Fréttablaðið - 06.05.2015, Page 40

Fréttablaðið - 06.05.2015, Page 40
6. maí 2015 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 24 BAKÞANKAR Ragnheiðar Tryggvadóttur Stundum, þegar mig langar til að eiga rosalega mikið af peningum, reyni ég að ímynda mér með hvaða ráðum ég geti komist að kjötkötlun- um, helst án þess að að hafa nokkuð fyrir því. Ekki mjög virðingarvert markmið, ég veit. Mig dauðlangar bara til að vera með í ruglinu, með þessum stóru, fá bónus eða arð- greiðslur eða eitthvað úthlutað á silfurfati. Þyrfti ekkert að hlaupa á milljörðum, milljónir væru alveg nóg. ÉG ber ekki ættarnafn og gæti tæplega rakið mig aftur til lénsherra af nokkru tagi og er þannig ekki áskrifandi að auðæfum. Reyndar kem ég frá bænum Engi og ættarnöfn eru oft byggð á átthögum fólks. Kannski get ég búið mér til ættarnafn, Eng- eitthvað! Það er peningahljómur í því. Held reyndar að það sé bannað að búa til nýtt ættarnafn á Íslandi og ég treysti mér ekki í slaginn við mannanafnanefnd. Hljómar eins og vesen og allsendis óvíst að Engeitthvað-nafnið myndi skila mér nokkru. Það kæmist upp um mig á fyrsta ættarmóti, að grilla humar- inn á einnota grilli við kúlutjald. HELST þyrfti ég að eiga útgerð. Kaupa skip og græja net, stígvél og sjógalla. Ef ég bara vissi muninn á botnvörpu og dragnót eða hvaða möskvastærðir eru notaðar við þorskveiðar, eða makrílveiðar öllu heldur. Einu kynni mín af sjávar- útvegi eru þrjár vikur í frystihúsi á Höfn við að afhausa kola. Fékk engan bónus þar, ekki einu sinni íspinna. HVERNIG get ég þá komið mér innundir á réttum stöðum? Og þá rann það upp fyrir mér. Ég kann að baka. Ég baka bestu súkkulaðikökur í heimi. Ólíkt hlutföllum í möskva- stærð til makrílveiða myndu hlut- föll smjörs og sykurs ekki vefjast fyrir mér. Kakó og hveiti, sykur og íslenskt smjör, komið með þetta allt og ég vippa upp ómótstæðilegri djöflatertu með svo ljúfu kremi að það verður draumi líkast að sökkva í hana tönnum. OG af því að ég er einmitt farin að hamstra dósamat þessa dagana á ég eina niðursuðudós með perum í búr- skápnum. Peningar og niðursoðnar perur Gegnsær glamúr á Met Gala Það var mikið um dýrðir á hinum árlega fj ár- öfl unarviðburði Met Gala í New York á mánudags- kvöld. Stjörnurnar fj öl- menntu líkt og venja er í fylgd frægustu fata- hönnuða heims. Þemað í ár var China: Through the Looking Glass en gegnsæjar og rauðar fl íkur voru áberandi auk höfuð- skrauts. FLOTTUR GAUR Justin Bieber mætti á sitt fyrsta Met Gala í sérsaumuðum Balmain-jakka og með sólgleraugu. AÐDÁUNARVERÐUR AFTURENDI Kanye West horfði ástleitinn á bakhluta eiginkonu sinnar, Kim Kardashian-West, sem var klædd í gegnsæjan kjól frá Roberto Cavalli og jakkaföt Kanye eru einnig frá tískuhúsinu. HVÍLÍKT HÖFUÐSKRAUT Sarah Jessica Parker mætti með flennistórt höfuð- skraut frá Philip Treacy sem vakið hefur misjöfn viðbrögð. BOMBA Beyoncé vakti mikla athygli í þessum gegnsæja kjól frá Givenchy. NORDICPHOTOS/GETTY Í STÍL Fatahönnuðurinn Jeremy Scott og Katy Perry mættu saman í hönnun frá Mosch- ino en Scott er yfirhönnuður merkisins. ALSÆL Í GULU Rihanna var í risastórum gulum kjól frá Guo Pei sem hefur, líkt og höfuðskraut Sarah Jessica Parker, vakið mikil viðbrögð á internetinu. ÁLFABAKKA AKUREYRI EGILSHÖLL KRINGLUNNI KEFLAVÍK .S o siAM LARRY KING - LARRY KING NOW NANCY JAY - DAYBREAK USA AGE OF ADALINE 5:40, 8, 10:20 AVENGERS 2 3D 7, 10 MALL COP 2 5, 8 ÁSTRÍKUR 2D 6 FAST & FURIOUS 7 10 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 3 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 3 B -A 1 7 C 1 6 3 B -A 0 4 0 1 6 3 B -9 F 0 4 1 6 3 B -9 D C 8 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 4 8 s _ 5 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.