Fréttablaðið - 27.06.2015, Síða 18
27. júní 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 18
„Ég hef undanfarin ár glímt við
andlega erfiðleika og vandamál
og hef því ekki stundað vinnu. Ég
hef reynt að stunda fjarnám, og
það hefur gengið misvel. Undan-
farna fjóra mánuði hef ég verið
í svokallaðri Listasmiðju í Hlut-
verkasetri og þetta er afrakst-
urinn, sem við opnum nú hér
um helgina í Gerðubergi,“ segir
Þórey Svana Þórisdóttir en hún
er ein tuttugu og fjögurra lista-
manna sem unnið hafa verk á
sýninguna Sanna ásjónu sem opn-
aði í Gerðubergi í gær og stendur
til 28. ágúst næstkomandi.
Þórey segir Listasmiðjuna
hafa gjörbreytt sínum aðstæð-
um. „Ég er búin að vera í fjóra
mánuði í Hlutverkasetri. Ég
upplifi miklar breytingar á lífi
mínu. Félagsleg einangrun, sem
hér áður var algjör í mínu til-
viki, er ekki lengur og svo hef ég
fengið þetta tækifæri til þess að
læra að nýta sköpunarkraft minn
í listinni. Ég hef alltaf haft mik-
inn áhuga á listum, en ég hef átt
erfitt með að koma mér af stað
og þora. En starf Hlutverkaset-
urs snýst að miklu leyti um þetta
– að kenna manni að stíga skref-
ið. Það er ekkert hættulegt.“
Á sýningunni eru fjölbreytt
myndverk eftir tuttugu og fjóra
listamenn, eins og áður segir,
unnin í Hlutverkasetri. Við opn-
unina flutti leiklistarhópur Hlut-
verkaseturs gjörning. Stjórnandi
þess hóps er Edna Lupita.
Myndlistarkennararnir Anna
Henriksdóttir og Svafa Björg
Einarsdóttir hafa leitt vinnu-
stofurnar síðastliðin fimm ár.
Þær hafa það að markmiði að
ýta undir listræna hæfileika
með markvissri hvatningu og er
sýningin afrakstur þannig verk-
efnis. „Ég ætla mér að halda
áfram að mæta í Hlutverkasetur
og halda áfram í listinni. Mér
finnst þetta rosalega skemmti-
legt. Svo verður bara tíminn að
leiða í ljós hvert stefnan verður
tekin,“ segir Þórey að lokum og
hlær.
Hvar? Gerðuberg
Hverjir? Listamenn á vegum Hlut-
verkasetursins
Hvenær? Virka daga 8-18
Hversu mikið? Ókeypis
Ólöf
Skaftadóttir
olof@frettabladid.is
Þetta er ekkert hættulegt
Þórey Þórisdóttir er ein tuttugu og fjögurra listamanna sem opna Sanna ásjónu í Gerðubergi.
HLUTVERKASETUR BREYTIR LÍFUM Þórey ásamt fleiri listamönnum og kennurum Listasmiðjunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Antoine Hrannar Fons,
flugþjónn og einkaþjálfari
Losar sig við fl ugþreytuna
Ég var að koma heim úr sólinni í
Seattle og ætla að losa mig við flug-
þreytuna. Svo er ég búinn að lofa
mér í grill og smá sólarsamba um
helgina.
Elliði Vignisson,
bæjarstjóri í Vestmannaeyjum
Stór helgi í Eyjum
Allar helgar eru stórar helgar í Vestmannaeyjum.
Nú stendur Orkumótið sem hæst og bærinn
iðar af lífi. Í dag, laugardag, er svo
Jónsmessugleði. Sunnudeg-
inum ver ég í uppbyggjandi
heilsurækt og fjölskyldu-
samveru enda þá ekki
nema 3 dagar í að við
störtum Goslokahelginni.
Eins og allir vita er mikil-
vægt að hlaða batteríin
vel fyrir það fjör.
Guðrún Vilmundardóttir,
útgáfustjóri Bjarts
Veisluhöld og litabækur
Mig langar að halda garðveislu,
með vinum og nágrönnum, enda
spáin unaðsleg. Annars kvíði ég ekki
dauðum stundum þessa dagana, ég á
70 myndir eftir í litabókinni minni.
HELGIN
27. júní 2015 LAUGARDAGUR
FARÐU
HLUSTAÐU
LESTU
HORFÐU...
Berjaostakaka
140 g Digestive-kexkökur
50 g Lu Bastogne-kexkökur
120 g smjör, brætt
1 msk. púðursykur
25 g flórsykur
200 g Philadelphia-rjómaostur/vanilluskyr
120 g rjómi
120 g dökkt súkkulaði, brætt
Fræ úr ½ vanillustöng
1 tsk. vanilluextrakt
Fersk ber að eigin vali, til dæmis
hindber, bláber eða jarðarber
Hvítt súkkulaði til skreytingar
Kex, púðursykur og smjör sett í
matvinnsluvél þar til það er orðið að
fínni blöndu sem minnir á sand.
Þeytið rjóma, bætið flórsykrinum,
vanillufræjum og vanilluextrakt
saman við. Látið rjómablönduna í
aðra skál á meðan rjómaosturinn er
hrærður í hrærivélinni í stutta stund.
Blandið rjómablöndunni saman við
rjómaostinn í hrærivél í um það bil
tvær mínútur.
Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði.
Finnið til litlar skálar eða falleg glös.
Kexblandan fer fyrst í glasið, vel af
ostablöndunni, ein skeið af bræddu
súkkulaði, smá kex ofan á, aðeins
meiri ostablanda, aftur smá súkkul-
aði og að lokum fersk ber. Rífið niður
hvítt súkkulaði á toppinn.
Það er hægt að bera kökuna strax
fram en gott er að geyma í kæli í 2-3
klukkutíma áður en þið berið hana
fram.
Uppskrift fengin af evalaufeykjaran.com
Einföld ostakaka með ferskum berjum
Fallegt og sniðugt er að útbúa kökuna í glas eða skál fyrir hvern og einn. Ostakakan er bæði einföld og falleg.
Á PLÖNTUMARKAÐINN
á Bernhöftstorfu, horni
Bankastrætis og Lækjargötu, í
dag, laugardag, klukkan 1.
Álfrún Pálsdóttir,
ritstjóri Glamour
Nýtt blað og sólbað
Ég er að skila af mér glimrandi fersku
og fjölbreyttu sumarblaði Glamour
og þess á milli ætla ég að sleikja
sólina með fjölskyldu minni!
Á ÞRIÐJU SERÍU AF OR-
ANGE IS THE NEW BLACK.
Sem sýnd er meðal annars á
Stöð 2.
HINA GEYSIVINSÆLU BÓK
MEÐVIRKNI EFTIR PIU
MELLODY. Fjallað er um
einkennin, ræturnar og lesandinn
leiddur í átt að bata.
Á WHITE RAVENS, nýjasta
lag Þórunnar Antoníu
sem kom út á föstudag á
glamour.is.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
B
-3
C
9
C
1
6
2
B
-3
B
6
0
1
6
2
B
-3
A
2
4
1
6
2
B
-3
8
E
8
2
8
0
X
4
0
0
2
B
F
B
1
0
4
s
_
2
6
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K