Fréttablaðið - 19.06.2015, Blaðsíða 56
19. júní 2015 FÖSTUDAGUR| SPORT | 40
Úr sumu verður
ekkert en stundum fáum
við leikmenn eins og
Andreu og Kim.
Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17
BORGUNARBIKAR
16 LIÐA ÚRSLIT Í GÆR
ÞRÓTTUR R. - ÍBV 0-2
0-1 Jonathan Glenn (35.), 0-2 Víðir Þorvarðarson
(75.). Þróttarar hvíldu marga lykilmenn í gær.
FJARÐABYGGÐ - VALUR 0-4
0-1 Kristinn Freyr Sigurðsson (15.), 0-2 Daði
Bergsson (40.), 0-3 Patrick Pedersen (51.), 0-4
Haukur Ásberg Hilmarsson (90.+2).
KV - KR 1-7
0-1 Óskar Örn Hauksson (13.), 0-2 Pálmi Rafn
Pálmason (26.), 0-3 Almarr Ormarsson (33.), 0-4
Jacob Schoop (35.), 0-5 Pálmi Rafn Pálmason
(45.), 0-6 Óskar Örn Hauksson (54.), 0-7
Pálmi Rafn Pálmason (64.), 1-7 Jón Kári Ívars-
son (84.).
STJARNAN - FYLKIR 0-3
0-1 Tómas Joð Þorsteinsson (26.), 0-2 Albert
Brynjar Ingason (77.), 0-3 Ragnar Bragi Sveins-
son (87.).
FH - GRINDAVÍK 2-1
1-0 Steven Lennon, víti (7.), 2-0 Steven Lennon,
víti (31.), 2-1 Hákon Ívar Ólafsson (85.).
VÍKINGUR R. - AFTURELDING 1-0
1-0 Atli Fannar Jónsson (1.).
FJÖLNIR - VÍKINGUR Ó. 4-0
1-0 Þórir Guðjónsson (17.), 2-0 Gunnar Már Guð-
mundsson (19.), 3-0 Aron Sigurðarson (53.), 4-0
Þórir Guðjónsson (64.).
BREIÐABLIK - KA 1-0 (0-0)
1-0 Ævar Ingi Jóhannesson (98.).
Dregið verður í átta liða úrslit Borgunarbikars
karla í dag klukkan tólf á hádegi í höfuð-
stöðvum KSÍ í Laugardalnum. Í pottinum verða
sjö Pepsi-deildarlið (ÍBV, Valur, KR, Fylkir, FH,
Víkingur og Fjölnir) og eitt 1. deildarlið (KA).
FÓTBOLTI Stúlkurnar í U17 ára
landsliði kvenna komu saman í
gær og æfðu við Kórinn í Kópa-
vogi, en á mánudaginn hefja þær
leik í úrslitakeppni Evrópumótsins
sem haldið er á Íslandi að þessu
sinni. Ísland er í virkilega erfið-
um riðli með Evrópumeisturum
Þýskalands, Spánar og Englands.
Það verður því við ramman reip að
draga, en íslenska liðið hefur feng-
ið „liðsstyrk“, ef þannig má að orði
komast, fyrir mótið.
Í hópnum er stúlka að nafni Kim
Olafsson Gunnlaugsson sem á
íslenskan föður og móður frá Lúx-
emborg. Hún spilar með gríðar-
lega sterku unglingaliði Evrópu-
meistara Frankfurt.
Markahæst í Þýskalandi
„Hún er íslenskur ríkisborgari en
búsett í Lúxemborg. pabbi hennar
hafði samband síðasta sumar og
lét vita af henni og þá kom í ljós að
stelpan var bara virkilega spræk
í fótbolta. Ég hef ekki tekið hana
með í landsleik enn þá en ákvað að
taka hana inn í þennan hóp,“ segir
Úlfar Hinriksson, þjálfari liðsins,
við Fréttablaðið.
Kim býr nú í Frankfurt þar sem
hún stundar nám og spilar fótbolta
með yngri liðum FFC Frankfurt.
Hún er mikill markaskorari og er
markahæst í norðurdeild U17 deild
Þýskalands.
„Ég hef horft á DVD af henni og
svo æfði hún með Stjörnunni síð-
asta sumar,“ segir Úlfar, en von-
andi er þarna kominn framtíðar-
markaskorari A-landsliðsins.
Sum símtöl skila sér
Kim er ekki eina stúlkan í hópnum
sem gæti reynst falinn fjársjóð-
ur til framtíðar. Andrea Celeste
Thorisson, leikmaður Svíþjóðar-
meistara FC Rosengård, sem er
liðið sem landsliðsfyrirliðinn Sara
Björk Gunnarsdóttir leikur með,
fær einnig tækifæri til að láta ljós
sitt skína á stóra sviðinu.
