Fréttablaðið - 02.04.2015, Síða 32
4 • LÍFIÐ 2. APRÍL 2015
H
refna Björk Sverris-
dóttir er ein af þess-
um konum sem maður
heldur jafnvel að hafi
auka klukkustundir í
sólahringnum eða þurfi minni
svefn en flestir. Hún er drífandi
og stekkur á góðar viðskiptahug-
myndir og keyrir þær áfram þar
til hugmynd verður að veruleika.
Hún er með mörg járn í eldinum
en kippir sér ekkert sérstaklega
upp við það og upplifir ekki að hún
geri meira en aðrir: „Þetta bara
einhvern veginn er svona og hefur
alltaf verið,“ segir Hrefna eins og
ekkert sé eðlilegra. Það er greini-
legt að það er í kjarna Hrefnu að
framkvæma og þegar Hrefna er
innt eftir því hvort þetta sé inn-
byggð snilldargáfa eða ofvirkni
þá segir hún að það sé hvorugt.
„Þetta er spurning bara um að
gera og hætta að ofhugsa hlut-
ina, taka upp símann og hringja
en ekki mikla fyrir þér verkefnið
áður en þú leggur í það svo það
verði ekki óyfirstíganlegt.“
Útgáfan heillaði
Hrefna hefur ætíð farið ótroðn-
ar slóðir í rekstri og atvinnu-
sköpun og sem dæmi um slíkt þá
stofnaði hún blaðið Orðlaus ásamt
nokkrum vinkonum sínum við lok
stúdentsprófs frá Menntaskólan-
um við Hamrahlíð. „Mér fannst
bara vanta blað fyrir þenkjandi
ungar konur um málefni sem ungt
fólk er að pæla í og langar að lesa
um, bæði áhugaverðar fréttir en
einnig hvað er að gerast í samfé-
laginu.“ Málgagn fyrir þennan
aldurshóp hafði vantað og því var
Orðlaus kærkomið.
Blaðinu var dreift í flesta fram-
haldsskóla og á kaffihús og naut
mikilla vinsælda. Þannig lágu
leiðir Hrefnu inn á Morgunblað í
kjölfar þess sem hún seldi tíma-
ritið Ár og dag. Hrefna var einn-
ig á meðal stofnenda Monitor og
stýrði blaðinu fyrstu tvö árin.
Hrefna hugsar til baka og rifjar
upp starfsandann við blaðaútgáf-
una. „Það var ótrúlega skemmti-
legur tími og mikið af góðu fólki
sem maður kynntist þar enda yfir-
leitt góð orka í kringum ungt fólk
og hugðarefni þess.“
Móðurhlutverkið kallar
Móðurhlutverkið bankaði tiltölu-
lega snemma upp á hjá Hrefnu,
sem þá var í sambandi með
Bjarna úr Mínus eins og hann er
oftast kallaður. Þau eiga saman
dótturina Ronju. Hrefna hafði
verið á fullu í vinnu við blaðaút-
gáfu og að vera ung kona í sam-
bandi með rokkara og því glysi
sem þannig lífsstíl getur fylgt.
Hún var því ekki með hugann sér-
staklega við barneignir. Hrefna
upplifir þakklæti fyrir móður-
hlutverkið þótt það hafi komið
óvænt upp á. „Lífið með Ronju er
bara ótrúlegt. Það er svo gefandi
að vera móðir en samt svo krefj-
andi.“ Hrefna segir þær mæðg-
ur vera mjög nánar og vera núna
orðnar eins konar vinkonur. „Hún
er svo skemmtileg og það er svo
gaman að spjalla við hana og fá
hennar sýn á lífið.“
Um skeið bjó fjölskyldan í Nor-
egi þar sem Hrefna rak fataversl-
un og segir hún þann tíma hafa
verið yndislegan fyrir þær mæðg-
ur. „Við áttum svo mikinn tíma
til að vera saman. Það var svo ró-
legt og fjölskylduvænt þarna og
þetta var í raun frábær tími fyrir
okkur.“ Aðspurð hvort hugurinn
leiti til Noregs er Hrefna fljót að
svara: „Nei, það er í raun hund-
leiðinlegt þar og ekkert að ske
en ef maður er í uppeldisgír þá
er þetta frábært,“ segir hún og
skellihlær.
