Fréttablaðið - 27.06.2015, Page 71
5
rigningunni. Allt án þess að þurfa
að pakka honum inn í einhverja
vatnsvörn.“
Hleðslutækið fær frí
Stutt ending á rafhlöðu er eitthvað
sem snjalltækjanotendur þekkja.
Sérstaklega í tækjum með stóra og
bjarta skjái sem sjúga upp orkuna.
Sony hefur tekist að lengja líftíma
rafhlöðunnar upp í allt að 2 daga í
senn með samvinnu góðs örgjörva
og breytingu á því hvernig efnið er
sett á skjáinn. En hafa ber þó í huga
að ending fer vissulega eftir notkun
og aðstæðum hvers og eins. „En á
endanum þarf alltaf að hlaða,“ segir
Guðni en bætir við að með „quick
charge“ eiginleikum rafhlöðunnar
í Xperia Z3+ sé hægt að ná hleðslu
sem dugar í tæpar sex klukkustund-
ir með því að hafa símann í hleðslu í
aðeins 10 mínútur.
Kvikmyndir, tónlist og tölvuleikir
Guðni segir aðgengi Sony-notenda
að afþreyingu vera ótrúlegt. „Hvort
sem það eru kvikmyndir, tónlist eða
tölvuleikir, þegar afþreyingin er
komin í snjalltækið fylgir allt efnið
með hvort sem farið er upp í sum-
arbústað, í útilegu eða á hótel er-
lendis. Hægt er að tengja snjalltæk-
ið þráðlaust við flatskjáinn og spegla
aðgerðir símans í fullum gæðum á
bæði hljóð og mynd, streyma efni
af minni snjalltækisins eða beint
af netinu í næsta flatskjá eða hljóð-
kerfi. Einfaldara getur þetta ekki
orðið.“ Hann segir það sama vera
í boði fyrir spilun á Playstation en
með litlum aukahlut er hægt að festa
stýripinnann af tölvunni við snjall-
tækið og spila yfir netið tölvuleikina
sem eru á tölvunni heima.
Þunnur og þægilegur
„Flestir hafa skoðun á því hvern-
ig tækin þeirra líta út,“ segir Guðni
og bætir við: „Þetta fer auðvitað ekki
fram hjá hönnuðum Sony enda er öll
hönnun stílhrein og falleg. Stærð og
þyngd snjallsímanna fer eftir týpum
en allar eiga þær það sameiginlegt
hjá Sony að vera sterklega byggð-
ar með gott grip og gefa veglega en
þægilega tilfinningu í hendi. Tækin
eru sérstaklega meðfærileg, hvort
sem er í vasa eða á borði.“
Úrval aukahluta sem styðja við
Sony-snjalltækin er gríðarlegt, að
sögn Guðna, og hann nefnir sem
dæmi Android Wear-snjallúr, Blueto-
oth-hátalara og heyrnar tól við öll til-
efni, hljóðnema sem breyta snjall-
tækjunum í upptökutæki, festingu
fyrir Playstation-stýripinna sem
gefa fullkomna upplifun við spilum
tölvuleikja og svo mætti lengi telja.
Snjalltæki frá Sony hafa ekki verið
fyrirferðarmikil á markaðnum und-
anfarin ár þrátt fyrir að fyrirtæk-
ið hafi verið með þeim fyrstu til að
setja Android-snjallsíma á markað.
