Fréttablaðið - 31.07.2015, Blaðsíða 4
31. júlí 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
Við kærum okkur
ekki um að gróðurþekjan
hjá okkur verði svona
einsleit.
Aldís Hafsteinsdóttir,
bæjarstjóri í Hveragerði.
NÁTTÚRA „Við ætlum ekki að missa
berjamóana okkar undir lúpínu,“
segir Aldís Hafsteinsdóttir, bæjar-
stjóri í Hveragerði, þar sem hafið
er átak gegn útbreiðslu lúpínu, ker-
fils og njóla.
Bæjarráð Hveragerðis sam-
þykkti átakið fyrir rúmri viku.
Slá á alla lúpínu við Suðurlandsveg
og í Þverbrekkum og er því jafn-
framt beint til Hvergerðinga að
slá kerfil og njóla „í öllum heima-
görðum og hvar sem því verður við
komið“ eins og segir í samþykkt-
inni. Algjör sprenging hafi orðið í
útbreiðslu lúpínu í íslenskri nátt-
úru í sumar og að lúpína sé dæmi
um ágenga erlenda plöntu sem
numið hafi land og dreift sér um
stór svæði með tilheyrandi nei-
kvæðum áhrifum á lággróður.
„Nú er svo komið að sjá má
smærri breiður lúpínu á víð og
dreif um bæinn og sérstaklega er
það áberandi í kringum þjóðveg-
inn og í móunum í kringum byggð-
ina,“ segir í samþykktinni.
„Við kærum okkur ekki um að
gróðurþekjan hjá okkur verði
svona einsleit. Hveragerði er ekki
nema níu ferkílómetrar þannig að
við eigum að geta haldið ákveðn-
um svæðum lausum við svona
óværu,“ segir Aldís.
Sem fyrr segir er skorað á íbúa
að taka þátt í átakinu. „Umhverfis-
deildin hjá okkur hefur verið vak-
andi fyrir því lengi að kerfill, njóli
og lúpína eru ekki plöntur til að
hafa inni í byggðinni. Það er mik-
ilvægt að fólk geri sér grein fyrir
því að þetta eru ekki garðplöntur,“
segir bæjarstjórinn.
Ekki stendur til að útrýma lúp-
ínu úr landi Hveragerðis. „Við
látum hana vera á stöðum eins
og í giljunum meðfram ánni þar
sem eru melar og hrjóstur. Þar
getur hún verið og hefur unað sér
vel. En við viljum ekki að þessar
plöntur nemi land á svæðum sem
við höfum hingað til litið á sem
útivistarsvæði bæjarbúa; í berja-
móum og tilvonandi skógræktar-
svæði inni í dal,“ segir Aldís.
Skiptar skoðanir eru um ágæti
lúpínunnar en Aldís segir gagn-
rýni á aðgerðir í Hveragerði ekki
hafa komið fram. „Enda getum
við svarað henni fullum hálsi, við
erum ekki með ógróið land. Hér
eru ekki uppblástursmelar eða
sandar sem þarf að græða upp
með lúpínu. Þar sem við viljum
uppræta hana er gróið land, við
viljum ekki að hún vaði yfir það.“
gar@frettabladid.is
Hvergerðingar sækja fram
gegn lúpínunni og kerflinum
Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri segir Hvergerðinga ákveðna í að halda lúpínu og kerfli frá þeim svæðum þar
sem þessar plöntur valdi skaða. Bæjarstarfsmenn hafa gengið vasklega fram en talsvert verk er þó óunnið.
Á VETTVANGI Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri kom við hjá þeim Viktori Gissurarsyni og Vilhjálmi Ólafssyni sem voru að slá
lúpínu nærri Hamarsvelli í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
BRETLAND „Allt sem er hægt að gera til að tryggja
landamæri okkar verður gert,“ sagði David
Cameron, forsætisráðherra Bretlands, í viðtali
hjá BBC í gær. Fjöldi flóttamanna hefur undan-
farið reynt að komast til Bretlands frá Frakk-
landi í gegn um Ermarsundsgöng.
Um 3.500 manns hafa reynt að komast í gegn
um Ermarsunds göng undanfarna viku. Talið er
að um 37 þúsund hafi reynt við förina það sem af
er ári, níu hafa látist.
„Ef þú kemur hingað ólöglega geturðu ekki
tekið bílpróf, þú getur ekki tekið út af banka-
reikningi, þú getur ekki leigt hús. Við munum
vísa þér úr landi ef þú kemur hingað. Bretland
verður enginn griðastaður fyrir flóttamenn,“
sagði forsætisráðherrann.
„Fólk vill koma til Bretlands því hér eru mörg
störf og hér er frábært að búa. Til að stemma stigu
við straumnum verðum við að bæta landamæra-
eftirlit og vísa ólöglegum innflytjendum úr landi.“
David Davies, þingmaður íhaldsmanna á Bret-
landsþingi, kallaði eftir því á þingfundi að herlið
yrði sent að landamærunum til að hjálpa til við
gæslu.
