Fréttablaðið - 27.06.2015, Page 28
27. júní 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 28
Einn sunnudagsmorguninn á grísku sælueyjunni Kos hitti ég Qamar. Hún er frá Dara’s þar sem helvítið í Sýrlandi byrjaði fyrir fjórum árum. Nú er hún komin alla þessa leið með börnin sín þrjú, með
tveggja ára biðstöðu í flóttamannabúðum í
Austur-Tyrklandi, við landamæri Sýrlands.
Þangað fór hún eftir að eiginmaðurinn var
drepinn. Eða brenndur. Hann vann hjá raf-
veitunni og eftir að tvær bílsprengjur höfðu
sprungið í bænum var hann handtekinn
fyrir það eitt að vera súnní-múslimi. Þremur
mánuðum seinna birtist hann, á líkbörum,
en læknirinn hvíslaði að henni að dánar-
orsökin væri raflost í kynfærin, þau væru
brunnin. Hún flúði til Tyrklands.
Það eru tvær milljónir Sýrlendinga í
flóttamannabúðum í Tyrklandi. Önnur
milljón er á vergangi. En Qamar segir
aðbúnaðinn vera til fyrirmyndar hjá Rauða
krossinum og Flóttamannahjálp Sameinuðu
þjóðanna, eins langt og það nær.
„En eftir tvö ár varð ég að fara, fyrir
börnin mín. Þau verða að komast í skóla,
læra að reikna, lesa, eiga framtíð. Það er
engin framtíð fram undan í Sýrlandi. Þetta
stríð mun vara í tíu ár hið minnsta. Sýrland
sem var verður aldrei aftur til. Jafnvel hel-
vítis forsetinn veit það. Þetta óguðlega stríð
hefur ekkert að gera með okkur Sýrlend-
inga, við erum bara peð í valdatafli milli
Írans og Sádi-Arabíu, eins og Jemen. Og
einhver sagði mér, nú á leiðinni, að ástand-
ið þar væri enn verra en hjá okkur. Hvern-
ig er það hægt? En nú er ég þó komin til
Evrópu,“ segir Qamar sem hefur búið um sig
og börnin sín undir tré í garðinum. „Hér er
mér alla vega frjálst að anda og tala, er það
ekki?“ spyr hún og hlær í garðinum á Hótel
Capitain Elias.
5.700 á einni helgi
Á hótelinu búa rúmlega 300 flóttamenn; í 22
litlum herbergjum, í matsalnum, í garðinum
í fimm tjöldum sem Rauði krossinn hefur
komið upp – og svo undir berum himni eins
og Qamar. Það er ekki rafmagn, rennandi
vatn eða salernisaðstaða á hótelinu. Já, vel-
komin til Evrópu.
Það sem af er þessu ári hafa rúmlega 100
þúsund flóttamenn komið yfir Miðjarðar-
haf, á bátskænum, í leit að framtíð. Nær allir
til Ítalíu og Grikklands, enda þau lönd sem
næst eru Afríku og Asíu. Nokkur þúsund
hafa drukknað.
Eina helgina í maí er 5.700 flóttamönnum
bjargað af Miðjarðarhafi, þar af eru 620 sem
koma frá Tyrklandi.
Fyrstu farþegarnir eru dregnir í land
klukkan fimm á sunnudagsmorgni. Síð-
asti báturinn finnst um sjö. Klukkutíma
síðar eru síðustu flóttamennirnir komnir á
bryggjusporðinn, þar sem hinir bíða, eins og
fé á leið í réttir.
Upp úr átta er síðan gengið í gegnum Kos-
bæinn, tveggja kílómetra leið í lögreglu-
fylgd, að Hotel Capitain Elias, þar sem fólkið
er skilið eftir. Árrisulir ferðamenn, á leið í
árbít, horfa undrandi á þessa skrúðgöngu.
Sumum finnst truflandi, í fríi að sleikja sól-
ina, að þurfa að mæta þessum flóttamönn-
um. Fjölskyldum með allt sem þær eiga í
einum litlum bakpoka. Á Kos snýst lífið um
ferðamenn og hefur þetta haft mikil áhrif. Í
maí komu helmingi færri til Kos en í sama
mánuði í fyrra.
Ég hitti lögreglustjórann í Kos fyrir utan
lögreglustöðina. Þar bíða flóttamennirnir
eftir að láta skrásetja sig inn í Evrópu. Ég
býð kurteislega góðan dag en bregður svo-
lítið þegar hann hækkar róminn: „Not a very
good morning, no morning is now a good
morning here in Kos.“
EKKERT SUMAR Á SÝRLANDI
Páll Stefánsson ljósmyndari ferðaðist til Sýrlands, Tyrklands og Grikklands þar sem hann hitti fjölda flóttamanna í leit að betra
lífi. Hann segir sögur af augnablikum í lífi þessa fólks sem er nýkomið til grísku eyjarinnar Kos frá hörmungum í Sýrlandi.
VELKOMIN TIL EVRÓPU Flóttamenn búa sér til
athvarf á auðum lóðum.
BEÐIÐ EFTIR BETRA LÍFI Fólkið drepur tímann með því að sofa, hugsa og með leik. Algjör kynjaskipting er í leikjum unglinganna. Strákarnir fara í fótbolta, stelpurnar í brennó.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
B
-5
F
2
C
1
6
2
B
-5
D
F
0
1
6
2
B
-5
C
B
4
1
6
2
B
-5
B
7
8
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
1
0
4
s
_
2
6
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K