Fréttablaðið - 27.06.2015, Qupperneq 72
Farsímar og fylgihlutir LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 20156
Snjallsíminn hefur gjörbreytt mörgum þáttum daglegs lífs okkar á undanförnum árum,
ekki síst með tilkomu fjölbreyttra
smáforrita (app). Í dag geta sím-
notendur valið úr fjölda smáfor-
rita fyrir allt milli himins og jarð-
ar, til skemmtunar en ekki síður
til fjölmargra gagnlegra hluta. Ein
þeirra sem nýta símann vel til dag-
legra verkefna og skemmtunar er
Þóranna K. Jónsdóttir, markaðs-
nörd hjá Markaðsmálum á manna-
máli, sem segir símnotendur ein-
ungis hafa séð upphafið og margt
spennandi eigi eftir að koma í ljós
á næstu árum. „Flestir sem taka
líkamsræktina alvarlega eru farn-
ir að nota smáforrit, til dæmis til að
mæla hversu langt þeir hlaupa, skrá
hreyfingu og matardagbækur og fá
upplýsingar um hitaeiningar o.fl.
Margir sem ég þekki eru líka löngu
hættir að prenta út uppskriftir held-
ur eru þær geymdar á ýmsu formi
og hægt er að sækja gegnum sím-
ann, t.d. á Pinterest. Ég er með fullt
af uppskriftum þar og finn þær í
símanum þegar ég ætla að nota þær.
Til hvers að prenta þær út, ég er allt-
af með símann við höndina?“
Fínar ljósmyndir
Hún nefnir einnig til sögunnar
ljósmyndun sem netið hefur held-
ur betur haft áhrif á; mörgum til
mikillar gleði en fagljósmyndur-
um kannski síður. „Nú eru símarn-
ir með mjög góðar myndavélar en
auk þeirra er auðvelt að finna forrit
sem gera þér kleift að láta myndirn-
ar líta enn betur út með alls konar
filterum og fíneríi. Ljósmyndun
með iPhone er hreinlega að verða
listgrein í sjálfu sér. Fyrir okkur al-
mennu borgarana er þetta skemmti-
leg þróun en þetta hefur klárlega
áhrif á atvinnutækifæri þeirra sem
hafa lifibrauð af ljósmyndun.“
Instagram í símanum
Hún segir ekki hægt að tala um
snjallsíma öðruvísi en að tala líka
um samfélagsmiðlana sem eru
mikið notaðir þar. „Instagram er
fyrst og fremst símamiðill og hefur
blásið út síðustu tvö ár. Twitter er
líka mikið til símamiðill og mjög
mikið notaður í tengslum við sjón-
varpsþætti, viðburði og annað þess
háttar. Fólk er farið að horfa á þætti
eða viðburði og „tvíta“ um þá í raun-
tíma. Það er svolítið eins og að horfa
á sjónvarp með öllum heiminum.
Það er ansi magnað og ég verð að
viðurkenna að mér finnst t.d. mun
skemmtilegra að horfa á Eurovision
og fylgjast með „hashtagginu“ fyrir
það í leiðinni heldur en að horfa á
keppnina eina og sér.“
Þróunin verður áfram
Þrátt fyrir örar breytingar síðustu
árin eiga snjallsímar eftir að þró-
ast enn meira. „Ég er spenntust að
fylgjast með hvernig þessi mál þró-
ast í tengslum við gervigreind. Ég
held að smátt og smátt þurfum við
að gera minna og minna og forritin
og tækin geti meira og meira lesið
okkur og hvað við viljum. Þetta
minnkar pikkeríið og þessu verð-
ur meira stýrt með röddinni eða
kannski bara hugsunum einhvern
tímann.“
„Þetta er orðið tæki sem fólk er
alltaf með við höndina og nánast
samgróið mörgum. Möguleikarnir
eru óendanlegir. Svo er líka spurn-
ing hvort þetta fer ekki að hætta að
vera ferkantaður sími eins og við
þekkjum hann. Það er ekkert sem
segir að svo þurfi að vera til eilífðar.
Þótt það séu skiptar skoðanir núna
með hluti eins og Google Glass og
Apple Watch þá er þessi þróun ekk-
ert að fara að stoppa og þeir detta
pottþétt niður á eitthvað sem fólk
fílar áður en of langt um líður.“
Alltaf með símann við höndina
Snjallsíminn hefur breytt lífi margra. Hann er bæði hægt að nýta til fjölmargra gagnlegra hluta, sem sparar tíma og fyrirhöfn,
auk þess sem hann er nýttur til skemmtunar og í samskiptum við annað fólk. Enn frekari þróunar má vænta á næstu árum.
Þóranna
K. Jóns-
dóttir segir
símnotendur
einungis hafa
séð upphafið
og að margt
spennandi
eigi eftir að
koma í ljós á
næstu árum.
MYND/VILHELM
iStoreKringlunni 103 Reykjavik Sími 566 8000 istore.is
Sérverslun með Apple vörur
Kringlunni
Við gerum vel í að þjónusta viðskiptavini okkar með skjótum og sveigjanlegum
vinnubrögðum. Þegar þú kemur með tölvu, síma eða iPad í ábyrgðarþjónustu þá
lánum við þér sambærilegt tæki á meðan þjónustu stendur, endurgjaldslaust.
Catalyst Stealth
Nýju Catalyst iPhone hulstrin eru vatns-, högg- og veðurhelt.
Fullkomin vörn fyrir alla þína afþreyingu og uppátæki.
Örþunn hönnunin fórnar hvorki útliti né stíl símans.
Fyrir iPhone 5, 5s, 6 og 6 plus
11.900 kr.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
2
B
-7
C
C
C
1
6
2
B
-7
B
9
0
1
6
2
B
-7
A
5
4
1
6
2
B
-7
9
1
8
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
1
0
4
s
_
2
6
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K