Fréttablaðið - 02.04.2015, Side 62

Fréttablaðið - 02.04.2015, Side 62
2. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 46 Hann er að hjálpa mér gríðarlega mikið, ekki bara í útsetningum heldur með allt milli himins og jarðar. Að hafa allt fjölbreytilegt, páskar eru ekki hefðbundnir eins og jólin hjá mér. Að gera ratleik fyrir börnin er eina hefðin sem er föst hjá okkur yfir páskana. Hafdís Priscilla Magnúsdóttir, bloggari á disukokur.is PÁSKAHEFÐIN „Ég er bara alveg í skýjunum. Ég einhvern veginn bjóst aldrei við þessum viðtökum,“ segir tónlist- armaðurinn Máni Orrason. Þann 10. apríl gefur hann út sína fyrstu plötu, Repeating Patterns. Í tilefni af því heldur hann hlust- unarpartí á Kexi hosteli þann 8. apríl. Máni, sem er nýorðinn sautj- án ára, byrjaði að taka upp tónlist heima hjá sér í lok árs 2013. „Ég var aðallega bara að æfa mig fyrst. Þetta er búið að vera langt ferli, þar sem ég tók þetta upp á meðan ég var í skóla,“ segir Máni, sem er búsettur á Spáni. Platan var að mestu leyti tekin upp heima hjá honum á Spáni, en einnig í Stúdíói Sýrlandi hér heima. Máni, sem tilnefndur var sem bjartasta vonin á Hlustenda- verðlaununum, hefur fengið ein- hverjar fyrirspurnir og tilboð að utan. „Það er alveg áhugi, en ekk- ert sem ég get staðfest enn.“ Máni mun einnig spila á tónlistarhátíð- inni Secret Solstice sem haldin verður í júní. - asi Í skýjunum með viðtökurnar Fyrsta plata hins sautján ára Mána Orrasonar kemur út þann 10. apríl. HÆFILEIKARÍKUR Máni Orrason á framtíðina svo sannarlega fyrir sér. Sylvía Erla Melsted hefur lokað sig af inni í hljóðveri ásamt Printz Board, tónlist- arstjóra einhverra frægustu tónlistarmanna samtímans. Má þar nefna stórstjörnur á borð við Dr. Dre, The Black Eyed Peas, James Brown, Katy Perry og She- ryl Crow. „Hann er að hjálpa mér gríð- arlega mikið, ekki bara í útsetn- ingum heldur með allt milli him- ins og jarðar,“ segir þessi unga söngkona sem er rétt orðin nítján ára. „Ég er enn þá að finna mig í tónlistinni svo ég er ofboðslega þakklát fyrir að fá mann af hans kalíberi til að hjálpa mér. Það er ómetanlegt.“ Vinnur aðeins með útvöldum Board virðist sjálfur ekki minna heillaður af Sylvíu: „Ég heillað- ist samstundis af persónuleika hennar og kraftinum sem ein- kennir hana. Hún er stútfull af hugmyndum og ég varð strax spenntur fyrir að vinna með henni.“ Sylvía komst í samband við Board í gegnum sameiginleg- an vin þeirra og hitti hann svo í Los Angeles um síðustu jól. „Það gekk allt svo vel að við ákváðum að hjóla í þetta saman,“ segir hún. Sylvía segir Board leggja sitt á vogarskálarnar við tónlistina en sjálf semji hún textana alveg ein. Hugsar stórt „Platan er poppskotin, smá R’n’B og svolítið rokk. Við vildum ekki hafa þetta of poppað heldur skapa einhvers konar sérstöðu. Það er erfitt fyrir Íslending að ætla að ná langt úti í heimi án þess að hafa einhverja sérstöðu,“ segir hún, en plata er öll á ensku og stefn- an tekin á að hún komi út á þessu ári. Hún ætlar sér út fyrir land- steinana með sitt efni og greini- legt að hún er stórhuga þrátt fyrir ungan aldur. „Nú legg ég áherslu á að taka upp plötuna samhliða því að ljúka náminu mínu í Versló,“ útskýrir Sylvía og bætir við að hún sé með mörg járn í eldinum og enn fleiri, sem hún þurfi að koma frá sér í nánustu framtíð. Aðspurð segjast þau ekki hafa mikinn tíma til að sinna