Fréttablaðið - 19.06.2015, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 19.06.2015, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 19. júní 2015 | FRÉTTIR | 13 og staðna? Ég var fljót til svars eins og ég get verið stundum og sagði: Nei, ég ætla fara á Klepp og vaxa. Og ég tel mig hafa staðið við það.“ María segir öldrunar- og geð- hjúkrun ekki hafa þótt spennandi valkostir innan heilbrigðiskerfisins í þá daga. „Þetta var 1988, en í dag hefur þetta gerbreyst.“ Uppsagnir eru veruleikinn Talið berst að verkfalli hjúkrunar- fræðinga og ástandinu á Land- spítalanum. María tekur ástand- ið mjög alvarlega. „Það er búið að taka af okkur verkfallsréttinn með lögunum. Í þessum töluðu orðum eru að berast uppsagnir hjúkr unar fræðinga. Það er mikið áhyggjuefni. Þær voru fimm á þriðjudag en ég býst við að þeim muni fjölga á geðsviði eins og á öðrum sviðum spítalans. Á annað hundrað hafa þegar borist. Ég veit til þess að fólk er að bíða eftir 19. júní, til þess að hafa þetta tákn- rænt og vekja athygli á þessum launamun kynjanna, sem Félag hjúkrunarfræðinga hefur vakið athygli á aftur og aftur.“ Er þetta sem sagt bundið við kyn? „Ég þori ekki að segja til um það, en það að þessi kvennastétt skuli vera lægra launuð en aðrir háskólamenntaðir starfsmenn segir sína sögu. Hver ætti skýr- ingin að vera önnur, spyr ég. Það hvarflar dálítið að manni að þetta skipti máli, hvort þú sért karl eða kona. Við á spítalanum vorum til að mynda beðin um að koma með tillögur í læknadeilunni, en höfum ekki verið beðin í þessum deilum hjúkrunarfræðinga. Við erum boðin og búin að koma með hug- myndir – við erum auðvitað ekki samningsaðili, en við erum stærsti vinnustaðurinn.“ En hvernig upplifir María ástandið? „Ég hef mestar áhyggjur af uppsögnunum, við höfum farið í gegnum slíkar aðgerðir áður og það er alltaf þannig að það er ákveðin prósenta sem dregur ekki til baka þótt það semjist.“ Depurðin tekur við María segist finna á spítalanum að reiðin sé að hjaðna og depurð- in tekin við. „Það finnst mér eig- inlega óþægilegra. Það er vont að finna það. En auðvitað eru margir enn mjög reiðir. Fólk er virkilega að hugsa sinn gang og ég held að ráðamenn þjóðarinnar og almenn- ingur geri sér ekki grein fyrir því hvað þetta er alvarlegt og hvað staðan er alvarleg. Við erum búin að marghamra á því, stjórnendur á spítalanum. Og það verður erfitt að vinna okkur út úr þessu.“ María segir aðstæður á Land- spítalanum þegar erfiðar. „Fólk fylgdist með fréttum varðandi húsnæðiskostinn okkar. Mygla, maurar, leki og svo framvegis. Það segir sig sjálft að þetta er ekki mjög aðlaðandi. Hugsjónin borgar ekki húsaleiguna. Ég er sorgmædd yfir þessu en vona að ef það nást góðir samningar sé hægt að snúa vörn í sókn.“ María segir einnig mikilvægt að gera ráð fyrir því að nú sé uppi önnur staða fyrir fagfólk en var fyrir fimm eða tíu árum. „Fólk er búið að máta sig við störf í útlönd- um, það er búið að prófa, það veit miklu meira að hverju það geng- ur. Fjöldi fólks hefur fengið góð atvinnutilboð, það á bara eftir að segja já, takk. Það er ekki til sjúkrahús í heiminum sem er rekið án hjúkrunarfræðinga, og sama má segja um lífeindafræð- inga, geislafræðinga og ljósmæð- ur, þetta eru lykilstéttir.“ Hreyfing hefur áhrif Talið berst að svokallaðri Laugar- ásdeild geðsviðsins. „Þar er hópur þeirra sem eru í sínu fyrsta geð- rofi. Þar hefur verið unnið mark- visst í því að auka hreyfingu, hvetja fólk til að hreyfa sig og hugsa um mataræðið. Íslensk rannsókn sem starfsmaður vann á deildinni í sínu framhaldsnámi, sýnir að hreyfing skiptir sköpum. Hreyfingin varð til þess að verkja- lyf og svefnlyfjanotkun eiginlega þurrkuðust út.Lyfin hafa þær aukaverkanir að það er ákveðin hætta á þyngdaraukningu, það stemmdi stigu við því að sjálf- sögðu. Síðan virðist sem reglu- leg hreyfing bæti bæði kvíða og svefn, en hafi líka áhrif á þróun sjúkdómsins. Þannig að þetta er fólk með alvarleg geðræn ein- kenni eins og ranghugmyndir og ofskynjanir og það virðist vera sem svo að þetta hjálpi því í bar- áttunni við einkennin.“ Ekki greiningar á alla Talið berst að greiningum á geðsviði almennt. „Það að sjúk- dómsgera alla skapaða hluti held ég að hjálpi okkur ekkert mikið. Annað dæmi um sjúkdómavæð- ingu sem ég get pirrað mig létt yfir er félagsfælni – er það ekki bara feimni? Auðvitað getur þetta orðið sjúklegt ástand og ég er alls ekki að gera lítið úr því – en að reyna að skella á fólkið helj- arinnar greiningum þegar þetta er eðlilegt ástand. Við þurfum að normalísera ákveðnar tilfinn- ingar sem eðlilegan hluta lífsins ekki sjúkdómsgera allt. Tökum dæmi um verkkvíða, ég ætlaði að þrífa heima hjá mér í gær, en ég nennti því ekki af því að ég var löt. Ég var ekki með verkkvíða – ég var bara löt. Ég reyndi að selja mér það í lok dagsins að ég væri búin að vinna svo mikið og það endaði þar. Mér fannst ég eiga það skilið að fá að vera löt í friði.“ María segist halda að við þurf- um að slaka á í greiningunum. „Við þurfum að leyfa fólki að hafa persónuleikaeinkenni án þess að smella greiningum á fólk. Eins og orðið feimni, maður heyrir þetta ekki lengur. Þetta er alveg ferlegt, eins og mér finnst sjarmerandi þegar fólk er feimið. Þetta eru ekki lestir. Þetta eru eiginleikar. Svo er gerjun í leiðanum, við þurf- um að kunna að láta okkur leiðast. Maður missir af miklu að kunna ekki að láta sér leiðast, það er svo gott fyrir sálartetrið.“ Það að sjúkdómsgera alla skapaða hluti held ég að hjálpi okkur ekkert mikið. Við á spítalanum vorum til að mynda beðin um að koma með tillögur í læknadeilunni, en höfum ekki verið beðin í þessum deilum hjúkrunarfræðinga. 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 2 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K _ N Ý.p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 3 1 -9 0 1 C 1 6 3 1 -8 E E 0 1 6 3 1 -8 D A 4 1 6 3 1 -8 C 6 8 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 6 4 s _ 1 8 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.