„Hún er allt öðruvísi leikmað-
ur en þær íslensku og hefur t.a.m.
gríðarlega mikla stjórn með bolt-
ann við fæturna. Þetta er stelpa
sem Þóra Björg og Sara Björk vís-
uðu á sem og Hlynur Birgisson,“
segir Úlfar, en Andrea á íslenskan
föður en móður frá Perú.
Andrea hefur verið viðloðandi
U17 ára liðið í eitt ár og spilað ell-
efu leiki. Hún skoraði þrennu gegn
Færeyjum í apríl í fyrra.
„KSÍ fær svona fyrirspurnir
út um allt og ég er beðinn um að
fylgja þeim eftir. Úr sumu verður
ekkert en stundum fáum við leik-
menn eins og Andreu og Kim,“
segir Úlfar.
Margar fá séns
Fleiri dæmi eru um slíkar stúlk-
ur sem hafa ekki búið hérlendis,
ýmist aldrei eða ekki í fjölda ára,
sem fá tækifæri með U17.
„Eftir því sem íslenska útrás-
in eykst erlendis fjölgar þessum
stúlkum. Hanna Hannesdóttir,
sem spilar með KR í Pepsi-deild-
inni, er búsett í Bandaríkjunum
og svo er Elma Mekkín Dervic að
fara með okkur á Norðurlandamót-
ið. Hún býr í Noregi“ segir Úlfar,.
„Við æfum svo lítið að við vilj-
um taka þessar stelpur blint með
í verkefni bara eins og Dagbjörtu
Ínu, dóttur Guðjóns Vals, sem
var með okkur á dögunum,“ segir
Úlfar, sem vill gefa sem flestum
tækifæri í U17 ára liðinu.
„Við erum að nota 21-30 leik-
menn á ári. Við reyndum að halda
kjarnanum af þessum bestu leik-
mönnum en annars hrærum við
mikið til og leyfum mörgum að
spila. Þessir afburðaleikmenn eins
og Margrét Lára, sem var farin að
spila með A-landsliðinu á þessum
aldri, eru ekki til lengur eða fer
allavega fækkandi,“ segir Úlfar.
Fá fjölmiðlakennslu
Þrátt fyrir að verkefnið sé erfitt á
mótinu sjálfu segir Úlfar hug vera
í stelpunum að gera vel.
„Það verður svo bara að koma
í ljós hvort hraðinn hjá þessum
þjóðum sem við spilum við verði
of mikill eða hvort við náum að
aðlagast þessu strax,“ segir hann.
Undirbúningurinn er kominn á
fullt og snýst hann ekki bara um
að æfa sig í fótbolta.
„Við fáum starfsmann frá KSÍ
sem ætlar að kenna stúlkunum
aðeins á það hvernig skal tækla
fjölmiðla. Það þarf að búa þær
undir athyglina sem þær vonandi
fá og þegar þær fá símtöl. Það er
bara verið að kenna þeim að hugsa
og haga sér eins og atvinnumenn
og A-landsliðskonur,“ segir Úlfar
Hinriksson. tomas@365.is
Gæti reynst falinn fj ársjóður
Íslenska U17 ára landslið kvenna hefur leik í úrslitakeppni EM 2017 á heimavelli á mánudagskvöldið. Í
liðinu eru tvær stúlkur sem „fundust“ erlendis en æ fl eiri ábendingar berast um íslenska leikmenn ytra.
KOMNAR “HEIM” Kim Olafsson Gunnlaugsson og Andrea Celeste Thorisson á
æfingu íslenska liðsins í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FRJÁLSAR Íslenska landsliðið í frjálsíþrótt-
um hefur leik á morgun í 2. deild Evrópu-
keppni landsliða, en keppni í 2. deildinni fer
að þessu sinni fram í Stara Zagora í Búlgar-
íu. Keppt er í 20 greinum í karla- og kvenna-
flokki og fara tvö stigahæstu liðin upp í 1.
deildina sem er sú næstefsta.
Ísland var í 3. deild í fyrra en komst upp
sem liðið í 2. sæti á eftir Kýpur. Keppnin
í ár verður miklu erfiðari þar sem Ísland
etur kappi við mun sterkari þjóðir á borð við
Búlgara, Króata, Serba og Dani, en engu að
síður þarf Ísland ekki að hafa áhyggjur af
því að falla niður um deild.
„Það verður fjölgað í 2. deildinni fyrir
næsta ár, þannig að það koma fjögur lið upp
úr 3. deild. Ég var í stjórninni í fyrra og fékk
það í gegn að þessu yrði breytt. Stjórnin
samþykkti þessa tillögu mína,“ segir Jónas
Egilsson, framkvæmdastjóri Frjálsíþrótta-
sambands Íslands.
Undanfarin ár hefur keppnisþjóðum verið
fjölgað í efstu tveimur deildunum og nú var
kominn tími á að fjölga í 2. deild. Íslenska
liðið getur því keppt án mikillar pressu og
mátað sig við mun betri þjóðir.