hlutverk- um túrista á meðan á dvöl kapp- ans stendur. Board segist þó hafa mikinn smekk fyrir næturlífinu sem hann ætlar sér að skoða betur þegar tækifæri gefst til. Sylvía er sennilega flestum Íslendingum kunn frá því að hún keppti í Söngvakeppni sjónvarps- ins 2013. Þar freistaði hún þess að keppa fyrir hönd Íslands með lagið „Stund með þér“ við afar góðan orðstír. gudrun@frettablaðið Stórhuga og stefnir út fyrir landsteinana Sylvía Erla Melsted tekur upp sína fyrstu plötu um þessar mundir. Printz Board, tónlistarstjóri the Black Eyed Peas, kom sérstaklega til landsins til að aðstoða. Board hefur unnið til fj ölda Grammy-verðlauna og er hrifi nn af kraft inum í Sylvíu. STUÐ OG STEMN- ING Þau Sylvía og Printz Board eru gríðarlega ánægð með sam- vinnuna og verður spennandi að heyra útkomuna en platan er væntan- leg síðar á árinu. FRÉTTA- BLAÐIÐ/ VILHELM BRUNCH UM HELGAR LAU & SUN FRÁ 11-16 A F M A T S E Ð L I V E G A M Ó T A Vegamótastíg 101 Reykjavík s. 511 3040 vegamot.is Lúxus brunch 2490 Hrærð egg, beikon, pastramiskinka, camembert, goudaostur, kartöflu r, ný bakað brauð, ferskir ávextir, tómat confetti, grískt jógúrt, appelsínusafi og pönnukaka með hlynsírópi. Sá breski 2390 Egg, beikon, bakaðar baunir, grilluð kryddpylsa, kartöflur, ristað brauð og pönnukaka með hlynsýrópi. Klassískur Vegamótabrunch 2390 Beikon og egg, ristað brauð, kartöflur, tómat confetti, grískt jógúrt og pönnu kaka með hlynsírópi. Léttur heilsubrunch 2090 Ristað speltbrauð, pastramiskinka, ostsneiðar, kjúklingaskinka, harðsoðið egg, tómatar, agúrka, ferskir ávextir og grískt jógúrt. Pylsur, steikt egg, beikon, grískt jógúrt, brauð og pönnukaka. Íspinni fylgir barna brunch Leikhópurinn Spindrift Theatre frumsýnir skemmtilega og öðruvísi útgáfu af Lísu í Undralandi í Tjarnarbíói þann 9. apríl. „Þetta er gagnvirkt þátttökuleikhúsverk þar sem áhorfendur taka að sér hlutverk Lísu í Undra- landi,“ segir Sólveig Eva Magnúsdóttir, ein meðlima leikhópsins. Persónur sögunnar fá allar sitt eigið her- bergi þar sem þær túlka mismunandi hluti í samfélaginu. Alls eru herbergin níu og er áhorfendum skipt í þrjá hópa. Þannig fara þeir mismunandi leiðir í gegnum verkið. „Við tengjum kynjaverurnar í bókinni við þá hluti sem eru tabú í samfélaginu í dag. Þannig fara áhorfendur í hlutverk Lísu í Undralandinu og túlka hvað persónurnar standa fyrir á sinn hátt,“ segir hún. Hugmyndin kom fram þegar þær fóru að skoða skrif rithöfundarins Lewis Carrol sem samdi Lísu í Undralandi. „Við vildum líka skoða hvernig samband hans var við Lísu og hvernig hans tabú speglast í henni.“ Með- limir leikhópsins, sem eru frá Íslandi, Finn- landi og Noregi, hafa unnið að verkinu í ár. „Verkið er búið að vera í vinnslu í ár og þar sem við höfum ekki alltaf verið í sama landinu þá unnum við þetta mikið í gegnum Skype og gáfum hver annarri tilsögn,“ segir Sólveig. - asi Áhorfendur verða Lísa í Undralandi Sagan um Lísu í Undralandi tekur á sig nýja mynd í Tjarnarbíói og áhorfendur túlka sýninguna á sinn hátt. DÚFAN Sólveig Eva Magnúsdóttir túlkar hér dúfuna í Lísu í Undralandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 4 F B 0 6 4 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 3 D -4 A 1 C 1 6 3 D -4 8 E 0 1 6 3 D -4 7 A 4 1 6 3 D -4 6 6 8 2 8 0 X 4 0 0 3 A F B 0 6 4 s _ 1 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.