Fréttablaðið - 27.06.2015, Side 94
27. júní 2015 LAUGARDAGUR| SPORT | 50
Mörkin: 1-0 Ásgeir Örn Arnþórsson (90+1).
FYLKIR (4-3-3): *Ólafur Íshólm Ólafsson 8 -
Stefán Ragnar Guðlaugsson 6 (77. Hákon Ingi
Jónsson -), Tonci Radovnikovic 7, Ásgeir Eyþórsson
7, Tómas Joð Þorsteinsson 5 - Jóhannes Karl Guð-
jónsson 6, Oddur Ingi Guðmundsson 5, Andrés
Már Jóhannesson 6 - Ragnar Bragi Sveinsson 6
(89. Kjartan Ágúst Breiðdal -), Ingimundur Níels
Óskarsson 4 (58. Ásgeir Örn Arnþórsson 6), Albert
Brynjar Ingason 6..
VÍKINGUR (4-3-3): Thomas Nielsen 7 - Dofri
Snorrason 7, Milos Zivkovic 7, Alan Lowing 6, Ívar
Örn Jónsson 6 - Finnur Ólafsson 5, Igor Taskovic 7,
Rolf Toft 6 - Davíð Örn Atlason 6 (46. Hallgrímur
Mar Steingrímsson 5), Haukur Baldvinsson 6 (71.
Agnar Darri Sverrisson -), Andri Rúnar Bjarnason
(85. Viktor Bjarki Arnarsson -).
Skot (á mark): 11-11 (3-5) Horn: 6-4
Varin skot: Ólafur Íshólm 3 - Nielsen 2.
1-0
Fylkisvöllur
Áhorf: 812
Þóroddur
Hjaltalín (7)
PEPSI DEILDIN 2015
STAÐAN
FH 9 6 2 1 20-9 20
Breiðablik 9 5 4 0 16-6 19
KR 9 5 2 2 15-10 17
Fjölnir 9 5 2 2 14-9 17
Valur 9 4 3 2 16-11 15
Fylkir 10 3 4 3 11-12 13
Stjarnan 9 3 3 3 10-11 12
Leiknir R. 9 2 3 4 11-14 9
Víkingur R. 10 2 3 5 13-17 9
ÍA 9 2 3 4 8-12 9
ÍBV 9 1 2 6 8-19 5
Keflavík 9 1 1 7 9-21 4
SIGURMARK Á SÍÐUSTU STUNDU
Albert Brynjar Ingason var með fyr-
irliðabandið hjá Fylkismönnum í gær og
lagði upp sigurmarkið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
GOLF Landsliðin í golfi etja í dag kappi við úrvalslið atvinnu- og áhugamanna
á KPMG-mótinu sem haldið verður á Grafarholtsvelli. Keppnisfyrirkomulaginu
svipar til Ryder-keppninnar og því um liðakeppni að ræða á milli landsliðanna
annars vegar og úrvalsliðsins hins vegar. Margir af bestu
atvinnukylfingum landsins taka þátt í dag, þeirra á meðal
Birkir Leifur Hafþórsson (á mynd), Ólafur Björn Loftsson
og Valdís Þóra Jónsdóttir.
Spilað verður fyrir gott málefni en fyrir hvern fugl í
dag mun ákveðin upphæð renna til styrktar sumarbúðum
í Reykjadal en þar gefst börnum og ungmennum sem
þurfa sérstaka þjónustu vegna fötlunar tækifæri til að
komast í sumarbúðir.
Fyrsti hópur verður ræstur út klukkan 11.00 í dag
en auk þess að fylgjast með spennandi viðureignum
verður hægt að taka þátt í púttkeppni og fá golf-
kennslu. Nánari upplýsingar á golf.is. - esá
Spilað fyrir gott málefni í Grafarholti
HANDBOLTI Fannar Þór Friðgeirsson,
atvinnumaður í handbolta, gekk í
gær frá samningi við þýska B-deildar-
liðið Eintracht Hagen sem verður
nýliði í deildinni í vetur. Fannar hefur
spilað undanfarin tvö ár með Gross-
wallstadt en það félag fór í greiðslu-
stöðvun á dögunum og þarf að byrja
upp á nýtt í C-deildinni.
„Staðan er þannig hjá mér núna
að ég á von á mínu fyrsta barni með
konunni minni í ágúst. Gjaldþrotið
kom auðvitað á slæmum tíma þar
sem 70-80 prósent af liðunum í
efstu og næstefstu deild eru búin
að ganga frá sínum leikmanna-
málum. Það voru lið sem spurðust
fyrir um mig en þau höfðu minni
peninga milli handanna,“ segir
Fannar Þór við Fréttablaðið.
