi því allt í einu var það í
nýju merki. Hvað finnst ykkur um
þetta?
Sigga: Ég er örugglega búin að fá
hundrað pósta út af þessari frétt.
En sko, ef stjörnurnar eru breytt-
ar núna þýðir það bara að þeir sem
fæðast núna eru í nýja kerfinu.
Svo gæti þetta líka bara verið tómt
bull. Í hvaða stjörnumerki ert þú
Unnsteinn?
Unnsteinn: Ég er krabbi.
Sigga: Alveg týpískur krabbi.
Pollrólegur, tilfinningaríkur og
pínu dramatískur. Allt sem þarf til
að skapa góðan listamann. Þú ert
allavega ekki frosinn.
Unnsteinn: Ég spái svo sem lítið
í stjörnuspár.
Sigga: Enda er þetta bara dægra-
dvöl og fólk á aldrei að trúa 100% á
neitt, nema náttúrulega á sjálft sig.
Það hringdi í mig kona um daginn
sem sagði mér að hún hefði skil-
ið við manninn sinn eftir að hafa
lesið í stjörnuspá frá mér að hún
ætti að ganga frá ástamálunum. Ég
var alveg miður mín, fólk verður
að passa sig!
Þannig að þú berð ábyrgð á
hjónaskilnaði?
Sigga: Orð eru álög en þú verður
að trúa þeim til að það séu álög þín.
Unnsteinn: Kærastan mín hitti
þig nú einu sinni og þú spáðir
fyrir henni. Þú sagðir henni að
hlusta á drauma sína og vera ekki
að hanga í einhverju námi sem hún
hafði engan áhuga á. Hún var í lög-
fræði á þessum tíma, hætti og er
núna skartgripahönnuður. Og mjög
sátt við þá ákvörðun. Auðvitað var
þetta í undirmeðvitund hennar en
kannski ýttu orð þín við henni.
Sigga: Já, fólk skilur stjörnu-
spána eins og það vill. Jákvætt eða
neikvætt. Kannski þarf fólk bara
smá uppörvun.
Burt með virka í athugasemdum
Vantar kannski hlýrri og meira
uppörvandi samskipti á Íslandi?
Hvernig finnst ykkur til dæmis orð-
ræðan á Íslandi?
Unnsteinn: Orðræðan er alltof
meðvirk. Stjórnmálaumræðan í
öðrum löndum er miklu harðari.
Hér kemst fólk upp með allt því
allir eru frændur eða frænkur eða
börnin saman í leikskóla. Þann-
ig að í stað þess að fólk komi með
rökfasta gagnrýni felur fólk sig
bak við dónaskap í athugasemda-
kerfum fjölmiðlanna. Þá er skrif-
að eitthvað hræðilega særandi en
fólk sem ætti að vera að tjá sig
segir ekkert. Til dæmis í pólitík-
inni þar sem enginn þorir að dæma
einhvern í sínum eigin flokki. Við
erum hrikalega meðvirk þjóð.
Sigga: Mér finnst bara að við
ættum að sleppa þessum athuga-
semdakerfum. Fólk felur sig á bak
við fölsk nöfn og myndir. Margir
þora ekki að tjá sig við fjölmiðla
af ótta við athugasemdirnar. Mér
finnst þetta algjör smáborgara-
háttur.
Unnsteinn: Fólk tekur líka meira
mark á nokkrum neikvæðum
athugasemdum en einu jákvæðu
hrósi.
Sigga: Já, heilinn er nefnilega
neikvæður þar sem neikvæðnin er
sterkari.
Á þing með Unnstein!
Hafið þið orðið fyrir neteinelti?
Unnsteinn: Nei, ekki þannig en
hafandi alist upp við netið þá er
maður líka orðinn vanur ýmsu.
Sigga: Einu sinni gerði ég allt
klikkað á Blandi því það var verið
að skíta út vin minn og ég sagði að
þetta væri bara eitthvað flíspeysu-
og crockskólið. Þá átti ég vikuna á
vefnum. En ég bið börnin mín um
að sleppa því að segja mér ef þau
sjá eitthvað svona um mig á netinu.
Þótt einhver hafi einhverja skoðun
á mér þá þarf ég ekkert að vita það.
Unnsteinn: Það er eina vitið. Það
er líka búin til einhver spenna og
leiðindi á milli hópa með svona
kerfum. Til dæmis þessi gjá á
milli borgar og landsbyggðarinn-
ar sem er eingöngu búin til, til þess
að safna atkvæðum. Svona stríð er
búið til svo fólk sjái ekki alvöru
vandmálin. Það er til dæmis rifist
um hjólastíg í Borgartúni á meðan
ekki er rætt um fólk sem hefur
ekki efni á tannlækni.
Sigga: Ég vil bara sjá þig á þingi,
Unnsteinn.
