Fréttablaðið - 27.06.2015, Side 24
27. júní 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24
þar sem þeir gáfu upp hernúmer
sem er eins og kennitala og heim-
ilisfang.“
„This is Reinaldo, your father“
Magnea fór heim og skrifaði pabba
sínum, Reinaldo Rivera, bréf með
myndum af sér og þáverandi eigin-
manni og börnum. „Það liðu dagar,
ekki vika, þá hringdi síminn á
sunnudagsmorgni klukkan átta og
sagt er í símann: Good morning, this
is Reinaldo, your father.“
Magnea segist ekkert hafa vitað
hvernig hún átti að vera í símtal-
inu. „Ég hló og grét til skiptis. Við
töluðum saman í klukkutíma. Hann
sagði mér að við værum frá Púertó
Ríkó og ég ætti þrjá hálfbræður í
Ameríku og svo spurði hann hvort
hann mætti koma. Og ég sagði: Nei,
guð minn góður, ekki strax. En svo
var hann kominn eftir viku. Það var
mjög sérstakt.“
Hún segir erfitt að lýsa því að
vera allt í einu orðin dóttir manns
sem hún hafði aldrei séð áður. „Svo
erum við svo lík. Það var erfitt, en
ofboðslega tilfinningaþrungið að
hitta manninn. Hann var hérna í
viku í það skiptið, en við höfðum
mjög mikil samskipti þar til hann
dó. Hann tók mér vel.“
Rifust um pólitík og Bandaríkin
Um 100 feður komu í leitirnar
fyrir tilstilli Samtaka stríðsbarna
á Íslandi. „Ég var mjög heppin en
margir lentu í því að feður þeirra
sögðust komnir með nýtt líf og
treystu sér ekki í þennan pakka. En
pabbi tók mér opnum örmum. Ég er
reyndar ekki í miklu sambandi við
bræður mína eftir að hann faðir
minn dó, en ekkert slæmu – bara
ekki miklu. Pabbi var límið í þessu.
Hann var fjölskyldurækinn, en skap-
mikill. Hann var nýkominn heim frá
Kanada í eitt skiptið, þegar hann fór
í smá aðgerð og fékk hjartaslag og
dó. Hann sagði alltaf: ég vona að
Guð gefi að það þurfi ekkert hjúkr-
unarfólk að hugsa um mig, því ég er
óalandi og óferjandi. Sem var alveg
rétt hjá honum. Þannig að það voru
allir ægilega fegnir þegar hann dó
svona snögglega. Okkur þótti rosa-
lega vænt hvoru um annað. En við
rifumst um pólitík og hvort Banda-
ríkin væru slæm eða góð.“
Tengdó afritar samtalsmeðferðina
Svo var gert leikrit? „Já, það er kap-
ítuli út af fyrir sig. Ég var búin að
vera lengi hjá geðlækni því ég átti
erfiða bernsku og svona. Ég ákvað
að fara í samtalsmeðferð og segja
frá öllu. Læknirinn ráðlagði mér að
skrifa niður ævina, þannig að ég fór
og leigði mér bústað og skrifaði eins
langt og ég mundi aftur og fram að
þessum degi. Svo á ég tengdason
sem heitir Valur Freyr og er leik-
ari og hann fékk strax áhuga á þeim
hluta ævisögunnar sem var leitin að
pabba. Eftir langa umhugsun lánaði
ég honum söguna. Hann lék mig og
mömmu. Þetta var ótrúlega vel gert
hjá honum.“
Verkið, Tengdó, var sýnt 67 sinn-
um, sem er sennilega met á Litla
sviðinu í Borgarleikhúsinu, en upp-
haflega átti að sýna það átta sinn-
um. Tengdó fékk fjórar Grímur.
