Fréttablaðið - 06.05.2015, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 06.05.2015, Blaðsíða 36
MENNING 6. maí 2015 MIÐVIKUDAGUR TÓNLIST ★★★ ★★ Richard Strauss í Salnum ÓP-HÓPURINN FLUTTI TÓNLIST EFTIR RICHARD STRAUSS. LEIKSTJÓRN: SVEINN EINARSSON LEIKARI: ARNAR JÓNSSON MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL. Óperan Salóme eftir Richard Strauss vakti mikla hneykslun á sínum tíma, hún þótti guðlast og klám. Salóme var stjúpdóttir Her- ódesar úr Biblíunni og girntist Jóhannes skírara, sem vildi ekk- ert með hana hafa. Hún hefndi sín með því að láta hálshöggva hann. Eftirleikurinn fór fyrir brjóstið á fólki. Þar lét Salóme í ljósi ósið- legar hugsanir um leið og hún hélt á höfði Jóhannesar og kyssti það, alblóðug. Þessi sena var hápunkturinn á fremur misjöfnum Strauss-tónleik- um Óp-hópsins í Salnum í Kópavogi á miðvikudagskvöldið. Bylgja Dís Gunnarsdóttir söng og gerði það af mikilli prýði. Söngur hennar var magnaður, fullur af heift og myrkri ástríðu. Hlutverkið krefst breiðs raddsviðs en Bylgja Dís hafði ekk- ert fyrir því. Röddin var jöfn hvar sem var, bæði á efra og neðra sviði. Leiktilburðirnir voru auk þess við- eigandi brjálæðislegir. Óhugnaður- inn skilaði sér fullkomlega. Verst að það var ekki allt svona gott. Einn af söngvurunum, Ágúst Ólafsson hefur átt betri daga. Morgen var ekki fullnægjandi hjá honum, söng- urinn var óöruggur, ef ekki falskur. Hörn Hrafnsdóttir var ekki held- ur í sínu besta formi, Allerseelen var hikandi og ekki alveg hreint. Ständchen var litlu skárra. Aðrir söngvarar voru hins vegar góðir. Egill Árni Pálsson var flott- ur, bæði í Nichts og sem ítalski söngvarinn í Rósariddaranum. Rödd hans var glæsileg, framsetn- ingin óheft og grípandi. Jóhanna Héðinsdóttir söng sömuleiðis vel, einnig Erla Björg Káradóttir. Þær hafa báðar fallegar raddir og miðl- uðu skáldskapnum í tónlistinni af sannfærandi einlægni. Píanóleikararnir Hrönn Þráins- dóttir og Eva Þyrí Hilmarsdóttir skiluðu sínum hlutverkum af stakri prýði, en voru skemmtilega ólíkar. Þær skiptu undirleikshlutverkun- um á milli sín. Eva Þyrí lék sinn part skýrt og örugglega, Hrönn var mýkri og óljósari. Tónleikarnir voru sviðsettir að því leyti að Arnar Jónsson leikari var í hlutverki tónskáldsins. Sveinn Einarsson leikstýrði þessari hlið tónleikanna; það var skemmtilegt. Strauss gamli spjallaði við söngv- arana um verkin sín, sem varpaði ljósi á ævi hans og tónsmíðar og var fróðlegt. Tónleikarnir fá plús fyrir þetta. Gaman er þegar hið staðnaða er brotið upp og gert lifandi. Það gerist alltof sjaldan í heimi klass- ískrar tónlistar. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Tónleikarnir voru upp og ofan, sumt var magnað, annað ekki Afhöggvinn hausinn kysstur MÖGNUÐ Bylgja Dís Gunnarsdóttir söng af mikillri prýði á tónleikunum Óp-hópsins í síðustu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN BÆKUR ★★★ ★★ Nóttin langa Stefán Máni SÖGUR ÚTGÁFA Nóttin langa er beint fram- hald fyrstu unglingabók- ar Stefáns Mána, Úlfs- hjarta, sem kom út fyrir tveimur árum. Hér held- ur hann áfram að segja sögu þeirra Alexanders og Védísar, unga fólks- ins sem er varúlfar í Reykjavík samtímans og eru nú bæði geng- in til liðs við samtök óvirkra varúlfa. En þótt þau hafi með hjálp samtakanna lært að hafa stjórn á dýrinu innra með sér