Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1993, Síða 99

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1993, Síða 99
lensku þjóðarinnar oft?) auk íslenskra rithöf- unda, bókmenntafræðinga, bændaþjóðfélags- ins og hans eigin flekkleysis, því allt fær hér sinn dágóða skammt. Þetta er þó ekkert samhengislaust raus. Á bak við þetta langa viðtal og allar þessar, ,pillur“ býr sú hugmynd að skáldinu eða skáldsagnahöf- undinum (sem er gæddur eiginleikum þess upp- runalega og einstaka meðan rithöfundurinn er sá sem fer vel með form en á um leið litla innistæðu fyrir því (guðbergsk skilgreining)) sé ekkert óviðkomandi í samfélaginu því hugsun um listir og skáldskap sé jafnframt hugsun um samfélag, hvorttveggja byggist á ákveðnum formum sem eru um leið samverkandi. Skáldsagan og þjóðfélagið birtast í máli Guð- bergs sem lífrænar en þó manngerðar heildir sem lúta ákveðnum formrænum lögmálum sem skáldsagnahöfundurinn kemur inn í með hugs- un sína og mótar eða mótast af. Og hann veit að hugsun er ekki andinn einn og sér heldur er samofin henni önnur hugsun, sem er búkleg og ,,lágkúruleg“ og ekki er hægt að skilja frá hinni nema með heimspekilegri eimingu. Persónu- legir fordómar skjótast því óhindrað upp við hliðina á því sem er ígrundað enda birta báðar myndimar í eðli sínu hugsun skáldsagnahöf- undarins. Hann er frumafl í þessum heimi list- rænna forma og samfélagslegrar formgerðar. Rætur hans standa í ffjórri sálarmold sem gerir honum kleift með hugviti og dirfsku að vaxa óháður öllum í sínar eigin hæðir. Hann erþví að vissu leyti á mótum náttúru og menningar, and- stæðu (eða samfellu) sem er mjög áberandi í höfundarverki Guðbergs þar sem annars vegar má sjá gróskumikla hugargeijun sem líkist einna helst þróttmiklum vexti jurta sem fá að vaxa í þéttbýli inni á afgirtum geymslusvæðum, undir fiskhjöllum eða annarstaðar þar sem beit og ágangur heldur þeim niðri, og hins vegar skipulega hugsun og fagurfræði sem byggist á svokallaðri æðri menningu hins vestræna heims. Skáldsagnahöfundurinn og sköpun hans vaxa á mótum þessara tveggja afla og eiginlega utan og ofan við þau. 1 þessari dularfullu per- sónu, skáldsagnahöfundinum, birtist á skýran hátt trúin á hina einstaklingsbundnu getu lista- mannsins sem er engu lík, hún er einstæð og að vissu leyti sjálfsprottin líkt og lús eða arfí en um leið telur hún sig vera í frjóu sambandi við samfélagið og virkni þess. En hafí einhver haldið að þessi skáldvitund kæmi til hans á kvöldsloppnum fram í gættina og lesandinn gæti kynnst „manninum á bak við verkið“, án allra undanbragða, þá hefur sá sami farið erindisleysu. Skáldið er náttúrað fyrir felu- leiki og undanbrögð, og þegar lesandinn heldur að það muni koma „eins og það er klætt“ í rifuna, setur það óðar á sig grímu og fer undan íflæmingi. Þaðerþvínokkuðtil íþvíþegarsagt er á bókarkápu að þetta sé engin „dæmigerð viðtalsbók“, því hún miðar ekki endilega að því að opinbera persónuna Guðberg Bergsson held- ur skoðanir hans, sem óneitanlega er nokkuð svekkjandi fyrir þá sem hefðu viljað sjá meira af safaríkum lýsingum á einkalífi hans. Spyrjandinn, Þóra Kristín, þekkir sýnilega mjög vel bakgrunn Guðbergs sem og verk hans en einhvers staðar virðist hún hafa sogast inn í mælsku skáldsins eða þá að það hefur blásið í hana „sagnaranda", því orðfæri spuminganna er stundum á hreinni „guðbergsku" og allt að því óþægilega líkt svörunum. Þótt hún reyni að fá hann til að skýra mál sitt betur þegar sleggju- dómarnir keyra úr hófi fram, nær hún því miður samt aldrei að byggja upp sannfærandi mótvægi eða andstöðupól við viðmælandann, nokkuð sem hefði áreiðanlega skerpt bókina. Það má síðan náttúrlega spyrja sig hvort viðtalsbókin, sem er í raun einskonar framhandleggur á blaðaviðtalinu (en eins og allir vita hefur það lengstum verið aðalform allrar menningarum- ræðu í dagblöðunum) sé rétti vettvangurinn til að setja fram skoðanir Guðbergs. Líklegast hefði vandað greinasafn verið fýsilegra til að koma hugsun hans á ffamfæri því þegar allt kemur til alls hefur enginn annar íslenskur rit- höfundur á seinni árum skrifað jafn mikið um fagurfræði og listir og tekist að hefja það sem hann skrifar upp á tiltölulega óhlutbundið svið, TMM 1993:2 97
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.