Fréttablaðið - 27.06.2015, Blaðsíða 104
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
Allt sem þú þarft ...
Höfuðborgarsvæðið, meðallestur á
tölublað 18–49 ára. Prentmiðlakönnun
Gallup, jan.– mar. 2015
YFIRBURÐIR
Fréttablaðsins staðfestir
53,7%
19,6%
FB
L
M
BL
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 800 1177
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
Ég hef tvisvar á minni full-orðinsævi misst stjórn á
skapi mínu á almannafæri. Í
fyrra skiptið í Hans Petersen í
Bankastræti í ágúst 2002 og í
seinna skiptið í afgreiðslunni hjá
bílaleigunni Sixt á Bornholmer-
strasse í Berlín í júlí 2009.
Ástæðan fyrir því að ég man
eftir þessum skiptum af sæmi-
legri nákvæmni er vegna þess
að ég skammaðist mín lengi eftir
á og hugsaði mikið til afgreiðslu-
fólksins sem ég öskraði á. Það
átti þetta ekki skilið.
FYRIR utan þessi tvö tilvik hef
ég að sjálfsögðu oft lent í minni-
háttar útistöðum við dyraverði á
skemmtistöðum, afgreiðslufólk í
lúgum, fólk í biðröðum og skrif-
að það á hina almennu vanstill-
ingu sem fylgir næturlífi. Ég er
enginn sérstakur skaphundur
en ég veit að ég er fjarri því að
vera fullkominn þegar kemur að
skapstillingu. Að sama skapi get
ég varla gert kröfu um að allir
aðrir í heiminum séu það.
NÁNAST vikulega sé ég mynd-
bönd á netinu af fólki sem miss-
ir stjórn á skapi sínu á almanna-
færi. Viðskiptavinir að öskra
á afgreiðslufólk, frægt fólk að
ráðast á ljósmyndara, foreldr-
ar að öskra á börnin sín, fólk
að hrækja, hrinda og hrúga sér
hingað og þangað. Fólk er að
tryllast úti um allan heim, allan
daginn, alla daga. Svoleiðis er
það bara. Sumir tryllast oftar
en aðrir, sumir tryllast kannski
bara einu sinni á ævinni. Stund-
um er það fyndið, oftast er
það sorglegt, stundum er það
(eða ætti að vera) lögreglumál
en stundum er það bara ósköp
hversdagslegt.
ÉG HVET engan til að missa
stjórn á sér. Það er óeðlileg
hegðun. En við höfum flest
gert það og við erum líka flest
jafn heppin og ég að enginn tók
mynd af því og setti á netið.
Auk þess höfum við líka flest
sagt eitthvað hræðilegt um
annað fólk og komist upp með
það vandræðalaust. Kannski
ágætt að hafa það í huga í næstu
hneykslunarbylgju.
Að taka
tryllingskast
BAKÞANKAR
Bergs Ebba
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
2
B
-1
E
F
C
1
6
2
B
-1
D
C
0
1
6
2
B
-1
C
8
4
1
6
2
B
-1
B
4
8
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
1
0
4
s
_
2
6
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K