Fréttablaðið - 27.06.2015, Side 38
FÓLK|HELGIN
Samvinna tónlistarmannanna Krist-jönu Stefánsdóttur og Svavars Knúts varð til út frá umræðu við
eldhúsborð sameiginlegs útgefanda
þeirra beggja um að láta ólíka tónlistar-
menn leiða saman hesta sína. „Það varð
úr að við Svavar Knútur héldum saman
miðsumarstónleika í Viðey. Við smullum
svo vel saman að miðsumarstónleik-
arnir verða nú haldnir í sjöunda skiptið
á morgun. Fyrstu þrjú skiptin vorum við
í Viðey en höfum síðan verið í sjóminja-
safninu Víkinni,“ segir Kristjana. „Við
eigum vel saman á tónlistarsviðinu en
urðum líka perluvinir, hann er eiginlega
eins og bróðir minn. Þetta er mjög fal-
legur vinskapur og skemmtilegur, við
erum svo ólík en alveg frábær kokteill.
Raddirnar okkar smella saman eins og
flís við rass og tónlistarsmekkurinn er
svipaður. Við náum ekki saman alls stað-
ar en það koma mjög stórir og skemmti-
legir fletir sem við eigum sameiginlega.“
ANGURVÆRÐ OG FÍFLAGANGUR
Kristjana og Svavar hafa unun af því
að syngja saman dúetta og gáfu þau út
dúettaplötuna Glæður árið 2011 sem
hlaut góðar viðtökur. Á tónleikunum á
morgun mun ríkja bæði gleði og angur-
værð ásamt örlitlum fíflagangi og bera
þau vinirnir á borð fjölbreytta dagskrá
dúetta, sem rúmar allt frá Abba til Dolly
Parton með viðkomu hjá Nick Cave og
Páli Ísólfssyni, auk frumsaminna laga.
„Það ægir öllu saman hjá okkur, við
höfum haft þetta þannig hjá okkur að
það eru tvær raddir og gítar en ég hef
verið að færa mig upp á skaftið og spila
á píanó líka. Þetta er að þróast hægt og
rólega hjá okkur,“ útskýrir Kristjana.
ÓSTAÐSETJANLEG PLATA
Kristjana segist hafa verið að semja eig-
in tónlist frá því hún var barn en hefur
fundið útrásina fyrir það undanfarin ár
í leikhúsinu. Hún samdi tónlistina fyrir
tvær farsælar sýningar í Borgarleikhús-
inu, Jesú litla og Hamlet litla. „Nú erum
við Bergur Þór Ingólfsson að vinna að
nýju verki sem verður frumsýnt í haust,
það heitir Sókrates og er trúðaópera. Ég
geri tónlistina og Bergur skrifar hand-
ritið. Ég er líka með sólóplötu í smíðum
og er eitt lag af henni komið út. Ég fer
í tökur á næsta lagi í byrjun júlí og tek
svo alla plötuna endanlega upp í byrjun
næsta árs,“ segir hún en lendir í nokkr-
um vandræðum þegar hún er beðin um
að lýsa tilvonandi plötu. „Þetta er að
minnsta kosti ekki djass eða blús eins
og ég er þekktust fyrir. Ég veit hreinlega
ekki hvar ég get staðsett hana, ég hlusta
mikið á klassíska tónlist og nútímatón-
list og þetta er einhvers konar bland í
poka. Einhver samsuða.“
TYLLIR SÉR Á BEKKI
Auk þess að halda tónleika á morgun
býst Kristjana við að kíkja út úr bænum
en hún sækir innblástur í náttúruna og
veit fátt skemmtilegra en að vera úti í ís-
lenskri náttúru á sumrin. „Það þarf ekki
að fara langt út fyrir bæinn til að komast
í íslenska náttúru og fá gott súrefni. Ég
fór til dæmis í vikunni í Haukadalsskóg
við Geysi með erlendum vini, vildi sýna
honum að það væru til skógar á Íslandi
og það var alveg dásamlegt. Það eru
ekki margir sem vita af þessum skógi en
það er eins og að vera í útlöndum þar.
Að fara í fjallgöngur er eitthvað sem ég
gerði mikið af sem barn og mig langar
að gera meira af því. Ég er þó ekki þessi
fjallgöngutýpa sem þarf að klífa sem
flesta tinda eða fara sem hraðast yfir, ég
vil frekar staldra við og njóta. Tylla mér
á bekki á leiðinni og borða hundasúrur,“
segir Kristjana og hlær.
Aðspurð hvort hún eigi sér fleiri
áhugamál segir hún að sér finnist gaman
að fara á tónleika og í leikhús. „Tónlistin
og leiklist tvinnast saman sem atvinna
og áhugamál hjá mér. Mér finnst líka
svakalega skemmtilegt að ferðast, að
skoða önnur lönd og menningu, að elda
góðan mat og svo sauma ég stundum
út og prjóna ef ég hef tíma. Aðalmálið
er þó móðurhlutverkið en ég á tólf ára
dóttur sem ég deili með barnsföður mín-
um. Við höfum farið einu sinni saman
til útlanda og stefnum á að gera meira
af því. Annars reynum við alltaf að
gera eitthvað skemmtilegt í frítímanum
okkar, bökum, fáum vini í mat og fleira.“
■ liljabjork@365.is
INNBLÁSTUR ÚR NÁTTÚRUNNI Kristjönu finnst nauðsynlegt að komast út í íslenska náttúru og fá gott súrefni í lungun. MYND/ANDRI
MARINÓ
VILL HELST STALDRA
VIÐ OG NJÓTA
TÓNLISTARSAMSUÐA Kristjana Stefánsdóttir og Svavar Knútur hafa gaman
af því að syngja dúetta saman. Þau verða með tónleika á morgun í Víkinni.
GÓÐIR
VINIR
„Við eigum vel
saman á tónlistar-
sviðinu en urðum
líka perluvinir, hann
er eiginlega eins
og bróðir minn.
Þetta er mjög fal-
legur vinskapur og
skemmtilegur, við
erum svo ólík en
alveg frábær kok-
teill.“
Njóttu sumarsins með
Veiðikortinu 2015 og
búðu til þínar minningar!
38 vatnasvæði!
www.veidikortid.is
Fæst í apótekum og heilsubúðum
P
R
E
N
T
U
N
.IS
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Flatur magi á sjö dögum
One Week Flat dregur úr lofti í maga
og gerir þaninn kvið flatari.
”
“
Ég mæli með því að nota vandaða
meltingargerla eins og frá
OptiBac Probiotics til að viðhalda
heilbrigðri meltingu og bæta
almenna heilsu
Hanna Rún Bazev Óladóttir
dansari.
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
B
-A
9
3
C
1
6
2
B
-A
8
0
0
1
6
2
B
-A
6
C
4
1
6
2
B
-A
5
8
8
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
1
0
4
s
_
2
6
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K