Var ekki erfitt að sjá þenn-
an kafla lífsins á sviði? Var það
kannski heilandi? „Ég veit ekki
hvað ég á að segja, bæði og. Það
var ofsalega skrítið og erfitt og
það brutust fram allar mögulegar
tilfinningar. Ég grét, og það grétu
margir – en ég var samt svo þakk-
lát hvað Valur gerði þetta vel, af
virðingu. Hann sýndi mér allt sem
hann skrifaði og gerði áður en hann
kláraði. Ég vissi að ég gæti treyst
honum. Fyrst fannst mér þetta erf-
itt og hugsaði: Hvernig dettur þér í
hug að setja þennan hluta ævi þinn-
ar upp í ginið á almenningi? En svo
þegar tíminn líður þykir mér vænt
um þetta verk. Ég gæti ekki feng-
ið betri tengdasyni þótt þeir væru
pantaðir af pöntunarlista. Þetta
gerir mig sterkari og kenndi mér
að hætta að vera með leyndarmál
– skömmin fór og nú er ég ánægð
með þetta. Það er bara flott að vera
„kanamellubarn“.“
„Góði minn, ég ræð mínu lífi“
Magnea er greind með geðhvörf.
Hún hefur átt löng góð tímabil, en
svo veikst mikið á milli.
Þá hringdi síminn á
sunnudagsmorgni og sagt er í
símann: Good morning, this is
Reinaldo, your father.
En veistu hvað ég gerði?
Ég henti lyfjunum. Ég ákvað
einn daginn að mér væri
batnað.
Ég keypti tvo sumar-
bústaði, eina íbúð, nokkur
hundruð metra af gardínuefni,
tólf farseðla til Bandaríkjanna.
Það er ekki viðtekið á
Íslandi að konan sé þetta eldri
en maðurinn í ástarsambandi!
En þetta er bara jafnréttismál.
„Líkamleg veikindi eru ekk-
ert við hlið kvíða. Þú myndir ekki
óska óvini þínum svona kvíða. En
ég ef verið ofboðslega heppin með
lækna, bæði inni á geðdeild og á
Kleppi og lækninn úti í bæ, sem ég
geng enn þá til. Þetta er dásamlegt
fólk. Það er eins og ég hafi verið
leidd að bestu læknunum. Svo hef
ég mikla hjálp fengið í Hugarafli,
sem er algjör vin í eyðimörkinni
fyrir fólk með geðraskanir. Allir
með svo stórt hjarta og vilja hjálpa,
kærleiksríkt og klárt fólk. Og að
eiga fjölskyldu sem maður getur
hvílt í þegar maður er veikur, eins
og ég á, það er auðvitað engu líkt.“
Magnea lýsir aðdraganda veik-
inda sinna fyrir tveimur árum sem
viðburðasnauðum tíma. „Það var
nákvæmlega ekkert að ske í mínu
lífi nema gott. En veistu hvað ég
gerði? Ég henti lyfjunum. Ég ákvað
einn daginn að mér væri batn-
að. Geðlæknirinn minn var mjög
mótfallinn þessu – sagði það stór-
hættulegt. Hann var 41 og ég var
68 þegar þetta gerist, og ég sagði:
Góði minn, ég ræð mínu lífi, ég er
68 ára.“
Verslaði veglega í maníunni
Það liðu nokkrar vikur þangað til
Magnea veiktist meira en nokkru
sinni fyrr. „Það skrítna er að ég fór
aftur á sömu lyf og ég hafði hent og
þá virkuðu þau ekki. Það veit eng-
inn af hverju. Það voru reynd sjö
þunglyndislyf á mér áður en lyfin
byrjuðu að virka. Ég lá inni á deild
í tíu mánuði. Það er samt svo miklu
eðlilegri nálgun af geðlæknum
núna en fyrst þegar ég var að veikj-
ast. Þegar ég lá inni á geðdeild ’97
talaði enginn um mataræði, svefn
og hreyfingu, en núna er mikið lagt
upp úr því. Það er jákvæð breyting.