Hagen hefur fengið tvo liðsfélaga
Fannars frá Grosswallstadt til sín og
fleiri ágæta leikmenn, en liðið ætlar
sér stærri hluti á næstu árum en bara
að berjast fyrir sæti sínu í B-deild.
„Þetta er alveg óskrifað blað fyrir
mig. Ég veit bara að félagið hefur
fengið góða leikmenn og kynnti fyrir
mér framtíðarplanið sem hljómaði
vel. Ég er með svipaðan samning og
hjá Grosswallstadt þannig að ég er
bara sáttur,“ segir Fannar Þór. - tom
Fannar rennir blint í sjóinn hjá Hagen
NÝR STAÐUR Fannar Þór Friðgeirsson
færir sig um set. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
FÓTBOLTI Blikar voru aðeins nokkr-
um mínútum í uppbótartíma frá því
að vinna toppslaginn við FH í Kapla-
krika á mánudagskvöldið og komast
um leið upp í toppsæti Pepsi-deild-
arinnar. FH-ingar jöfnuðu í lokin og
héldu toppsætinu en Blikar eru enn
taplausir eftir níu umferðir.
Blikar fá samt örugglega stjörn-
ur í augun þegar þeir skoða stöðu
liðsins aðeins nánar. Eftir óvænt
tap Blika á móti 1. deildarliði KA í
framlengdum bikarleik í vikunni á
undan er nefnilega mjög fróðlegt að
bera saman Íslandsmeistaraævin-
týri Stjörnumanna í fyrra og byrjun
Blika í sumar.
Íslandsmeistaraár Stjörnunnar
Stjörnumenn urðu Íslandsmeistarar
í fyrsta sinn í fyrra eftir dramatíska
titilbaráttu við FH fram á lokasek-
úndur Íslandsmótsins. FH-ingar eru
á sama stað en að þessu sinni hefur
mesta samkeppnin komið úr Kópa-
voginum en ekki Grafarvoginum.
Stjörnuliðið var með sama stiga-
fjölda og Blikar á sama tíma í fyrra
og líkt og Stjörnumenn fyrir ári þá
eru Blikar enn taplausir eftir fyrstu
átta vikur sumarsins. Hér til hlið-
ar smá sjá fullt af hlutum sem eru
nákvæmlega eins hjá Stjörnunni
2014 og Breiðabliki 2015.
Úrslitin í leik Blika bikarkeppn-
inni eru kveikjan að þessum saman-
burði. Líkindin með örlögum þess-
ara tveggja liða eru ótrúleg. Bæði
liðin voru taplaus á tímabilinu þegar
þau fengu 1. deildarlið í heimsókn.
Stjarnan tók á móti Þrótti en Blikar
fengu KA-menn í heimsókn á Kópa-
vogsvöllinn.
Lið Þróttar og KA voru ekki meðal
efstu liða í sinni deild en bitu samt
óvænt frá sér. Líkt og hjá Stjörnunni
í fyrra þá var ekkert skorað í venju-
legum leiktíma en eina mark leiks-
ins skoruðu gestirnir úr b-deildinni
á upphafsmínútum fyrri hálfleiks
framlengingarinnar.
Smitandi meistarataktar
Meistarataktarnir voru það smitandi
í Garðabænum í fyrra að bæði karla-
og kvennaliðið vann Íslandsmeist-
aratitilinn. Svo gæti einnig farið nú
enda eru Blikakonur eins og er með
fjögurra stiga forskot á toppi Pepsi-
deildar kvenna.
Þjálfararnir eiga sér svipaða
sögu fyrir utan að byrja mjög vel
á sínu fyrsta ári með liðið. Rúnar
Páll Sigmundsson er þannig upp-
alinn Stjörnumaður og lék lang-
stærstan hluta ferils síns á Íslandi
með uppeldisfélagi sínu í Garða-
bænum. Arnar Grétarsson er upp-
alinn Bliki og lék 96 prósent leikja
sinna í efstu deild með æskufélagi
sínu en auð vitað hefur Arnar mun
meiri reynslu sem leikmaður eftir
yfir áratuga dvöl í atvinnumennsku
erlendis. Arnar er líka þremur árum
eldri en Rúnar var þegar hann tók
við Stjörnunni.
Ekkert Evrópuævintýri
Það er líka ljóst að Blikar munu
ekki upplifa Evrópudrauma eins og
Stjörnumenn gerðu í fyrra þar sem
Breiðabliksliðið náði ekki að tryggja
sér sæti í Evrópukeppni á síðasta
tímabili. Það var velgengni Stjörn-
unnar utan landsteinanna sem gerði
tímamótaár Garðbæinga enn ævin-
týralegra en það verður ekkert auka-
álag á Blikum út sumarið enda getur
liðið einbeitt sér að Pepsi-deildinni í
síðustu þrettán umferðunum.