Unnsteinn: Mín eina reynsla er
að hafa verið í nemendaráði Aust-
urbæjarskóla. Ég er eiginlega kom-
inn með nóg af stjórnmálamenn-
ingunni á Íslandi. Það fer svo mikið
fyrir freku köllunum en þannig er
ekki samfélagið. Sterkasta fólkið
er ekki frekir kallar. Sterka fólkið
er til dæmis kennararnir sem leiða
fullt af ungu fólki út í lífið en það
er engin virðing borin fyrir því.
Bara köllum sem keyra á Land
Cruiser – sem voru örugglega allir
saman í bekk og sitja saman í gufu-
baði á föstudögum.
Sigga: Ég hef engan áhuga á
að taka þátt í pólitík en hef alveg
sterkar skoðanir.
Unnsteinn: Það held ég að sé
algengt.
Það rímar kannski við sögu-
lega lélega kosningaþátttöku unga
fólksins í síðustu sveitarstjórnar-
kosningum?
Sigga: Já, ég þurfti að múta
mínum strákum með pitsu til að
kjósa.
Unnsteinn: Það er ekkert skrít-
ið enda er verið að tala mál sem
enginn skilur í pólitík. Fólk á
þingi skilur það varla sjálft. Nú
er til dæmis að koma aftur góð-
æri og blekkingin sem er í gangi
er að allir geti orðið ríki kallinn í
hverfinu. En það mun aldrei ger-
ast. Þetta er bara gamall peningur
sem helst áfram í fjölskyldunni. En
á meðan allir reyna að verða ríkir
rífa þeir ekki kjaft, heldur þegja
og halda áfram til að vera með í
keppninni. Samfélagið verður að
halda ríka fólkinu ánægðu.
Sigga: Þess vegna vil ég jafnan
skatt. Við viljum halda ríka fólk-
inu á landinu en ekki að það fari í
skattaskjól.
Spáð í spádómsprik
Jæja, ef við forðum okkur úr nei-
kvæðninni og tölum til dæmis um
sólina sem skín eftir harðan vetur.
Er það ekki ánægjulegt?
Sigga: Ég var smá að missa það
þennan vetur. Ég sem tala alltaf
vel um veðrið. Páll Bergþórsson
fór svo illa með mig þegar hann
sagði að það væri að koma þrjátíu
ára kuldakast. Páll Bergþórsson er
gegnheill maður og allt sem drýp-
ur af vörum hans er gull en þetta
er bara frosið gull. Ég skora á Pál
að draga þetta til baka.
Unnsteinn: Við verðum bara að
búa til nýlendu fyrir Ísland.
Sigga: Þetta er besta hugmynd
sem ég hef heyrt. Þú verður að fara
á þing. Ég kýs þig út af þessu. Nú
verður þú að draga galdraprik.
Unnsteinn dregur prik og Sigga
Kling les upp spádóminn.
„Þig heimur vekur
og undir hendur á þér tekur.
Það er að koma heilög stund,
það sem þú óskar, kemur á þinn
fund.
Birtan öllu breyta mun þó þú
hafir engan grun.“
Unnsteinn fer með þessi orð með
sér í stúdíóið þar sem hann vinnur
að gerð nýrrar plötu. Sigga ætlar
aftur á móti í frí með fjölskyldunni
til Valencia á Spáni yfir páskana,
og fer heim að pakka fyrir strönd-
ina.
Erla Björg
Gunnarsdóttir
erlabjorg@frettabladid.is
Á RÖKSTÓLUM
Spáð í prik og meðvirkni þjóðar
Unnsteinn Manúel Stefánsson og Sigríður Klingenberg ræða stjörnuspeki, meðvirkni, villt dýr og ljóta umræðu í athuga-
semdakerfum. Þau hafa hvorugt nokkurn áhuga á þátttöku í pólitík þrátt fyrir sterkar skoðanir á mönnum og málefnum.
Svona stríð er búið til
svo fólk sjái ekki alvöru
vandmálin. Það er til dæmis
rifist um hjólastíg í Borgar-
túni á meðan ekki er rætt
um fólk sem hefur ekki efni
á tannlækni.
Unnsteinn
Það hringdi í mig kona
um daginn sem sagði mér
að hún hefði skilið við
manninn sinn eftir að hafa
lesið í stjörnuspá frá mér að
hún ætti að ganga frá
ástamálunum. Ég var alveg
miður mín.
Sigga Kling
MEÐ SPÁDÓMS-
PRIKIN Sigga
Klingenberg
leyfir Unnsteini
að draga prik og
les fyrir hann
spádóminn. Þau
taka annars bæði
lífinu létt þrátt
fyrir að margt
mætti betur
fara, svo sem
velferðarkerfið,
skatturinn og
meðvirk orðræða
í samfélaginu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
F
-0
B
6
C
1
6
3
F
-0
A
3
0
1
6
3
F
-0
8
F
4
1
6
3
F
-0
7
B
8
2
8
0
X
4
0
0
8
B
F
B
0
6
4
s
_
1
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K