Fréttablaðið - 02.04.2015, Qupperneq 34
6 • LÍFIÐ 2. APRÍL 2015
„Þó er gott að muna að möguleiki
er á kynsjúkdómasmiti í háls við
það að stunda óvarin munnmök
og fá sæði upp í sig.“
V ikulega senda unglingar mér spurningar sínar um kynlíf og
ég svara um hæl. Hér eru nokkrar
nýlegar spurningar sem snúa sér-
staklega að getnaði.
? Er möguleiki á að verða ólétt þótt limurinn hafi aldrei farið
inn í leggöngin sjálfur en kannski
voru sæðisfrumur á puttunum sem
fóru inn í leggöngin?
SVAR Það er ekki hægt að útiloka
það en það er mjög ósennilegt. Al-
mennt séð þá myndi ég ekki vera að
setja sæði annars í leggöng eða á pík-
una því það er alltaf möguleg kyn-
sjúkdómahætta, nú eða getnaður,
þótt ólíklegt sé. Ólíklegt er nefnilega
ekki útilokað.
? Er það slæmt ef gaurinn vill ekki nota smokk?
SVAR Já, það getur verið það því þú
getur smitast af kynsjúkdómi – nú
eða smitað hann af kynsjúkdómi. Ef
þú ert ekki á neinni getnaðarvörn þá
gætir þú einnig orðið ólétt. Það getur
verið ágætt að spyrja af hverju hann
vill ekki vera með smokk og jafnvel
sé þá inni í myndinni að þið stundið
ekki samfarir ef hann er ekki tilbú-
inn að vera með smokk. Þá er einn-
ig gott að muna að smokkar eru mis-
jafnir eftir tegundum og þið gætuð
prófað smokka frá ýmsum fyrirtækj-
um þar til finnið smokk sem hent-
ar ykkur. Þið gætuð einnig bæði
farið í kynsjúkdómapróf og notað þá
aðrar getnaðarverjur ef þið stund-
ið bara kynlíf með hvort öðru og ekki
öðru fólki. Hvað sem þið ákveðið að
gera þar til finnið smokk sem hent-
ar ykkur, þá er þetta spjall og samn-
ingaviðræður.
? Getur maður orðið óléttur ef sæði fer í munninn eða í sundi?
SVAR Algengasta og vænlegasta
leiðin til að getnaður verði er ef typpi
fer inn í leggöng án smokks og sáð-
lát verður. Sæði lifir ekki af melting-
arveginn svo ef það fer í munninn
þá fer það ekki þaðan og niður í legið
svo takmarkaðar áhyggjur þarf að
hafa af getnaði. Þó er gott að muna
að möguleiki er á kynsjúkdómasmiti
í háls við það að stunda óvarin munn-
mök og fá sæði upp í sig. Hvað varð-
ar sundið þá gilda sömu lögmál þar.
Ef sæði gæti sloppið úr grunlausum
lim og laumast inn í næstu leggöng
þá væri faðerni flestra barna á Ís-
landi á huldu og enginn þyrði í sund
af ótta við getnað. Sem betur fer
virkar þetta ekki svoleiðis og limur
þarf að fara inn í leggöng og fá þar
sáðlát svo möguleiki sé á getnaði, það
gildir einnig í sundi. Og aftur, það
er hægt að smitast af kynsjúkdóm-
um í sundi ef þú stundar kynlíf með
manneskju sem er með kynsjúkdóm.
HJÁLP! ER ÉG ÓLÉTT?
Margar spurningar brenna á vörum unglinga í dag varðandi það hvenær kona verður ólétt og hvenær ekki.
Það er löngum vitað að
edik er til margra hluta nýti-
legt og ekki einungis í eld-
húsinu. Edik er til dæmis
upplagt að nota við heim-
ilisþrifin en einnig til að
mýkja húðina, auka end-
ingu naglalakksins og eyða
táfýlu. Við á Lífinu erum
búin að taka saman nokkur
frábær ráð til að nota edik-
ið enn frekar.
MÝKIR HÚÐINA
Settu 200 ml af ediki í
baðið og njóttu í 15 mínút-
ur, þetta mýkir húðina og
heldur sýrustiginu í jafn-
vægi.
ANDLITSVATN
Edik er alveg prýðilegt and-
litsvatn. Það hefur kannski
ekki besta ilminn en áhrifin
eru góð því edikið hjálpar til við að hreinsa burt dauðar húðfrum-
ur og minnka svitaholur.
GLANSANDI LOKKAR
Blandaðu tveimur matskeiðum af ediki við 200 millilítra af vatni
og skolaðu hárið upp úr því eftir að þú hefur þvegið það með
sjampói. Skolaðu ediksblönduna úr og settu í hárið létta næringu.
Hárið verður glansandi fínt og fallegt.
FLÖSUNA FRÁ
Blandaðu teskeið af ediki í sjampóið þitt og notaðu reglulega ef
þú ert að berjast við flösu. Edikið jafnar sýrustig húðarinnar og
kemur jafnvægi á hársvörðinn. Einnig er hægt að blanda saman
jöfnu hlutfalli af ediki og vatni og nudda blöndunni í hársvörð-
inn áður en að þú þværð á þér hárið. Hvort tveggja ætti að fæla
flösuna frá.
AUKTU ENDINGU NAGLALAKKSINS
Vættu bómull með ediki og renndu yfir neglurnar, láttu þær þorna
og naglalakkaðu þig eins og þú ert vön að gera. Edikið tekur
burt alla yfirborðsfitu af nöglunum og gerir það að verkum að
lakkið helst lengur.
BURT MEÐ TÁFÝLUNA
Settu 200 ml á móti hverjum lítra af vatni í fótabaðið til að losna
við óæskilega táfýlu. Njóttu baðsins í 15 mínútur og gættu þess
að þerra tærnar vel áður en þú ferð aftur í sokkana.
EDIK TIL ALLRA NOTA
Edik er bæði hægt að nota sem snyrtivöru
og í heimilisþrifin.
Ef þú hefur spurningu um
kynlíf þá getur þú sent
Siggu Dögg póst og
spurningin þín gæti birst í
Fréttablaðinu.
sigga@siggadogg.is
VILTU SPYRJA UM KYNLÍF?
Fallegt, fágað og töff - ný sending af vinælu ponchounum.
Smáralind
facebook.com/CommaIceland
Ný
sendin
g
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
3
D
-2
C
7
C
1
6
3
D
-2
B
4
0
1
6
3
D
-2
A
0
4
1
6
3
D
-2
8
C
8
2
8
0
X
4
0
0
2
B
F
B
0
6
4
s
_
1
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K