„Það gerðist fyrir nokkru að breska lands-
liðið féll og breska ríkisútvarpið var nú ekki
nógu ánægt með það. Það nennti ekki að
sýna frá keppni þar sem Bretland var ekki
með. Þessu var því breytt þannig að karl-
ar og konur kepptu saman og fjölgað var í
úrvalsdeildinni úr átta í tólf lið. Það er til
þess að tryggja að Þýskaland, Bretland og
Frakkland geti ekki fallið. Þetta eru lönd-
in sem borga langstærsta hlutann af sjón-
varpsréttinum. Þetta er bara nákvæmlega
eins og í Eurovision,“ segir Jónas.
Haldi Ísland svo sæti sínu á næsta ári
segir Jónas eiginlega bara einn hlut standa
í vegi fyrir því að Ísland jafnvel sæki um að
halda 2. deildina árið 2017.
„Við höfum hótelin og alla umgjörð.
Laugar dalsvöllur er fínn sem slíkur en tart-
anið verður orðið hátt í 30 ára gamalt þegar
að þessu kemur. Verðum við með keppnis-
völl í lagi er ekkert því til fyrirstöðu að við
getum haldið svona mót,“ segir Jónas Egils-
son. - tom
Ísland verður áfram í annarri deild sama hvernig fer
Íslenska frjálsíþróttalandsliðið getur ekki fallið niður í 3. deild í Evrópukeppni landsliða þar sem fj ölgað verður í 2. deild á næsta ári.
ÁSKORUN Aníta Hinriksdóttir er vitaskuld í
íslenska liðinu og er líkleg til gulls og silfurs í
2. deild Evrópukeppni landsliða sem fer fram í
Búlgaríu um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÞRIÐJA ÁRIÐ Í RÖÐ Eyjamenn slógu
Þróttara út úr bikarnum þriðja árið í
röð í gærkvöldi. Hér fer vel á með þeim
nöfn um Aroni Bjarnasyni í ÍBV og Aroni
Ými Péturssyni í Þrótti. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Allir íslensku kylfingarnir eru úr leik á Opna breska
áhugamannamótinu sem fer fram á Carnoustie-
vellinum í Skotlandi. GR-ingurinn Andri Þór
Björnsson komst lengst, en hann datt
út í sextán manna úrslitunum
eftir 2/1 tap fyrir Frakkanum
Daydou Alexandre. Alls komust
þrír íslenskir kylfingar í 32 manna
úrslit mótsins en Gísli Sveinbergsson úr GK og
Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR féllu úr leik
í gærmorgun. Andri Þór var sá eini sem komst
áfram með öruggum sigri gegn Michel Cea frá
Ítalíu 4/3. Gísli tapaði fyrir Skotanum Grant Forrest
3/1 og Guðmundur Ágúst tapaði fyrir Mateusz
Gradecki frá Póllandi 1/0.
Andri Þór fór lengst á opna breska en
féll út í 16 manna úrslitum HANDBOLTI Aron Kristjánsson
skrifaði í gær undir nýjan tveggja ára
samning við HSÍ og mun því stýra
íslenska karlalandsliðinu áfram til
ársins 2017.
„Við vorum búnir að vera í við-
ræðum frá því eftir leikina við Serbíu
en þær drógust vegna leikjaverkefna,
bæði hjá Kolding og landsliðinu,“
sagði Aron í samtali við Fréttablaðið.
Auk þess að sinna þjálfun lands-
liðsins mun Aron starfa að öðrum
málum fyrir HSÍ: „Ég kem meira að
uppbyggingunni og fræðslu- og út-
breiðslumálum, auk vinnu við afreks-
hópinn. Við ætlum líka að gera átak
í líkamlegri þjálfun leikmanna hérna
heima,“ sagði Aron sem bindur
miklar vonir við afrekshóp HSÍ sem
komið var á laggirnar í vor.
„Markmiðið er að vinna markvissar
með leikmenn á aldrinum 18-23 ára
og skila þeim betur tilbúnum inn í
A-landsliðið. Við leggjum aðallega
áherslu á þrennt; líkam- og andlega
þáttinn og leikskilning leikmanna.“
Gunnar Magnússon verður Aroni
áfram til aðstoðar auk Ólafs Stefáns-
sonar sem hefur verið með lands-
liðinu í síðustu fjórum leikjum. Aron
segir samstarf þeirra þriggja gott:
„Þessi samsetning virkar mjög vel
og það er góður taktur í samstarfinu.
Það er gott að hafa þá áfram.“ - iþs
Aron endurráðinn landsliðsþjálfari í gær
ENDURRÁÐNIR Aron og Gunnar verða
áfram með landsliðið. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
SPORT
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
3
2
-3
3
0
C
1
6
3
2
-3
1
D
0
1
6
3
2
-3
0
9
4
1
6
3
2
-2
F
5
8
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
0
6
4
s
_
1
8
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K