Fréttablaðið - 02.04.2015, Qupperneq 33
LÍFIÐ 2. APRÍL 2015 • 5
MYNDAALBÚMIÐ
Hrefna ásamt Ronju dóttur sinni og Sunnevu systur sinni, Magnúsi Scheving, sambýlismanni sínum, Hrefna og Ýr Þrastardóttir fatahönnuður.
hugmyndum og ef henni þykja
þær góðar þá glæðir hún þær
lífi og fylgir þeim eftir þangað
til þær verða að raunveruleika.
Þannig þótti henni vanta góðan
innileikstað fyrir börn á Íslandi
svo hún bjó bara einfaldlega
einn slíkan til, Ævintýragarð-
inn í Skútuvogi, og er hann enn
starfræktur.
Önnur góð hugmynd var
ungi grínistinn Steindi Jr.
sem byrjaði með sprell á You-
Tube. Hrefna hafði fylgst með
honum og tók grínið hans enn
lengra því hún sá um að koma
honum í sjónvarp og framleiddi
aðra þáttaseríuna af Steinda Jr.
við góðar undirtektir þjóðar-
innar. Hrefna var einnig yfir-
framleiðandi sjónvarpsþáttanna
Tveir+Sex þar sem kynlífstengd
málefni voru tekin fyrir og
krufin en þar var systir henn-
ar, Sunneva Sverrisdóttir, annar
þáttarstjórnenda. „Hugmyndin
snýst að mestu um framkvæmd,
margir fá góðar hugmyndir en
gera ekkert með þær, en ef ég
heyri af góðum hugmyndum
reyni ég að finna teymi til að
gera þær að veruleika,“ segir
Hrefna eins og ekkert sé eðli-
legra, eða auðveldara, en að
hrinda draumum í framkvæmd.
Það mætti því segja að það sé
alltaf hægt að hvísla góðri hug-
mynd að Hrefnu, hvort sem það
er fyrir sjónvarp eða jafnvel
eitthvað allt annað.
Flík fær mörg líf
Hrefna er framkvæmdastjóri
Another Creation, hátísku fata-
merkis sem sýndi nýverið fyrstu
línuna sína á Reykjavík Fashion
Festival við mjög góðar undir-
tektir hérlendis og erlendis.
Ýr Þrastardóttir fatahönn-
uður sér um hönnun á flíkun-
um en Anna Lilja Johansen er
framleiðslustjóri. „Ýr er eng-
inn venjulegur hönnuður en
ásamt því að vera besti hönnuð-
ur landsins býr hún einnig yfir
þeim hæfileika að finna lausn-
ir til að láta flíkurnar breyt-
ast. Það er hægara sagt en gert.“
Hugmyndin á bak við fatnaðinn
er einmitt sú að hægt er að nota
hverja flík á mismunandi hátt og
breyta henni og jafnvel uppfæra
hana með því að kaupa viðbætur
við hana. Þannig má t.d. breyta
jakka í vesti með því að fjar-
lægja ermar eða skipta út fyrir
aðrar ermar. Sama má segja um
hettur eða kraga og jafnvel neðri
parta. Hrefna segist kjósa að
kaupa sér fáar góðar flíkur frek-
ar en margar ódýrar og því heilli
þessi nálgun á fatnað hana sér-
staklega.
„Þetta er alveg ný nálgun í
tískuheiminum. Ég hef mikla trú
á þessum möguleika fyrir konur.
Okkur langar margar að eiga
föt sem eru af góðum gæðum en
hikum oft við að kaupa vegna
verðsins. Ef við getum nýtt flík-
ina á fleiri en einn veg og við
fleiri en eitt tilefni værum við
örugglega líklegri til að tíma að
borga aðeins meira fyrir fötin.
Það svarar kalli eftir aukinni
nýtni fatnaðar en það er alveg
hrikalegt að sjá hvað miklu af
flíkum er hent eftir að hafa að-
eins verið notaðar í nokkur skipti.
Okkur langar að breyta því.“ Þar
sem Hrefna er söm við sig þá er
hún einnig eigandi nýs veitinga-
staðar sem verður opnaður í lok
sumars við rætur Hallgríms-
kirkju. Hrefna vill ekki gefa
mikið upp um staðinn en segir að
þessi staður verði eitthvað öðru-
vísi en það sem hefur verið hing-
að til verið boðið upp á.
Það er margt á döfinni hjá
Hrefnu og eflaust komið nýtt
verkefni á koppinn þegar þetta
viðtal er prentað. Ef þig vantar
innblástur eða sjálfstraust til að
framkvæma þá gæti verið margt
vitlausara en að taka Hrefnu
þér til fyrirmyndar og halda af
stað út í framtíðina, staðráðin í
að vinna hlutina vel og með heil-
indum.
PIPA
R
\
TBW
A
• SÍA
• 1515
00
4
62
M e ð
í s len
sku
m rj
óma
G A M A L D A G S
B ragð i ð sem kal l ar f ram dýrmætar minningar
um gaml a gó ð a hei magerð a ís inn
s e m a l l i r e l s ka .
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
D
-0
9
E
C
1
6
3
D
-0
8
B
0
1
6
3
D
-0
7
7
4
1
6
3
D
-0
6
3
8
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
6
4
s
_
1
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K