En ég hef bara farið í eina alvöru
maníu á ævinni. Það var rétt fyrir
Hrun.“
Magnea hlær þegar hún rifjar
upp maníuna. „Mér datt í hug að
versla veglega, þannig að ég keypti
tvo sumarbústaði, eina íbúð, nokk-
ur hundruð metra af gardínuefni,
tólf farseðla til Bandaríkjanna,
og eitthvað fleira. Við vorum að
fara á ættarmót til Púertó Ríkó að
hitta föðurfjölskylduna. Þá vorum
við tólf í fjölskyldunni. Mér fannst
þetta alveg rakið, ég bauð þeim til
BNA og þau keyptu flugið áfram.
Þegar ég fór svo upp á deild sagði
geðlæknirinn við mig: Magnea mín,
ég skil þetta ekki, ætlarðu 12 sinn-
um til Ameríku? Nei, nei, við erum
tólf sko, dæturnar og tengdasyn-
ir og barnabörn og við förum öll.
Og við fórum. Þá var mér reyndar
batnað.“
Góður tími til að fara í maníu
„Svo þurfti maðurinn minn að fara
í að vinda ofan af þessum ósköp-
um. Ég hafði líka selt húsið sem við
bjuggum í. Það var ekki hægt að
draga það til baka. Ég falsaði nafn-
ið hans á alla pappíra og fannst það
ekkert mál. Fór í bankann, fyrir
hornið með pappírana, skrifaði
nafnið hans og inn aftur og þjón-
ustufulltrúinn gerði enga athuga-
semd við það að ég var tvær mínút-
ur að verða mér úti um undir skrift
mannsins. En þá gátu allir fengið
lán. Ég lenti á voða góðum tíma í
maníunni.“ Magnea hlær.
Magnea segist vera fín þegar
hún er á lyfjunum. „Ég mun aldrei
hætta aftur á lyfjunum. Fólk hefur
svo mikla fordóma fyrir geðlyfjum,
en ég þakka Guði fyrir að þau séu
til. Annars væri ég dauð. Ef ég er
alveg heiðarleg þá held ég að þetta
hafi verið fordómar gagnvart geð-
lyfjum. Mér hefði aldrei dottið í hug
að hætta á lyfjunum ef ég væri með
sykursýki.“
Kýldist út af einni pípu
Móðurfólk Magneu smakkaði varla
vín, en sjálf átti hún í vandræðum
með áfengi og vímuefni. Þegar hún
hitti föðurfjölskyldu sína loksins,
48 ára, fór ýmislegt að renna upp
fyrir henni. „Þegar ég hitti fólkið
mitt úr föðurfjölskyldu og kynnt-
ist bræðrum mínum, þá vorum við
öll alkóhólistar og kallinn líka. Mér
dettur í hug að þarna sé tenging,“
segir Magnea og hlær.
Hún hóf 16 ára að drekka og seg-
ist hafa verið alki frá fyrsta glasi.
„Ég drakk mig dauða á fyrsta fyll-
eríinu og svo bara drakk ég og
drakk. Svo þegar ég var rúmlega
tvítug og bjó í Keflavík, þá flæddi
bara niður af Keflavíkurflugvelli
hassið og það þótti ekkert meira en
að reykja sígarettur í þá daga. Ekk-
ert gras, þetta var bara hass frá
Líbanon og ógeðslega sterkt. Maður
kýldist út af einni pípu. Þannig að
ég fór fljótt að reykja daglega, svo
fór ég að nota pillur, róandi og örv-
andi, spítt um helgar og róandi til
að ná mér niður. Síðustu tíu árin
var ég í daglegri neyslu, Valíum á
morgnana. Ég fór í gegnum nám og
fékk fína vinnu með þessu.“
Þegar Magnea var enn í neyslu,
sem hún lét af fyrir rúmum þrjá-
tíu árum var ekki búið að greina
hana með geðhvörf. „Fyrst hélt ég
að ég væri ekki í nægilegum bata
frá alkóhólisma en svo komst ég að
því að þetta var honum algjörlega
óskylt, annar sjúkdómur.“
Skildu eftir hálfa öld
Talið berst að fyrrverandi eigin-
manni Magneu. „Ég kynntist
manninum þegar ég var tíu ára.