Guðni segir fyrirtækið samt hafa
farið í gegnum gríðarlega þróun og
vinnu sem sé að skila sér í frábæru
úrvali fyrir alla sem tileinka sér
tæknina. „Það eru spennandi tímar
fram undan hjá Sony Mobile og það
verður gaman að fylgjast með sterkri
innkomu á markaðinn. Enda verð-
ugur keppinautur sem verðskuldar
alla athygli.“
KYNNING − AUGLÝSING Farsímar og fylgihlutir27. JÚNÍ 2015 LAUGARDAGUR
Sony hefur fyrir löngu skapað sér nafn sem leiðandi fyrir-tæki í tækniheiminum og
eru dæmin mýmörg. Guðni Krist-
jánsson, framkvæmdastjóri Actus
sem er umboðsaðili Sony Mobile á
Íslandi, segir hér frá Sony í fortíð,
nútíð og framtíð. „Sony ber ábyrgð
á því að þróa og kynna tækninýj-
ungar sem hreinlega breyttu heim-
inum fyrir fólk á ferðinni. Þar má
til dæmis nefna Walkman-spilar-
ana eða vasadiskóin eins og við Ís-
lendingar þekkjum þau, sjónvörp-
in frá Sony hafa skarað fram úr
og hljóðkerfin sömuleiðis. Tölvu-
leikjaheimurinn hefur einnig held-
ur betur verið í höndum Sony með
Play station-tölvunum.“
Hann segir Sony hafa komið
meira og meira inn á snjalltækja-
markaðinn frá því fyrirtækið sam-
einaðist sænska farsímaframleið-
andanum Ericsson. Seinna yfirtók
Sony alla framleiðslu og framleið-
ir nú öll sín snjalltæki undir nafni
Sony Mobile. „Með áratugareynslu
og framúrskarandi þekkingu hefur
Sony tileinkað sér Android-stýri-
kerfið og tekið snjalltækjamark-
aðinn með trompi með frábærum
snjalltækjum sem uppfylla þarf-
ir kröfuhörðustu notenda og gefa
samkeppnisaðilum ekki tommu
eftir.“
Vatnsheld Android-snjalltæki
Snjalltækjafjölskyldan XPERIA er
vörulína frá Sony sem hefur að bjóða
röð snjallsíma og spjaldtölva sem
keyra á Android-stýrikerfinu. „Þessi
tæki henta öllum, allt frá þeim sem
eru að byrja sína snjalltækjanotkun
upp í þá sem hafa reynsluna og vita
hvað þeir vilja,“ segir Guðni og bætir
við að helstu eiginleikar snjalltækja
frá Sony byggi á þekkingu í fram-
leiðslu á myndavélum, rafhlöðu-
endingu, fágaðri hönnun og að-
gengi að yfir gnæfandi miklu magni
afþreyingar. „ Svo ekki sé nefnd
vatns- og rykheldni sem gerir tækin
algjörlega einstök,“ bætir hann við.
„Að vera með vel hannaðan og stíl-
hreinan snjallsíma sem þú skolar í
vaskinum eða smellir af í sundi er
eitthvað sem raftækjanotendur hafa
ekki getað tileinkað sér áður. Það
eru flestir meðvitaðir um hættuna
við að fá vökva á símann sinn, bleyta
hann í rigningunni, hella óvart yfir
hann, missa hann ofan í vaskinn
eða bjarga honum eftir að duglega
hefur verið slefað á hann úr höndum
litlu snillinganna sem eiga það til
að leita í snjallsíma foreldra sinna.
Þetta vandamál er úr sögunni.“
Bjartar myndir á bólakafi
Vatnsheldnin er þó ekki bara tæki-
færi til að forða tækinu frá skemmd-
um heldur er nú komið tækifæri til
að bæta nýrri tegund mynda í al-
búmið. „Nú er hægt að taka mynd-
ir í aðstæðum sem ekki hefur verið
mögulegt áður, jafnvel ofan í vatni,“
segir Guðni en hægt er að fara með
Sony Xperia Z3+ símann, sem er
nýjasta eintakið í Xperia-línunni,
rúmlega metra ofan í vatn. Mynda-
vélin er með rúmlega 20 megapixla
og tekur einstaklega bjartar og skýr-
ar myndir þó birtuskilyrði séu ekki
með besta móti. „Hægt er að taka
góðar myndir á hjólinu, á skíðum
eða bretti, í vatnsrennibrautinni, í
átökum við laxinn á árbakkanum, í
snjókomunni um jólin eða íslensku
Hafðu Sony í hendi þér
Sony Mobile farsímar sækja stöðugt í sig veðrið enda afrakstur margra ára metnaðarfullrar þróunarvinnu þessa leiðandi fyrirtækis.
Fingraför á súkkulaðikámugum skjáum heyra nú sögunni til.
Guðni Kristjánsson, framkvæmdastjóri Actus sem er umboðsaðili Sony Mobile á Íslandi. MYND/ANDRI MARINÓ
Nú er ekkert mál að spila
Playstation-leiki í símanum.
Með Sony Mobile-
vörunum má fá fjölda
fallegra fylgihluta.
Þessum má
gleyma úti í
rigningu.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
B
-8
1
B
C
1
6
2
B
-8
0
8
0
1
6
2
B
-7
F
4
4
1
6
2
B
-7
E
0
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
1
0
4
s
_
2
6
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K