Fréttablaðið - 27.06.2015, Síða 22
27. júní 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 22
Magnea Rivera Rein-aldsdóttir ákvað ung að hún ætlaði sér að finna pabba sinn. „Mamma sagði mér alltaf að
hann væri dáinn. Innst inni vissi
ég að hann var lifandi, ég hafði ein-
hverja tilfinningu. En ég ákvað að
leita hans ekki á meðan mamma
lifði því það hefði orðið henni mikið
áfall að ég kæmi allt í einu með
dátann þrjátíu árum seinna inn í
stofu. Þannig að ég beið þangað til
hún dó,“ segir Magnea þegar blaða-
maður hittir hana fyrir á kaffihúsi í
bænum. Magnea er sjötíu ára gömul
og hefur lifað viðburðaríka ævi, svo
vægt sé til orða tekið. Hún fæddist
í miðbæ Reykjavíkur og átti heima
þar ásamt móður sinni og bróður,
sem hún heitir í höfuðið á, Magnúsi.
Rólegt skynsemishjónaband
„Mamma varð ólétt eftir Amerík-
ana sem lætur sig hverfa. Þann-
ig að þarna stendur hún allt í einu
ein, verkakona með nýfætt barn og
tíu ára gamlan son. Það var ekkert
sem hún gat gert annað en að gerast
ráðskona í sveit. Það var ekki hægt
að vinna fyrir sér sem verkakona
með tvö börn á þeim tíma,“ rifjar
Magnea upp. Móðir hennar lagði
leið sína í Hafnirnar og varð ráðs-
kona. „Hún giftist manninum þar
bara strax. Ég vissi ekki fyrr en
seinna að þetta var skynsemishjóna-
band. Hann var embættismaður og
skólastjóri og þurfti konu til að sjá
um heimilið og hún þurfti mann til
að ala upp börnin með sér.“
Magnea lýsir hjónabandinu þeirra
á milli sem góðu og rólegu. „Svo
deyr hann þegar ég er tíu ára, sem
er með mestu áföllum sem ég hef
orðið fyrir. Ég var svo svakalega
hænd að honum. Við mamma áttum
ekki jafn gott samband. Pabbi var
auðvitað strokinn úr landi og hún
yfirfærði það dálítið á mig. Hún
talaði um að ég væri með hans nei-
kvæða skap og svona.“
Svo deyr Jón, fóstri Magneu. „Við
flytjum til Keflavíkur til að mamma
geti unnið fyrir sér, og þarna er ég
allt í einu alltaf ein, í staðinn fyrir
að hafa mömmu og pabba og bróð-
ur minn og fullt hús af fólki. Og það
var erfitt.“
Stríðsbörn á Íslandi
Magnea ólst upp í Keflavík og gekk
þar í skóla. Hún beið alla tíð eftir
að hefja leitina að föður sínum. „Ég
byrjaði að leita að honum um leið og
mamma dó. Þá var ég 28 ára. Það
tók mig tuttugu ár að finna hann. Þá
var maður sem skrifaði í dagblað-
ið að hann hefði fundið pabba sinn
í gegnum bandarísku símaskrána.
Þannig að ég setti mig í samband
við hann. Og það voru margir sem
hringdu í hann í sömu sporum, svo
hann ákvað að boða okkur öll inn á
skrifstofu sína. Þarna ákváðum við
að stofna samtök sem hétu Samtök
stríðsbarna á Íslandi.“
Magneu fannst gaman að starfa
í samtökunum. Þau útbjuggu eyðu-
blöð sem þau létu fólk fylla út,
hversu mikið það vissi um feður
sína. „Svo reyndum við að finna
þá í gegnum herinn og bandarísku
símaskrána. Þarna talaði svo einu
sinni maður sem sagðist hafa fund-
ið pabba sinn í gegnum sakadóm-
inn. Hann ákvað að athuga hvort
mamma hans hefði verið í einhverju
sambandi við bandaríska herinn og
fann allt um manninn. Þarna er ég
búin að leita í 17 ár. Ég fer sömu
leið og spyr hvort til séu einhverjir
pappírar um Guðbjörgu Grímsdótt-
ur, móður mína. Það liðu tvær mín-
útur þangað til afgreiðslustúlkan
kom með þykka möppu og sakadóm-
urinn var fimm mínútum frá heim-
ili mínu. Það var þannig stutt í allar
upplýsingarnar sem ég hafði leitað
svona lengi. Þá hafði mamma verið
að leita að pabba í gegnum utanrík-
isráðuneytið, því bróðir ömmu var
þá ráðherra, þannig að hann hafði
aðgang að toppunum hérna. Og það
voru bréfaskipti milli bandaríska
hersins og utanríkisráðuneytisins,
Ólöf
Skaftadóttir
olof@365.is
Verslaði veglega í maníu
Magnea Rivera Reinaldsdóttir, betur þekkt sem Amma Maddý, er litríkur karakter. Hún er
skemmtileg, hreinskilin og afar lífsreynd. Eftir henni hafa verið nefndir leikhópar og heilt leikrit sett
upp um viðburðaríka ævi hennar. Hún fann föður sinn 48 ára eftir tuttugu ára leit. Amma Maddý er
greind með geðhvörf, segist hafa verið alki frá fyrsta glasi og skildi við manninn eftir hálfa öld. Hún
segir jafnréttismál að konur á hennar aldri fái að vera með yngri mönnum ef þær kjósa það.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
B
-6
4
1
C
1
6
2
B
-6
2
E
0
1
6
2
B
-6
1
A
4
1
6
2
B
-6
0
6
8
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
1
0
4
s
_
2
6
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K