Fréttablaðið - 27.06.2015, Síða 42
FÓLK|HELGIN
Þeir sem fara upp á Esju Reykjavíkur-megin um helgina þurfa að hugsa sig vel um áður en þeir ákveða
hvora leiðina þeir fara niður. Í sumar-
bústað við Meðalfellsvatn í Kjós verður
nefnilega hægt að fá girnilegan varning,
ómótstæðilega súpu og frábæran félags-
skap á markaði sem félagsskapurinn Tau
frá Tógó stendur fyrir. Það er Kristín
Jónsdóttir, ein forsvarskvenna Taus í
Tógó, sem verður fyrir svörum. „Mark-
miðið með Taui frá Tógó er að selja
alls konar vörur sem framleiddar eru á
heimili fyrir munaðarlaus börn í Aneho
í Tógó sem Íslendingar hafa komið að
því að styrkja með ýmsum hætti. Ég
dróst inn í þetta í gegnum vinkonu mína
sem ættleiddi dreng frá heimilinu fyrir
nokkrum árum og ég fór með henni að
sækja hann. Þessi heimsókn hafði djúp
áhrif á okkur og úr varð að stofna Tau
frá Tógó til að styrkja saumastofu sem
rekin er samhliða heimilinu. Mörg börn
sem koma á heimilið fara út af því aftur
og til fjölskyldna en því miður ekki öll og
þau börn alast upp á heimilinu fram á
fullorðinsár. Það er mikilvægt að mennta
þessa krakka og hluti þeirra fer í iðnnám
á saumastofuna. Tau frá Tógó styrkir
þennan hluta starfseminnar.“
Tau í Tógó hefur fengið inni á ýmsum
sölustöðum gegnum tíðina en allt starf
fer fram í sjálfboðavinnu. „Við borgum
aldrei fyrir neina vinnu en það er öllum
heimilt að leggja okkur lið. Við höfum
lánað poka með varningi í saumaklúbba
og á Lionsfundi en fólk fær ekkert án
þess að borga, hvorki söluaðilar né aðrir.
Börnin í Tógó eiga þetta, hverja einustu
krónu.“ Ný sending verður tekin upp úr
kössum á föstudaginn og Kristín lofar
spennandi varningi. „Þetta eru til dæmis
rosalega flottar og voldugar svuntur sem
eru tilvaldar til að grilla með, litríkar og
fallegar og passa á alla. Svo erum við
með margnota innkaupapoka sem hægt
er að snúa við eftir því hvernig skapi
við erum í þann daginn, litlar buddur
og stærri veski, æðislega skokka á litlar
stelpur og ýmislegt fleira.“ Markaðurinn
verður, eins og áður sagði, við Meðal-
fellsvatn. „Þar sem hávaðinn verður,“
segir Kristín og bætir við: „Við ætlum að
syngja, spila og leika okkur, verðum með
grænmetissúpu úr gámagrænmeti og svo
verður grill ef einhverjir vilja koma með
eitthvað á það. Svo mega allir koma og
selja sitt handverk, og geta þá ýmist hirt
ágóðann sjálfir eða gefið til Tógó. Þetta
er tilraun og ef þetta gengur vel verður
þetta örugglega bara árlegt.“
Það er ýmsu að fagna hjá Taui frá Tógó
um þessar mundir en samtökin fengu
nýverið styrk frá AlheimsAuði upp á
500.000 krónur. Peningarnir verða notað-
ir til að kaupa nýjar saumavélar á sauma-
stofuna en langtímamarkmið Taus frá
Tógó er að styrkja saumastofuna þannig
að hún geti tekið við stærri verkefnum og
að heimilið geti þannig nýtt saumastof-
una sem áreiðanlega tekjulind en einnig
er markmiðið að efla menntunarsjóð
heimilisins. Allar nánari upplýsingar má
finna á Facebook á síðunni Tau frá Tógó.
FALLEGIR SKOKKAR Á LITLAR HNÁTUR Þessir passa á eins til þriggja ára.
MARGNOTA INNKAUPAPOKAR Og ekki verra að hægt er að snúa þeim við og nota
á báða vegu.
SVUNTUR Á ALLA
Þessar litríku svuntur
passa á háa sem lága,
mjóa sem breiða og að
sjálfsögðu bæði kynin.
TÓGÓ Í KJÓS
GOTT MÁLEFNI Tau frá Tógó verður miðpunkturinn á markaði við
Meðalfellsvatn í dag en Íslendingar hafa styrkt börn þaðan í nokkur ár.
MIKIÐ FJÖR
„Við ætlum að
syngja, spila og
leika okkur, verð-
um með græn-
metissúpu úr
gámagrænmeti
og svo verður grill
ef einhverjir vilja
koma með eitt-
hvað á það.“
ÓKEYPIS
Ritsmiðjan er opin
börnum á aldrinum
8 til 12 ára. Ekki
þarf að skrá sig
á námskeiðin og
þátttaka er ókeypis
en gott er að mæta
tímalega. Smiðjan
hefst klukkan
13 og stendur til 16.
Í september,
október og nóvem-
ber verða haldn-
ar fleiri ritsmiðjur
undir stjórn
Markúsar Más.
Ritsmiðja fyrir börn verður haldin í Hug-
myndasmiðjunni á Kjarvalsstöðum í dag.
Smiðjan verður unnin í tengslum við Kjarvals-
sýninguna Út á spássíuna.
„Kjarval málaði margar myndir af vinum
sínum og setti þá gjarnan í ævintýralegt um-
hverfi og í smiðjunni munu börnin fá tækifæri
til að skrifa sögur um vini sína eða fjölskyldur
innan ramma töfraraunsæis og glæða hvers-
dagsleikann ævintýrablæ.“
Leiðbeinandi ritsmiðjunnar er Markús Már
Efraím. Markús stýrði einnig ritsmiðjunni Eitt-
hvað illt á leiðinni er… sem fram fór í vetur
í samstarfi við nemendur í 3. og 4. bekk á frí-
stundaheimilunum Draumalandi, Eldflauginni
og Halastjörnunni.
Verkefnið gat af sér drauga- og hryllings-
sögusafn sem gefið var út undir sama nafni og
inniheldur sögur 19 ungra höfunda.
Ritsmiðjan er opin börnum á aldrinum 8 til
12 ára. Ekki þarf að skrá sig á námskeiðin og
þátttaka er ókeypis en gott er að mæta tíman-
lega. Smiðjan hefst klukkan 13 og stendur til
16.
RITSMIÐJA FYRIR BÖRN
Hugmyndasmiðjan á Kjarvalsstöðum stendur fyrir
skapandi ritsmiðju fyrir krakka í dag.
SKAPANDI SKRIF Ókeypis ritsmiðja fyrir börn fer fram á Kjarvalsstöðum í dag.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
B
-9
0
8
C
1
6
2
B
-8
F
5
0
1
6
2
B
-8
E
1
4
1
6
2
B
-8
C
D
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
1
0
4
s
_
2
6
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K