Það eiga enn eftir að fara fram 77
leikir í Pepsi-deildinni í sumar og
því á margt eftir að breytast þar til
síðasti leikurinn verður flautaður af
laugardaginn 3. október.
Blikar vinna heldur ekki Íslands-
meistaratitilinn vegna þess hversu
vel þeir byrja mótið heldur dugar
ekkert nema fyrsta flokks seinni
hluti til að halda í við svart-hvítu ris-
ana úr Kaplakrika og Vesturbænum.
Það er samt ekki hægt að líta fram
hjá því að það er ótrúlega margt líkt
með Íslandsmeisturum Stjörnunnar
2014 og Breiðabliksliðinu 2015.
Unnu síðast með Arnar í búningi
Blikar mæta ÍBV í Vestmannaeyjum
klukkan fimm á morgun, sunnudag,
en þá fara einnig fram leikir KR og
Leiknis á Alvogen-vellinum í Vest-
urbænum, leikur Vals og ÍA á Voda-
fone-vellinum á Hlíðarenda og leik-
ur Fjölnis og FH á Fjölnisvellinum í
Grafarvogi.
Stjörnumenn töpuðu ekki stigi á
móti Eyjamönnum í fyrrasumar en
Arnar Grétarsson, núverandi þjálf-
ari Blika, var í byrjunarliði Breiða-
bliksliðsins þegar Blikar fögnuðu
síðast sigri á Hásteinsvellinum fyrir
sex árum. ooj@frettabladid.is
Blikar með stjörnur í augum
Það er mjög margt líkt með Breiðabliksliðinu í Pepsi-deildinni í ár og Stjörnuliðinu sem kom svo mörgum á
óvart með því að vinna Íslandsmeistaratitilinn tímabilið á undan. Gæti annað ævintýri verið í uppsiglingu?
STIG EFTIR 9 UMFERÐIR
Stjarnan 2014: 19
Breiðablik 2015: 19
SÆTI EFTIR 9 UMFERÐIR
Stjarnan 2014: 2. sæti
Breiðablik 2015: 2. sæti
TÖP EFTIR 9 LEIKI
Stjarnan 2014: Ekkert
Breiðablik 2015: Ekkert
OPINBERA SPÁIN FYRIR MÓT
Stjarnan 2014: 4. sæti
Breiðablik 2015: 4. sæti
LEIKUR VIÐ FH Í FYRRI
UMFERÐ:
Stjarnan 2014: Jafntefli
Breiðablik 2015: Jafntefli
BIKARKEPPNIN:
Stjarnan 2014: 0-1 tap fyrir 1. deildarliði
Þróttar á heimavelli í framlengdum leik
á heimavelli
Breiðablik 2015: 0-1 tap fyrir 1. deildar-
liði KA á heimavelli í framlengdum leik
á heimavelli
GENGI KVENNALIÐSINS Á
SAMA TÍMA
Stjarnan 2014: Á toppnum
Breiðablik 2015: Á toppnum
ÞJÁLFARINN:
Stjarnan 2014: Rúnar Páll Sigmundsson
á sínu fyrsta ári
Breiðablik 2015: Arnar Grétarsson á sínu
fyrsta ári
RÆTUR ÞJÁLFARANS:
Stjarnan 2014: Uppalinn Stjörnumaður
Breiðablik 2015: Uppalinn Bliki
➜ Tilviljun eða
fyrirboði?
NÝTT
ÆVINTÝRI?
Stjörnumenn
urðu Íslands-
meistarar síðasta
haust og fagna
hér titlinum fyrir
ofan.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI
MARINÓ
LÍTUR VEL
ÚT Blikar hafa
spilað vel í sumar
og liðsmenn
Breiðabliks fagna
hér til hægri einu
marka sinna í
Pepsi-deildinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
SUMARIÐ 2014 SUMARIÐ 2015
ÍSLANDSMEISTARI ?
Viðureign ÍA og Vals á Akranesi 1992 er mörgum enn í fersku minni. Leikmenn beggja liða létu Braga Bergmann
dómara heyra það og gott betur. Sigurður Jónsson og Sævar Jónsson fóru þá fyrir sínum liðum. Þora þeir að mæta?
VERÐUR ALLT VITLAUST, AFTUR?
Vodafone-vellinum
sunnudaginn 28. júní kl. 19:15
SPORT
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
2
B
-5
A
3
C
1
6
2
B
-5
9
0
0
1
6
2
B
-5
7
C
4
1
6
2
B
-5
6
8
8
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
1
0
4
s
_
2
6
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K