Peter Sutherland, sem vinnur að innflytjenda-
málum fyrir Sameinuðu þjóðirnar, sagði orðræð-
una í Bretlandi öfgafulla og einkennast af útlend-
ingahatri. - þea
Forsætisráðherra Bretlands segir Bretland ekki vera griðastað fyrir þá sem flýja þangað frá Frakklandi:
Cameron varar flóttamenn við því að koma
INNFLYTJENDUR David Cameron ætlar að vísa öllum
ólöglegum innflytjendum úr landi. NORDICPHOTOS/AFP
INTERNET Mark Zuckerberg,
stofnandi og forstjóri samskipta-
risans Facebook, birti í gær töl-
fræði um notkun á samskipta-
miðlum og þjónustum í hans eigu.
Samkvæmt tölunum sem
Zucker berg deildi nota 1,49
milljarðar manns Facebook.
Þá nota 800 milljónir símaþjón-
ustuna Whatsapp, 700 milljónir
nota Messenger, skilaboðaforrit
Facebook, og 300 milljónir nota
Instagram.
Einnig kom fram að Zucker-
berg hefur veitt milljarði manns
aðgang að alnetinu í gegn um
þjónustuna Internet.org, sem
miðar að því að bjóða netþjónustu
á lágu verði - þea
Zuckerberg kynnir tölfræði:
1,49 milljarðar
nota Facebook
SÆLL Zuckerberg þiggur einn Banda-
ríkjadal í laun á ári. NORDICPHOTOS/AFP
Runólfur, er bensínverðið
óútreiknanlegt?
„Nei, einbeittur vilji er allt sem þarf.“
Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB,
segir íslensku olíufélögin seinni að lækka
eldsneytisverð en hækka þegar verð breytist
á erlendum mörkuðum.
SAMFÉLAG Sviðsstjóri eftirlits-
sviðs ríkisskattstjóra segir að
skoða þurfi hvort hægt sé að ein-
falda regluverk í kringum útleigu
einstaklinga á íbúðum til ferða-
manna. Núverandi kerfi þröngvi
fólki út í atvinnurekstur. Ein-
földun kerfisins myndi auðvelda
skattskil.
Samkvæmt athugun frétta-
stofu 365 eru hátt í 2.000 íbúðir
á höfuðborgarsvæðinu skráðar á
vefsíðunni Airbnb, þar sem ein-
staklingar leigja út íbúð sína til
ferðamanna.
Ríkisskattstjóri hefur undan-
farið hert eftirlit með þessari
starfsemi.
„Það sem við höfum áhyggjur af
er raunverulega hvað þetta hefur
sterkt yfirbragð dulins hagkerfis,
þessar sölusíður. Þarna inni á þess-
um síðum, þá eru engar persónuleg-
ar rekjanlegar upplýsingar, það er
ekki hægt að sjá hvar viðkomandi er
að leigja, húsnúmer eða neitt slíkt,“
segir Sigurður Jensson, sviðsstjóri
eftirlitssviðs ríkisskattstjóra.
Embættið hafi því farið aðrar
leiðir til að koma upp um þá sem
ekki gefa tekjur upp til skatts, til
dæmis með því að skoða greiðslur
erlendis frá inn á kreditkort.
Umfang eftirlitsins með þessum
málum sé því töluvert. - gag
Hátt í 2.000 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu eru skráðar á vefsíðunni Airbnb:
Einfalda regluverk við útleigu íbúða
ÚTLEIGA Ríkisskattstjóri hefur hert eftirlit með starfsemi þar sem einstaklingar
leigja út íbúð sína til ferðamanna án þess að gefa það upp til skatts. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SPURNING DAGSINS
LEIÐRÉTTING
Rangt var farið með mánuði í frétt
um verðlækkanir olíufélaga í gær og
verðlækkanir í júlí voru sagðar hafa
átt sér stað í júní. Hlutaðeigandi eru
beðnir afsökunar á mistökunum.
Áformað er að ný heilsulind sem greint
var frá í Fréttablaðinu í gær verði í
Ölfusdal, ekki Reykjadal. Markhópurinn
verður 18-50 ára.
Þau mistök voru gerð í umfjöllun okkar
um kynferðisbrot á fimmtudag að ein
tala í línuriti var röng. Þar sem stóð 427
átti að standa 238.
VERÐ FRÁ
79.990
KR.
HAVANA
hægindastóll
MARGIR
LITIR
FÁANLEGIR
3
0
-0
7
-2
0
1
5
2
1
:5
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
9
B
-D
8
C
4
1
5
9
B
-D
7
8
8
1
5
9
B
-D
6
4
C
1
5
9
B
-D
5
1
0
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K