Bjarni og Hrefna skildu fyrir
um þremur árum og er Hrefna nú
í sambúð með Magnúsi Scheving,
sem er betur þekktur sem stofn-
andi Latabæjar og andlit Íþrótta-
álfsins.
Lífið í Latabæ
Fréttir af forkólfi sem lét hug-
myndir verða að veruleika með
glans og fágun bárust um íslensk
fyrirtæki og þegar Latabæ vant-
aði framleiðanda þá var potaði í
Hrefnu. „Ég var eiginlega veidd
inn í verkefni fyrir Latabæ til
að sjá um framleiðslu á morgun-
blokk fyrir Sprout og NBC í
Bandaríkjunum og í kjölfarið
var mér boðið starf sem Head of
Creative Development. Þar sem
þetta er flott og alþjóðlegt fyrir-
tæki þá var ekki flókið að þiggja
það.“ Hrefna sér ekki eftir því í
dag. Í starfi sínu hjá Latabæ ferð-
aðist Hrefna út um allan heim og
öðlaðist reynslu með því að vinna
með fólki alls staðar að úr heim-
inum og hitti hún mikilmenni
líkt og Michelle Obama í heim-
sókn í Hvíta húsinu. „Það var
svo súr realískt að vera þarna í
Hvíta húsinu að taka í höndina á
henni, en samt var það svo eðli-
legt því að hreyfing og heilsa
barna er mikilvægt málefni,“
bætir Hrefna við, sem segir Lata-
bæ sem vinnustað vera ólíkan
öllum öðrum. „Þetta var mikill
hraði sem þurfti að vinna á og
„Mér fannst
bara vanta blað
fyrir þenkjandi
ungar konur um
málefni sem ungt
fólk er að pæla
í og langar að
lesa um, bæði
áhugaverðar
fréttir en
einnig hvað
er að gerast í
þjóðfélaginu.“
Sigga Dögg
blaðamaður
siggadogg@365.is
NÝ NÁLGUN
Í TÍSKU-
HEIMINUM
Frumkvöðullinn og hugmyndasmiðurinn HREFNA
BJÖRK SVERRISDÓTTIR er með áhugaverð verk-
efni í gangi sem eru eins ólík og þau eru mörg.
Hrefna Björk er með spennandi hluti á prjónunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
maður var alltaf á tánum en svo-
leiðis er það bara þegar stefnan
er tekin á velgengni á alþjóðlegu
sviði,“ segir Hrefna sem kippir
sér ekkert upp við óhefðbundinn
vinnutíma eða krefjandi starfs-
umhverfi.
Þegar blaðamaður veltir því
fyrir sér hvernig megi sam-
tvinna ferðalög heimsálfa á milli
og uppeldi svarar Hrefna: „Þetta
er oft spurning um gæði stund-
anna sem við eigum saman frek-
ar en magn tímans. Svo reynir
maður að hugsa þetta þannig
að maður sé ekki lengra en eitt
símtal frá henni en svona vinna
togar alveg í hjartað.“ Það er
þetta sígilda uppeldissamvisku-
bit sem fylgir flestum foreldrum,
óháð vinnutímanum eða land-
fræðilegri staðsetningu starfs-
ins.
Sprellað í sjónvarpi
Hrefna hlustar eftir
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
D
-0
9
E
C
1
6
3
D
-0
8
B
0
1
6
3
D
-0
7
7
4
1
6
3
D
-0
6
3
8
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
6
4
s
_
1
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K