Við vorum saman í bekk í Kefla-
vík. Hann sagði nú stundum, að
þegar hann sá mig koma inn í bekk-
inn, með svarta hárið og krullurn-
ar og dökku húðina, þá hefði hans
líf verið skráð. Hann er ofboðslega
góður maður og pabbi og afi og
eiginmaður, finnst mér. Við vorum
búin að búa saman í tæplega fimm-
tíu ár þegar við skildum fyrir hálfu
ári.“
Hvernig er að skilja eftir hálfa
öld? „Hann óskaði eftir skilnaði.
Það kom eins og þruma úr heið-
skíru lofti og var rosalega erfitt.
Af því að ég hafði aldrei átt neitt
líf sem fullorðin kona án hans. En
ég tók strax þann pól í hæðina að
hafa þennan skilnað ekki eins og
stríð, við vorum á leiðinni að verða
langafi og -amma og ég vildi ekki
stríð. Við höfum alltaf haft tals-
vert samband og höfum enn, farið
saman í afmæli hjá barnabörnum
sem eru níu, útskriftir og frum-
sýningar, því við eigum börn sem
starfa mikið í listum og í leikhúsi.
Ég var ótrúlega fljót að jafna mig
og líta á þetta sem nýtt tækifæri, að
kynnast sjálfri mér betur og hvað
ég vil, ein. Núna er ég orðin sátt.“
Magnea hafði aldrei gert neitt
nema með honum. „Þetta var eins og
nýtt líf. Bara það að búa ein, vakna
ein á morgnana. Hvað á maður að
gera einn klukkan átta á morgnana?
Við vorum rosalega góðir vinir og
erum í raun og veru enn, það er ekk-
ert tekið í burtu.“
Jafnréttismál að fá að elska yngri
En er Magnea eitthvað að slá sér
upp? „Já. Sem er mjög sérstakt og
óvenjulegt á Íslandi af því að mað-
urinn er talsvert yngri en ég. Við
erum að tala um áratugi.“
Magnea skellir upp úr. „Það er
ekki viðtekið á Íslandi að konan sé
þetta eldri en maðurinn í ástarsam-
bandi! En þetta er bara jafnréttis-
mál. Af hverja mega mennirnir vera
miklu eldri en konurnar? Ég viður-
kenni alveg að ég hrekk stundum
sjálf í kút þegar ég man eftir þess-
um aldursmun og hugsa: Á hvaða
ferðalagi ert þú eiginlega Magnea?
Ég var mjög hrædd um hvað fólk
myndi segja um okkur, þegar við
fórum að vera saman og ég tala nú
ekki um að opinbera þetta hér í við-
tali í Fréttablaðinu. Ég óttast for-
dómana og ég óttast höfnun. En ég
er 70 ára og ég ætla ekki að láta for-
dóma samfélagsins stoppa mig í
þessu. Það kemur ekki til greina.“
Hún heldur áfram. „Ég mæli með
því að konur á mínum aldri láti ald-
urinn ekki stöðva sig. Við getum allt
og það er æðislegt að fá að kynn-
ast sér svona upp á nýtt. Svo á ég
dásamlega fjölskyldu sem styður
við bakið á mér hvað sem á dynur
og heldur mér ungri – besta vinkona
mín er 25 ára, barnabarnið mitt hún
Kolfinna. Ég er æðislega þakklát
fyrir þau.“
Tvær af ömmustelpum Magneu,
Salka og Kolfinna, eru í hljómsveit-
inni Reykjavíkurdætrum. „Svo hef
ég óskað eftir því að fá að vera með-
limur í hljómsveitinni. Mér finnst
þær vera æðislegar og ég er mjög
stolt af þeim eins og af allri minni
fjölskyldu. Reykjavíkurdætur hafa
tekið því vel og málið er í athugun.“
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
B
-7
7
D
C
1
6
2
B
-7
6
A
0
1
6
2
B
-7
5
6
4
1
6
2
B
-7
4
2
8
2
8
0
X
4
0
0
8
B
F
B
1
0
4
s
_
2
6
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K