er ekki öllum þeirra vandamálum lokið. Bæði eiga þau í innri baráttu vegna ástar- sambands þeirra og þróunar þess, auk þess sem Védísi gengur illa að falla inn í hóp óvirkra varúlfa þar sem hún er eina konan í þeim sam- tökum. Leikar æsast svo allveru- lega þegar útsendarar Caput-hóps- ins sem hefur það að markmiði að útrýma öllum varúlfum á jörðinni, birtast. Eins og í fyrri bókinni leika sam- tök óvirkra varúlfa og það þrettán spora kerfi sem þau starfa eftir stórt hlutverk í sögunni en hér er áherslan meiri á persónu Védísar og upplifanir hennar sem gefur sögunni meiri vídd og dýpt enda Védís kjarnorkukvendi sem gaman er að kynnast nánar. Bara ill- skiljan legt að hún skuli púkka upp á roluna Alexander sem ekki virð- ist hafa þroskast mikið á því að ná böndum á úlfinum hið innra. Hann er engu að síður mjög vel mótuð persóna með kostum og löstum og það sama á við um allar aðrar pers- ónur sögunnar, nema þá helst hina ógnvekjandi úkraínsku Shöshu sem er ansi steríótýp- ísk femme fatale. Sagan er mjög vel byggð og skrifuð, sam- tölin til fyrirmyndar og stígandi spennunnar vel og vandlega hugsuð. Dálítið undarlegt samt að Caput-hópurinn virð- ist enn vera fastur í hugs- un og siðum miðalda, en við höfum svo sem dæmi um slíka hópa fyrir aug- unum daglega í fréttum svo það er óþarfa tittlingaskítur að setja það fyrir sig. Átökin milli hins gamla og hins nýja eru hreyfiafl sögunnar. Og ekki eingöngu átök óvirku varúlfanna við hausahöggvarana í Caput, held- ur átök Védísar við það að verða fullorðin og takast á hendur nýja ábyrgð og síðast en ekki síst átök hinna óvirku við nýjan hóp varúlfa sem gefa skít í sporakerfi og and- lega uppbyggingu gömlu samtak- anna og hyggjast takast á við dýrið hið innra eftir allt öðrum leiðum. Það verður spennandi að fylgjast með þróun þeirra árekstra í næstu bókum Stefáns Mána um varúlf- ana því það er augljóst af niðurlagi þessarar sögu að hann er hvergi nærri hættur að glíma við þetta söguefni. Því ber að fagna. Friðrika Benónýsdóttir NIÐURSTAÐA: Öflugt framhald Úlfshjarta þar sem persónurnar halda áfram að dýpka og þróast og spennan er keyrð í botn. Drepum, dysjum, fyrirgefum Norðurljósabræðingur 8. maí Tónlistarstjóri: Samúel Jón Samúelsson Norðurljósasal Hörpu | Kl. 21:00 | Miðasala á harpa.is og í 528 5050 JA VORS PR GJA VORS VORS PREN GJA NGJA VORS PREN GJA VORS PREN GJA VORS PREN GJA ENGJ A VORS PREN GJA VORS PR VORS PREN GJA VORS PREN GJA RENG JA VORS PREN GJA VORS VORS PREN GJA VORS PREN GJA SPREN GJA VORS PREN GJA VOR VORS PREN GJA VORS PREN GJA RSPR ENGJ A VORS PREN GJA VO VORS PREN GJA VORS PREN GJA ORSP RENG JA VORS PREN GJA V A VORS PREN GJA VORS PREN GJ VORS PREN GJA VORS PREN GJA A VORS PREN GJA VORS PREN G VORS PREN GJA VORS PREN GJA GJA VORS PREN GJA VORS PREN VORS PREN GJA VORS PREN GJA NGJA VORS PREN GJA VORS PRE VORS PREN GJA VORS PREN GJA ENGJ A VORS PREN GJA VORS PR VORS PREN GJA VORS PREN GJA RENG JA VORS PREN GJA VORS VORS PREN GJA VORS PREN GJA SPREN GJA VORS PREN GJA VOR VORS PREN GJA VORS PREN GJA VORS PREN GJA VO VORS PREN GJA ENGJ A V PREN GJA 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 3 B -4 8 9 C 1 6 3 B -4 7 6 0 1 6 3 B -4 6 2 4 1 6 3 B -4 4 E 8 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 0 4 8 s _ 5 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.