Fréttablaðið - 19.06.2015, Page 59
FÖSTUDAGUR 19. júní 2015 | SPORT | 43
FÓTBOLTI FH-ingar eru á toppi Pepsi-deildar
karla eftir þrjá sigra í röð og tvær þrennur
framherja liðsins í undanförnum þremur
leikjum. Það boðar gott fyrir toppliðið og
framherjar liðsins ættu að spila með sjálfs-
traustið í botni í næstu leikjum liðsins.
Kristján Flóki Finnbogason skoraði þrennu
í 4-1 sigri á ÍBV í Eyjum í 8. umferð og Steven
Lennon skoraði þrjú mörk í 4-2 heimasigri á
Leikni í 6. umferð. Báðir voru þeir að skora
sína fyrstu þrennu í efstu deild í þessum
leikjum.
Þetta er fyrsta framherjaparið í áratug sem
skorar þrennu í úrvalsdeildinni eða síðan þeir
Tryggvi Guðmundsson og Allan Borgvardt
skoruðu báðir tvær þrennur fyrir FH-liðið
sumarið 2005.
Sama lið hefur jafnframt ekki átt tvo leik-
menn með þrennu síðan Óskar Örn Hauks-
son og Björgólfur Takefúsa skoruðu þrennur
í tveimur síðustu umferðunum haustið 2009
en Óskar Örn lék þá á kantinum í 4-4-2 leik-
kerfinu og Björgólfur var í framlínunni með
Guðmundi Benediktssyni.
Tryggvi og Allan voru báðir komnir með
þrennu eftir áttundu umferð alveg eins og
þeir Kristján Flóki og Lennon en samtals
skoruðu þeir Tryggvi og Borgvardt 29 af 53
mörkum FH-liðsins um sumarið og voru tveir
markahæstu leikmenn deildarinnar.
Kristján Flóki og Lennon hafa skorað 9
mörk saman og eru nú í öðru (Lennon, 5
mörk) og þriðja sæti (Kristján Flóki, 4 mörk)
listans yfir markahæstu leikmenn Pepsi-
deildarinnar. FH-liðið á nú fjórtán leiki eftir
í Pepsi-deildinni og því næg tækifæri til að
bæta við mörkum í sumar.
FH er reyndar aðeins fjórða félagið á
þessari öld (frá og með 2000) sem hefur tvo
leikmenn sem skora þrennu en framherjinn
Sævar Þór Gíslason og miðjumaðurinn Sverrir
Sverrisson skoruðu báðir þrennu fyrir nýliða
Fylkis sumarið 2000.
Það þarf að fara allt til sumarsins 1997
til að finna fleiri liðsfélaga með þrennu en
þá áttu Leiftur, KR og ÍBV öll tvo menn sem
skoruðu þrjú mörk í leik í deildinni. Hjá öllum
voru menn að skora þrennu af miðjunni.
Til að finna annað framherjapar með
þrennu þurfum við því að fara 19 ár aftur
í tímann eða til þess að þeir Bjarni Guð-
jónsson og Mihajlo Bibercic skoruðu báðir
þrennur fyrir ÍA Íslandsmeistarasumarið
1996. Þeir voru báðir komnir með þrennu
eftir 5. umferðina 24. júní og enduðu á því
að skora saman 20 af mörkum Skagamanna í
deildinni. - óój
FH á fyrsta framherjaparið í áratug sem skorar þrennu í úrvalsdeildinni
ÖFLUGIR FRAMHERJAR Steven Lennon (til vinstri) og
Kristján Flóki Finnbogason. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
➜ Lið með tvo menn
með þrennur í efstu
deild á þessari öld:
FH er aðeins fjórða félagið í efstu deild karla
á síðustu fimmtán árum sem hefur innanborðs
tvo leikmenn sem hafa skorað þrennu.
FH 2015
KRISTJÁN FLÓKI FINNBOGASON Í 8.
UMFERÐ 14. JÚNÍ
- framherji í 4-1 sigri á ÍBV
STEVEN LENNON Í 6. UMFERÐ 31. MAÍ
- framherji í 4-2 sigri á Leikni
KR 2009
BJÖRGÓLFUR TAKEFUSA Í 22. UMFERÐ
26. SEPTEMBER
- framherji í 5-2 sigri á Val
ÓSKAR ÖRN HAUKSSON Í 21. UMFERÐ
20. SEPTEMBER
- vinstri kantmaður í 7-3 sigri á Stjörnunni
FH 2005
TRYGGVI GUÐMUNDSSON Í 18. UMFERÐ
17. SEPTEMBER
- framherji í 5-1 sigri á Fram
ALLAN BORGVARDT Í 13. UMFERÐ 10.
ÁGÚST
- framherji í 8-0 sigri á Grindavík
BORGVARDT Í 8. UMFERÐ 26. JÚNÍ
- framherji í 5-2 sigri á Fylki
TRYGGVI Í 2. UMFERÐ 22. MAÍ
- framherji í 5-1 sigri á Grindavík
FYLKIR 2000
SÆVAR ÞÓR GÍSLASON Í 12. UMFERÐ
31. JÚLÍ
- framherji í 5-1 sigri á Stjörnunni
SVERRIR SVERRISSON Í 11. UMFERÐ 23.
JÚLÍ
- miðjumaður í 7-1 sigri á Leiftri
FÓTBOLTI Birkir Bjarnason getur
valið úr liðum til að spila fyrir
á næstu leiktíð, en nokkur lið úr
Seríu A á Ítalíu berjast nú um
kappann.
Torino og Palermo hafa bæði
haft samband við Pescara vegna
Birkis og eru í viðræðum við
félagið, en nú hefur þriðja ítalska
félagið bæst við í baráttuna um
íslenska landsliðsmanninn.
Sportitalia greinir frá því að
Atalanta, sem var þremur stigum
frá falli úr A-deildinni á síðustu
leiktíð, sé búið að gera Pescara
tilboð í Birki. Atalanta er tilbúið
að greiða 1,1 milljón evra eða 164
milljónir íslenskra króna fyrir
Birki og býður tvo leikmenn með
í kaupbæti. Ekki kemur fram
hvaða leikmenn um er að ræða.
Forráðamenn Atalanta funda
með Pescara í dag, en það virðist
liggja nokkuð ljóst fyrir að Birkir
er á leið frá félaginu og mun spila
í efstu deildinni næsta vetur. - tom
Bjóða 164
millj ónir og tvo
menn í Birki
EFTIRSÓTTUR Landsliðsmaðurinn
Birkir Bjarnason. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
365.is Sími 1817
Gummi Ben stýrir Manstu? sem er skemmtilegur spurningaþáttur á Stöð 2 Sport 2 og Stöð 2 þar sem hann
fær til sín þekkt afreksfólk úr heimi íþróttanna. Tvö tveggja manna lið mætast og glíma við alls kyns útfærslur
af íþróttatengdum spurningum Gumma og þá reynir á þekkingu, útsjónarsemi og taugar keppenda.
Fylgstu með á Stöð 2 Sport 2 og Stöð 2 í allt sumar.
SPORTVÆNN SPURNINGAÞÁTTUR MEÐ GUMMA BEN
ÞEGAR STÓRT ER SPURT
Fyrsti
þátturinn
í kvöld
Í KVÖLD KL. 20:00
LAUGARDAG KL. 19:20
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
1
-E
4
0
C
1
6
3
1
-E
2
D
0
1
6
3
1
-E
1
9
4
1
6
3
1
-E
0
5
8
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
6
4
s
_
1
8
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K